25.10.1971
Neðri deild: 5. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2412 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)

Herstöðva- og varnarmál

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Á fimmtudaginn s. l.. 2l. okt., birtist á forsíðu Þjóðviljans fréttatilkynning um það, að ráðherranefnd hefði verið skipuð um herstöðvamálið. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Það kom fram á fundi Alþb. í fyrrakvöld, að sett hefði verið á laggirnar ráðherranefnd til þess að fjalla um herstöðvamálið og fyrirhugaða brottvísun hersins. Í nefndinni eiga sæti ráðherrarnir Einar Ágústsson utanrrh., Magnús Torfi Ólafsson menntmrh. og Magnús Kjartansson iðnrh.“

Af þessu tilefni hef ég spurzt fyrir um það, hver færi með forsætisráðherraembættið í ríkisstj. og það mun vera hæstv. utanrrh. Og af þessu tilefni langar mig til þess að spyrjast fyrir um það, hvort í þessari ráðherranefnd felst einhver breyting á verkaskiptingu ráðherra frá því, sem áður hefur verið tilkynnt, og í öðru lagi, af hvaða tilefni þessi ráðherranefnd hafi verið skipuð, vegna þess að það mun vera mjög einstakt. Ég minnist þess ekki, að slíkar ráðherranefndir hafi áður verið skipaðar, og þess vegna vil ég fá upplýsingar um það, af hvaða tilefni þessi nefnd hafi verið skipuð.