11.11.1971
Sameinað þing: 13. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (2690)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Axels Jónssonar bæjarfulltrúa í Kópavogi, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi. Kjörbréfið er gefið út í dag og undirritað af formanni yfirkjörstjórnar, Guðjóni Steingrímssyni. N. leggur einróma til að kosning Axels Jónssonar sé metin gild og kjörbréfið samþykkt.