20.01.1972
Sameinað þing: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (2617)
Ástandið í Bangla Desh
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs út af ákveðnu máli, þ. e. að hreyfa viðurkenningu á Bangla Desh og í sambandi við það mál bera fram fsp. til hæstv. utanrrh.
Einn markverðasti atburður heimsmálanna á s. l. ári var án efa tilkoma Austur-Bengals, sem á máli þarlendra nefnist Bangla Desh, sem sjálfstæðs ríkis. Þessi þjóð, sem er í tölu fjölmennustu ríkja veraldar, — þar munu búa um 75–80 milljónir manna — hefur nú risið upp af rústum eftir blóðsúthellingar og borgarastyrjöld og heimtar nú sinn rétt meðal sjálfstæðra þjóða heims. Sjálfstæðisbarátta þessarar þjóðar er blóði drifin og fáir geta gert sér í hugarlund þær fórnir. sem þessi þjóð hefur orðið að færa til að öðlast sjálfstæði, og þær hörmungar, sem yfir hana hafa gengið. Þingheimur þekkir þessa hörmungasögu, a. m. k. í stórum dráttum, og þarf því ekki að rekja hana nánar. En miklu máli skiptir í þessu sambandi, að um sjálfstæðisvilja Bangla Desh efast enginn, að Awami-bandalagið, sem þar fer með völd, vann yfirburðasigur í almennum, lýðræðislegum kosningum og forustumenn þjóðarinnar eru á sama hátt kjörnir í almennum lýðræðislegum kosningum.
Eftir baráttu sína, hina blóðugu baráttu fyrir frelsi gegn yfirgangi og kúgun Vestur-Pakistana, er atvinnulíf landsins í rúst, og án efa blasir við mannfall af hungri, ef ekki tekst vel til. Þessi þjóð virðist hafa, eins og sakir standa, lítið annað en óslökkvandi vilja til sjálfstæðis, metnað til að ráða málum sinum ein. Þess vegna er mikilvægt fyrir Bangla Desh að fá viðurkenningu annarra þjóða fyrir sjálfstæði sínu og vera talin hlutgeng með öðrum þjóðum. Öll þeirra barátta, bæði efnahagsleg og stjórnarfarsleg, yrði miklum mun auðveldari. En nú er vitað, að bæði Bandaríkin og Kína munu leggja kapp á að draga slíka viðurkenningu á langinn, og er hætt við því, að margar þjóðir fari að dæmi þeirra og að sjálfsögðu auðsveipustu leppríkin. Íslendingar mega gjarnan og raunar eiga að láta til sín taka og láta ekki valdabaráttu stórveldanna villa sér sýn. Þess vegna var það mikið fagnaðarefni, þegar danski utanrrh., K. B. Andersen, lét þau ummæli eftir sér hafa í fjölmiðlum, að Danir teldu, að viðurkenning á Bangla Desh kæmi mjög til greina og haft yrði samband við utanrrh. annarra Norðurlanda. Ég hjó eftir því, að þar voru sérstaklega tilgreind Svíþjóð og Noregur til þess að athuga þetta mál nánar. Í tilefni af þessu vakna þær spurningar, sem ég leyfi mér nú að leggja fram fyrir hæstv. utanrrh.
1. Hefur danski utanrrh., K. B. Andersen, sett sig í samband við ríkisstj. út af fyrirhugaðri viðurkenningu Dana á Bangla Desh?
2. Hver er afstaða ríkisstj. til þessa máls og hyggst hún taka eitthvert frumkvæði í því?
3. Hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi, til þess að íslenzka ríkisstj. telji sig geta viðurkennt Bangla Desh?