02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að gera neina aths. við afgreiðslu kjörbréfanefndar eða tillögugerð hennar, en vil vekja athygli á því, að hér er aðeins um vottorð kjörstjórnar að ræða um kosninguna, en ekki reglulegt kjörbréf. Þetta mun hafa komið fyrir áður í þinginu og undir sömu kringumstæðum, en með slíku vottorði verið fallizt á, að varaþm. tæki sæti á þingi. En ákvæðin um varaþm. eru þannig, að ef þm. látast eða forfallast, þá taki þm. þeir, sem eru á listanum, við sem varamenn í þeirri röð, sem þeir eru og svo langur sem listinn er. Þessi breyting var gerð á sínum tíma, 1956, á kosningalögunum, en nokkur vafi lék á því, hversu margir varaþm. gætu komið inn fyrir viðkomandi flokka, eftir því hve marga aðalþm. þeir fengju kosna. Úr því var skorið þá. En ég vil mælast til þess við hæstv. forseta, að það verði athugað af hálfu forsetanna fyrst og fremst að reyna að skapa nokkra festu í því, með hverjum hætti varaþm. koma inn, m. ö. o. að það sé gerð nokkuð sterk krafa til þess, hvað teljast forföll og ekki forföll. Ég held, að við getum verið allir sammála um þetta í þingflokkunum, að það væri æskilegt að vera nokkuð aðhaldssamir í því, en það verði ekki of mikil lausamennska í þessu, að þm. hlaupi til og frá og þar af leiðandi verði mjög mikið af varamönnum hverju sinni, en eins og kunnugt er, þegar varamaður kemur inn, þá verður hann að vera a. m. k. tvær vikur. Ég vildi leyfa mér að beina þessu til hæstv. forseta og biðja hann um, að forsetarnir tækju slíkt til athugunar.