10.05.1972
Sameinað þing: 66. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2446 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)
Styrjöldin í Víetnam
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Það gleður mig, að það koma fram þær raddir hér hjá nokkrum þm., að þeir telja sig nú með framferði sínu eiga drjúgan þátt í því að bjarga heimsfriðinum. Ég vil hins vegar upplýsa það, að á utanrmn.-fundi, sem haldinn var fyrir tveimur dögum, bar þessi mál alls ekki á góma. Hins vegar sagði hæstv. utanrrh. og bar það undir okkur, hvort þm. gætu eftir atvikum ekki fellt sig við, að hann legði fram skriflega skýrslu um utanríkismálin í stað framhaldsumræðna um utanríkismálin, sem hann reyndar hafði boðað fyrr á þessu þingi. Við féllumst á það, nm. í utanrmn., að eftir atvikum, þegar væri verið að ljúka störfum þingsins, þá væri ekkert við það að athuga og mundi nægja og verða til upplýsinga fyrir þm. að fá slíka skýrslu, en ef á að fara að taka upp heimsfriðarviðræður, þá veit ég ekki nema verði að endurskoða það og efna til sérstakra viðræðna í þinginu um heimsmálin.