28.02.1972
Sameinað þing: 42. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)

Fiskveiðilandhelgismál

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það eru heldur einkennilegar aths., sem hér hafa komið fram í tilefni af því, að einn alþm. hefur farið til Bretlands til þess að kynna þar málstað okkar í landhelgismálinu. Áður en hann hefur svo að segja tekið til starfa í þessum efnum, þá koma hér fram fullyrðingar um, að það þurfi að vinna að kynningunni með öðrum hætti en hér sé ætlað að vinna o. s. frv., og þannig er talað um þetta mál rétt eins og það hafi ekki komið fyrir áður, að neinn annar alþm. hafi talað um landhelgismálið eða kynnt landhelgismálið af okkar hálfu á erlendum vettvangi að undanförnu. Ég veit ekki betur en þessir tveir hv. þm. úr stjórnarandstöðunni, sem hér eru að spyrja, séu tiltölulega nýkomnir erlendis frá, þar sem þeir hafa verið að senda fréttir heim um það, að þeir hafi sérstaklega verið að kynna málstað Íslands í landhelgismálinu. Ég veit ekki betur en fjöldamargir þm. hafi við ýmis tækifæri á erlendum vettvangi verið að flytja ræður og láta tilkynna um það hér heima, að þeir hafi verið að kynna málstað Íslands í landhelgismálinu.

En í þessu tilfelli liggur það fyrir, að brezkur þm., sem hér var staddur, velviljaður okkur í landhelgismálinu, hafði kvatt sér hljóðs einmitt um landhelgismálið í lávarðadeild brezka þingsins og hann hafði boðið Jónasi Árnasyni alþm. að vera viðstaddur þær umr., sem þar færu fram í lávarðadeildinni. Þegar þetta lá fyrir, þá þótti okkur, mér og utanrrh., einsýnt, að það væri aðeins eðlilegt að nota þetta tækifæri og fá Jónas Árnason til þess að ræða þar við fleiri aðila, sem við álítum, að geti gert okkur gagn á erlendum vettvangi í sambandi við þetta mál og það er meginástæðan fyrir því, að ákveðið var, að Jónas færi í þessa ferð. Jónas hefur áður, eins og hér hefur komið fram, bæði vestan hafs og austan, skýrt okkar málstað í landhelgismálinu og gert það með mestu prýði, og ég verð því að segja það, að aths. af hálfu forustumanna stjórnarandstöðunnar og það, sem þeir hafa sagt hér í tilefni af þessu, er í mesta máta ómaklegt og tilefnislaust með öllu. Og það er síður en svo til þess að veita okkur stuðning í landhelgismálinu að koma fyrir fram með aðdróttanir til þeirra, sem eru að reyna að vinna að framgangi málsins.

Ég vildi aðeins, að þetta kæmi hér fram, að svona liggur í þessu máli, og hér er staðið að málinu fullkomlega á eðlilegan hátt, og ég ætla það, að ég eða aðrir, sem með þetta mál höfum að gera, þurfum ekki að spyrja forustumenn stjórnarandstöðunnar um leyfi í hvert skipti, sem við ræðum við erlenda aðila um þetta mál. Við höfum ekki gert kröfu til þess í ríkisstj., að þeir skriftuðu fyrir okkur í hvert skipti, sem þeir ræddu við erlenda menn um málið. Enda skil ég ekki, hvað slík vinnubrögð ættu að þýða í máli eins og þessu. Ég treysti því fyllilega, m. a. með tilliti til þess, sem áður hefur gerzt á erlendum vettvangi varðandi störf Jónasar Árnasonar í sambandi við þetta mál að þessi ferð hans verði okkur til gagns og geti ekki á neinn hátt orðið málstað okkar til tjóns.

Það atriði út af fyrir sig, hvort einhver blöð hafi tekið myndir af manni við þetta eða hitt tækifærið og hvort hv. 7. þm. Reykv. getur glaðzt yfir því, að það muni þó ekki vera hægt að taka myndir af manni við eitthvert sérstakt tækifæri, það er svo önnur saga og skiptir í rauninni ekki máli í þessu efni.