17.04.1972
Sameinað þing: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (2636)
Ráðherrar í Ríkisútvarpi
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hér hljóðs utan dagskrár um atriði, sem er svipaðs eðlis og lík mál, sem áður hefur reyndar borið á góma hér í þingsölunum. Þegar skattfrv. var útbýtt í þinginu fyrir jólin, þá skeði það, að samdægurs komu tveir ráðh., hæstv. félmrh. og hæstv. fjmrh., í sjónvarp og hljóðvarp til þess að túlka þessi frv. fyrir landslýðnum, á sinn hátt að sjálfsögðu. Þetta gerðum við aths. við í stjórnarandstöðunni og Ríkisútvarpið leiðrétti það, sem það taldi og viðurkenndi, að væru misfellur af þess hálfu, með því að gefa stjórnarandstöðunni eða fulltrúum stjórnarandstöðunnar kost á að tjá sig um þessi frv. þá næstu kvöld í sjónvarpi og hljóðvarpi. Þetta var í samræmi við það, sem hæstv. forsrh. hafði þá nýverið tjáð sig um, að það bæri að sjá til þess, að stjórn og stjórnarandstaða hefðu jafna aðstöðu í þessum þýðingarmikla fjölmiðli, sem Ríkisútvarpið er.
Hér er á dagskránni í dag frv. til l. um heilbrigðisþjónustu og því var útbýtt fyrir viku, held ég, eða þar um bil, tæpri viku. Nú skeður það í gærkvöld, að hæstv. heilbrmrh. birtist á sjónvarpsskerminum til þess að tjá landslýðnum, hvað hér sé á ferðinni, og mátti náttúrlega á því skilja, að hér væri um mjög merkilegt og mikið mál að ræða, sem hann hefur nú hins vegar ekki árætt að flytja sjálfur, heldur hefur beðið nefnd að flytja — hann sagði nú ekki frá því í sjónvarpinu — og talað er um hér í þinginu að sé lagt fram til þess að sýna það, og eigi svo að athuga það nánar og afgreiða síðar. Þetta eru dálítið einkennilegar tiltektir. Þetta er náttúrlega mál, sem er ekki flokkspólitískt og má þess vegna skoða frá öðru sjónarmiði en þessi viðkvæmu skattamál, sem ég vék að áðan. En þetta er svolítið annarleg auglýsingastarfsemi.
Það var svipað þessu, sem gerðist í haust, þegar hæstv. ríkisstj. og hæstv. iðnrh., sami ráðh., neitaði ekki Landsvirkjunarstjórn um að nota heimild, sem hún vildi nota samkv. lögum, sem síðasta Alþ. afgreiddi, til þess að virkja Sigöldu. Þá var mikil auglýsingaherferð upp skorin. Ríkisstj. hefur ákveðið að virkja Sigöldu, af því að hún neitaði ekki Landsvirkjuninni um leyfi til þess að nota heimildina, sem var í lögum frá síðasta þingi, og þessi hæstv. ráðh. birtist á sjónvarpsskerminum, og í baksýn voru virkjanir og vélar og mikil tækni. Það var á sama hátt eins og bakgrunnurinn að viðtalinu í gær var Íslandskort og fer vel á því. Það minnir mann að vísu á það, að herforingjum og einvöldum gamalla tíma var ósköp gjarnt að láta taka myndir af sér með hnattlíkan við hliðina á sér til þess að sýna veldi sitt. Ekkert þessu líkt skeði nú, hvorki þegar frv. til l. um breytingu á Landsvirkjun með Sigölduvirkjun og Hrauneyjafossvirkjun var lagt fyrir fyrra þing eða þegar þau voru afgreidd, þegar þingið hafði málin til meðferðar.
Ég vek athygli á þessu hér m. a. vegna þess, að það er mjög altítt orðið nú að hitta menn á förnum vegi, sem furða sig á því, hvernig Ríkisútvarpið er rekið í fréttastarfsemi og auglýsingastarfsemi, og margir eru farnir að kalla þetta heimilistæki ríkisstj. á hinum pólitíska vettvangi. Þetta er mjög miður. Nú veit ég alls ekki, hvort frumkvæðið að þessu viðtali eða fyrri viðtölum er frá hæstv. ráðh. eða fréttastofu Ríkisútvarpsins. En það er alveg sama, hvort heldur er. Ef það er fréttastofan, sem er hér á ferðinni, þá eiga nú ráðh., finnst mér, sjálfir að hafa rétt mat á því, hvenær hæfilegt sé og á hvern hátt þeir komi fram í sjónvarpi og útvarpi með þingmál, sem hér er til umr. Og hæstv. forseti Sþ. hefur tjáð sig um það við mig, að hann vilji, að framfylgt sé þeim vinnuaðferðum, að frv. eða þingmál sem liggja hér fyrir, séu ekki rædd í sjónvarpi eða útvarpi, fyrr en þingið sjálft er búið að taka málið til meðferðar og það koma þá frásagnir af því í þingfréttum eða á annan hátt. Ég styð alveg eindregið bæði skoðun hæstv. forseta Sþ. að þessu leyti og einnig skoðun hæstv. forsrh., sem ég vitnaði til áðan.
Sé það svo, sem ég geri nú ekki ráð fyrir, að ráðh. leggi svo mikið upp úr slíkri auglýsingastarfsemi sjálfir, fremur þá hitt, að þeir laðist til þess og láti teygja sig út í þetta af misvitrum mönnum í sjónvarpinu, þá ættu þeir bara frekar að skipta við auglýsingaskrifstofuna. Það mundi vera mikill styrkur fyrir sjónvarpið. Þá þýddi það að vísu, að það þyrfti að borga eitthvað á 5. þús. kr. fyrir mínútu.