29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2470 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)

Húsnæðismál menntaskóla o.fl.

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Áður en ég reyni að sýna lit á að svara þeim mörgu og umfangsmiklu spurningum, sem hv. 12. þm. Reykv. hefur beint til mín, vil ég tjá þingheimi það, sem ég tjáði hv. fyrirspyrjanda, þegar hún skýrði mér frá því fyrir hádegið, að þetta mál yrði borið hér upp, að líklegra væri til að upplýsa málið og jafnframt þinglegra að flytja um það formlega fsp., sem hlyti meðferð samkv. þingsköpum, en að taka svo umfangsmikið málefni upp utan dagskrár. Mér virðast aðallega fjögur atriði, sem fsp. er beint um í ræðu hv. 12. þm. Reykv.

Í fyrsta lagi er óskað skýringar á því, hvers vegna ekki sé til sú reglugerð, sem gert var ráð fyrir, að endursamin yrði á yfirstandandi ári. Því er til að svara, að reglugerð samkv. nýju menntaskólalögunum, sem eru nr. 12 frá 1970, var sett í ársbyrjun 1971, reglugerð nr. 12 1971. Í reglugerðinni er ráð gert fyrir endurskoðun hennar þegar á sama ári, árinu 1971. Samkv. því ákvæði voru breytingar á reglugerðinni ræddar í samstarfsnefnd menntaskólastigsins, en þeirri nefnd var komið á fót samkv. ákvæði í menntaskólalögunum. Nefndin varð sammála um, að ekki væri fengin nægileg reynsla af framkvæmd þeirrar reglugerðar á þessum stutta tíma, síðan hún var sett, til þess að ástæða væri til að gefa hana út að nýju í heild. En hins vegar lagði nefndin til að gerðar yrðu á reglugerðinni vissar breytingar, og var reglugerðinni breytt í samræmi við þessar tillögur 7. jan. 1972 og breytingarnar sendar Stjórnartíðindum til birtingar 10. sama mánaðar, svo að þó að reglugerðin hafi ekki verið endursamin í heild, hafa þegar verið gerðar á henni breytingar í samræmi við þá reynslu, sem fengin er.

Í öðru lagi er spurt um framkvæmd menntaskólalaganna, og þá einkum ákvæðis þeirra um nýja starfsmenn, sem ekki verða taldir beinir kennslukraftar; hverjir hafi verið ráðnir og hverjir ekki. Eins og ég gat um áðan, eru nýju lögin um menntaskóla nr. 12 1970. Í þeim felast margs konar nýmæli, bæði varðandi námsskipan, kennsluhætti og starfssvið skólanna. Það er að sjálfsögðu ljóst, að nokkurn tíma tekur að koma í framkvæmd öllum þeim atriðum, sem lögin gera ráð fyrir, og á það ekki sízt við ýmislegt af því, sem varðar námsskipan og kennsluhætti. Að því er tiltekin starfssvið varðar, þá er þess að geta, að deildarstjórar í einstökum námsgreinum eða námsgreinaflokkum eru þegar teknir til starfa samkv. þessum nýju lögum, tóku til starfa veturinn 1970–1971. Á þessum vetri hefur verið heimiluð ráðning aðstoðarskólastjóra við þrjá stærstu skólana. Af öðrum nýjum starfsmönnum, sem menntaskólalögin gera ráð fyrir, má nefna námsráðgjafa; bókaverði, félagsráðgjafa, tækjaverði auk starfsliðs við heimavistir, húsfreyju og húsbónda. Að sjálfsögðu hefur sumt af þeim verkefnum, sem hér eru ætluð sérstökum starfsmönnum, verið leyst af hendi áður með öðrum hætti og er svo enn. Til að mynda eru gjarnan einhverjir úr hópi kennara, sem annast bókavörzlu og tækjavörzlu, svo að nokkuð sé nefnt. En stefna menntmrn. er sú, að til allra þeirra starfa, sem ráðgerð eru í hinum nýju menntaskólalögum, verði ráðnir starfsmenn og vera megi, að heppilegast sé að sameina sum störfin kennslustörfum, enda gera lögin ráð fyrir, að svo sé.

En framkvæmd þessa lagaákvæðis eins og annarra fer eftir fjárveitingu, sem til ráðstöfunar er til að standa straum af aukinni starfsemi, og mun tekin upp við undirbúning næstu fjárlaga framkvæmd þessara lagaákvæða í meira mæli en verið hefur hingað til.

Í þriðja lagi spurði hv. 12. þm. Reykv., hversu bæta eigi úr neyð Menntaskólans í Reykjavík og ráðstafa 750 nýjum nemendum, sem gert er ráð fyrir, að leiti inngöngu í menntaskólana að hausti. Fyrir um það bil áratug ákvað ríkisstj., að Menntaskólinn í Reykjavík yrði framvegis á núverandi skólastað við Lækjargötu, jafnframt því, sem byggður yrði annar menntaskóli við Hamrahlíð. Í samræmi við þessa stefnu var nýja húsið við Menntaskólann reist, og eigin húsakostur Menntaskólans er nú sem hér segir: 9 almennar kennslustofur í gamla húsinu, 4 almennar stofur í nýja húsinu, 3 sérkennslustofur í nýja húsinu, 2 almennar kennslustofur í svokölluðu Fjósi. Samtals eru þetta 15 almennar kennslustofur og 3 sérstofur. Í skólanum eru í vetur um 1040 nemendur og í notkun eru 8 kennslustofur utan skólalóðarinnar, í Þrúðvangi og Miðstræti 12. Haustið 1972 má gera ráð fyrir, að 750 nemendur æski inngöngu í alla menntaskólana í Reykjavík. Úr Menntaskólanum í Reykjavík fara 300 nemendur í vor, en s. l. haust voru teknir í skólann 276 nýir nemendur. Miðað við núverandi eigin húsakost skólans og þann húsakost, sem unnt væri með góðu móti að koma fyrir á lóð skólans, gæti skólinn rúmað 600–700 nemendur miðað við, að þar yrði ekki tvísett.

Að því er varðar húsnæðismál skólans haustið 1972, er stefnt að því að leigja eða kaupa KFUM-húsið á lóð skólans, en þó er vonlaust, að skólinn geti fengið það til sinna umráða að fullu á komandi hausti. En væntanlega mundi skólinn komast af með að fá 3–4 kennslustofur í KFUM-húsinu haustið 1972 og gæti þá hætt kennslu í húsnæðinu í Miðstræti 12 miðað við, að ekki yrðu teknir í skólann haustið 1972 nema 220 nýir nemendur, en húsnæðið í Miðstræti 12 mætti nota til annarra þarfa skólans, svo sem félagsstarfa nemenda.

Að því er varðar Menntaskólann við Hamrahlíð, þá er ætlunin að ljúka byggingu skólahússins að fullu fyrir haustið 1972, en næsti áfangi þar á eftir yrði íþróttahús. Fjárveiting í gildandi fjárlögum er miðuð við að ljúka sjálfu skólahúsinu. Nemendafjöldi í Menntaskólanum við Hamrahlíð er í vetur 730, og þaðan munu útskrifast í vor 140 stúdentar. Skólinn mun geta veitt viðtöku haustið 1972 a. m. k. 230 nýjum nemendum.

Menntaskólinn við Tjörnina er, eins og kunnugt er, í húsnæði gamla Miðbæjarbarnaskólans, en vilyrði hefur nú fengizt af hálfu borgaryfirvalda Reykjavíkur um lóð undir nýbyggingu fyrir skólann við Suðurlandsbraut. Mun verða hafizt handa um teikningu og annan undirbúning alveg á næstunni, en fé er hins vegar ekki á fjárlögum til sjálfra byggingarframkvæmdanna á þessu ári, en stefnt er að því, að á fjárlög 1973 verði tekið framlag til byggingarinnar. Þetta læt ég að svo stöddu nægja um menntaskólana í Reykjavík.

En þá er fjórða fsp. hv. 12. þm. Reykv. um heimavinnugreiðslu til kennaranna. Komið hefur upp ágreiningur milli fjmrn. og Félags menntaskólakennara um greiðslu fyrir heimavinnu, og þar er um að ræða mismunandi túlkun eða skilning á gildandi kjarasamningum. Menntmrn. mun fyrir sitt leyti leggja höfuðáherzlu á, að þetta mál leysist hið bráðasta, þannig að það bitni ekki á kennslu í menntaskólunum.