25.11.1971
Sameinað þing: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (2671)
Athugasemdir um þingstörf
Forseti (GTh):
Ég tel rétt að minna hv. þm. á ákvæði í þingsköpum um umr. um fsp. Það er í 31. gr. þingskapa. Þar segir:
„Mega þm., aðrir en ráðh., ekki tala oftar en tvisvar um hverja fsp. og eigi lengur en 5 mínútur í senn.“ Þess hefur orðið vart, að sumir hv. þm. hafi ekki munað eftir þessu þingskapaákvæði.
Þessum fundi verður ekki haldið lengur áfram en til kl. um það bil 7 í kvöld, og kvöldfundur verður ekki. Ég vil taka það fram út af þeim málum, sem nú verða tekin fyrir, að sá háttur hefur oft verið hafður hér á, að þegar varamenn hafa tekið sæti á Alþ. og flutt þingmál, þá hefur þeim verið gefinn kostur á að flytja sitt mál, áður en þeir hverfa af þingi og aðalmaður tekur sæti. Þess vegna hefur oft verið vikið frá röð dagskrármálanna. Það verður einnig gert að þessu sinni.