09.03.1972
Sameinað þing: 46. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2436 í B-deild Alþingistíðinda. (2604)
Fiskveiðilandhelgismál
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Af tilefni frétta, sem birzt hafa í gær og í dag í Ríkisútvarpi og blöðum og snerta deilumál Íslendinga við Breta og Þjóðverja um útfærslu íslenzku landhelginnar, vil ég mega taka eftirfarandi fram:
Í landhelgisnefndinni hefur framvinda málsins ekki verið rædd síðan á fundi þann 29. febr., sem þá var sérstaklega óskað eftir. Ég ítreka enn, að ég tel mjög misráðið, að ótímabærar yfirlýsingar séu gefnar um væntanleg viðbrögð íslenzku ríkisstj. við málskoti deiluaðila til Alþjóðadómstólsins og hugsanlega samningsgerð við þá um veiðiréttindi innan landhelginnar. Þær eru gefnar án alls samráðs við stjórnarandstöðuna og, að því er ég hygg, án undangengins samráðs innan hæstv. ríkisstj. Sérstaklega eru slíkar yfirlýsingar á erlendum vettvangi vanhugsaðar og vítaverðar, þegar þær geta misskilizt sem orðsendingar eða afstaða íslenzku ríkisstj., enda hlýtur það að vera hlutverk utanrrh. eða annarra þeirra, sem hafa umboð ríkisstj. til þess að gefa slíkar yfirlýsingar. Það er hins vegar kunnugt af ummælum hæstv. forsrh. við fjölmiðla, að hann hefur að svo komnu ekki talið ástæðu til þess að tjá sig um málið. Hitt liggur fyrir, að hæstv. ríkisstj. hefur í orðsendingum sínum til ríkisstj. Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýzkalands fyrir síðustu mánaðamót lagt áherzlu á, að viðræður héldu áfram milli fulltrúa ríkjanna til þess að reyna að finna hagfellda lausn þeirra vandamála, sem upp kunna að koma við útfærslu landhelginnar þann 1. sept. 1972. Ég vil því, hæstv. forsrh., leyfa mér að óska þess, að samráð verði haft um málið við fyrstu hentugleika í landhelgisnefndinni, eins og fyrirheit liggja fyrir um og þar sem stjórnarandstaðan á sína fulltrúa.