29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)

Húsnæðismál menntaskóla o.fl.

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki fara að blanda mér inn í þessar deilur að öðru leyti en því, sem ég tel mér skylt til þess að upplýsa það, sem um hefur verið spurt hér, en umr. hafa að verulegu leyti farið fram hjá. En það er það atriði, er varðar leiðréttingar á skriflegum verkefnum nemenda, sem ég vildi gefa upplýsingar um.

Í sambandi við það vil ég lýsa hér grg., sem fjmrn. hefur gert, eftir að það fréttist upp í það rn., að von væri á þessari fsp. Hitt get ég ekki látið hjá líða að taka fram, að ég tel nauðsynlegt, að jafn yfirgripsmikla fsp. sem þessa, beri að með eðlilegum hætti og að þessi afturfótafæðing, sem er orðin á fsp. hér í hv. Alþ. nú, ætti gjarnan að leggjast niður, því að það er mjög erfitt að fá ekki að vita um slíkar fsp., sem þurfa nokkurrar athugunar við, fyrr en nokkrum mínútum áður en þær eru fluttar. En ekki meira um það.

Það, sem ég vildi koma á framfæri, er þetta:

1. Á undanförnum árum hafa samtök kennara haft sérstakan samning við ríkissjóð um greiðslu fyrir störf þeirra að úrvinnslu skriflegra verkefna nemenda. Samningum þessum var sagt upp ýmist af samtökum kennara eða fjmrn. með löglegum fyrirvara.

2. Þróun mála á s. l. ári varð sú, að æ fleiri kennarar leituðu eftir greiðslum fyrir úrvinnslu verkefna nemenda. Töldu t. d. sumir kennarar í sögu og landafræði kennsluaðferðir sínar réttlæta greiðslur á borð við þær, sem inntar voru af höndum til kennara í stærðfræði og tungumálum.

3. Þau sjónarmið ríktu við gerð kjarasamnings, að föst laun skyldu koma fyrir öll þau störf, sem óhjákvæmilega fylgdu þeirri stöðu, er starfsmaður gegndi. Litu samningsaðilar m. a. svo á, að kennslustörf yrðu ekki af hendi leyst, án þess að kennari legði fram vinnu við leiðréttingu verkefna nemenda. Gerðu aðilar með sér svofellda bókun, sem ég vil leyfa mér að lesa:

„Aðilar eru um það sammála, að við mat á störfum kennara hafi tillit verið tekið til þeirrar vinnu, sem kennari leysir af hendi við úrvinnslu verkefna nemenda, og teljist slík vinna unnin á þeim tíma, sem kennara er ætlaður til undirbúnings kennslu.“

Þetta er bókun, sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og fjmrn. gerðu með sér í sambandi við kjarasamningana í fyrra. Um framkvæmd á þessu atriði er svo þetta að segja: Með hliðsjón af því, að kennarar sem aðrir starfsmenn ríkisins fá ekki að fullu umsamdar launahækkanir fyrir 1. júlí n. k., taldi fjmrn. rétt að afnema greiðslur til kennara samkv. fyrri samningum í áföngum. Framkvæmdin hefur verið sú í stórum dráttum, að fram til 1. sept. 1971 héldu kennarar óbreyttum greiðslum samkv. fyrri samningum. Frá 1. sept. til loka des. var greitt 65% af upphaflegum greiðslum, en frá áramótum af greiðslum þessum 40%. Hefur verið út frá því gengið, að greiðslurnar féllu niður 1. júlí n. k., en þá var hækkun fastra launa kennara að fullu komin til framkvæmda.

4. Á það ber að leggja áherzlu, að rn. telur engan vafa á því leika, að greiðslur þessar eigi að falla niður samkv. gildandi kjarasamningum. Rétt er að vekja athygli á, að vandalaust er að fá úr ágreiningi við kennarasamtökin skorið með því að leggja mál þetta fyrir kjaranefnd, sem samkv. lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna á að skera úr, hver aukastörf rétt sé að telja sem aðalstarf, hver ber að launa sérstaklega. En til þess að slíkur úrskurður hafi raunverulegt gildi, þarf að liggja fyrir, að báðir aðilar sætti sig við hann og haga vinnubrögðum í samræmi við hana. Fjmrn. er að sjálfsögðu reiðubúið til að standa þannig að málinu.

Þetta vildi ég, að hér kæmi fram, vegna þess að ég hygg, að margir hafi talið, að hér væri um stirðbusaskap að ræða af hálfu fjmrn., sem það vildi ekki viðurkenna, en hér er um samning að ræða, sem er gerður af þeim, sem að þeim málum stóðu, af réttum aðilum, undirskrifuð bókun, og þess vegna er nauðsynlegt, að það komi hér fram, hvað raunverulega er átt við í þessu máli.