16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2494 í B-deild Alþingistíðinda. (2693)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Eins og fram kom í bréfi því, sem hæstv. forseti las hér upp áðan, þá hefur 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Axel Jónsson, orðið að leggjast á sjúkrahús og óskað eftir því, að 2. varaþm. flokksins í kjördæminu taki sæti hans á meðan.
Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Ingvars Jóhannssonar framkvæmdastjóra, og mælir með því, að kosning hans verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.