08.12.1971
Efri deild: 24. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

86. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Frsm. meiri hl. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Segja má, að áratugum saman hafi djúpstæður ágreiningur verið í íslenzkum stjórnmálum um hagstjórnarkerfið í þjóðarbúskap Íslendinga. Vinstri flokkar, sem aðhyllzt hafa sósíalísk viðhorf, hafa beítt sér fyrir áætlanagerð og áætlunarbúskap, og verklýðssamtök hafa löngum aðhyllzt slíka stefnu, en hægri öflin hafa löngum spyrnt á móti og hrópað aðvörunarorð í nafni einkaframtaks og einstaklingshyggju. Sé horft um öxl, er augljóst, að heildarþróun þessara mála hefur gengið nokkuð í rykkjum. Annars vegar hefur miklu ráðið, hverjir hafa verið við stjórn og hvort hægrisinnuð eða vinstrisinnuð öfl hafa ráðið ferðinni í aðalatriðum. Hins vegar má fullyrða, að pólitísk sjónarmið, þ.e. valdahlutföll hægri og vinstri stefnu, hafi þó ekki verið í sjálfu sér einráð hvað þetta snertir, því að oft hafa borgaralegir flokkar stutt hugmyndir um skipulagningu og áætlanagerð. Það hefur þó fyrst og fremst verið, þegar miklir efnahagslegir erfiðleikar hafa steðjað að þjóðinni, svo sem heimskreppa, markaðshrun, aflabrestur og annað þess háttar, að hugmyndum um gildi skipulagningar og áætlanagerðar hefur verið gefinn sérstakur gaumur og menn hafa séð þýðingu þess, að samfélagið reyndi að gernýta þá takmörkuðu fjármuni, sem það hefur úr að spila. En oftast hefur farið svo, að þegar hretið var gengið yfir, hefur þessi hugsun gleymzt og allt sótt aftur í sama faríð.

Fyrsta og veigamesta tilraunin til skipulagningar og áætlanagerðar hér á landi var tvímælalaust gerð árið 1934 með skipun nefndar, sem bar heitið skipulagsnefnd atvinnumála. Sú nefnd átti að hafa með höndum rannsókn á fjármálum ríkis og þjóðar eða hvers konar atvinnurekstri í landinu, framkvæmdum og framleiðslu, og sú rannsókn átti jafnt að ná til atvinnureksturs ríkis og bæja og einstakra manna og félagsfyrirtækja. Að þessari rannsókn lokinni átti nefndin að leggja fram rökstuddar tillögur, og sem nákvæmastar áætlanir um aukinn atvinnurekstur, framkvæmdir og framleiðslu í landinu, þ. á m. stofnun nýrra atvinnugreina, svo og um það, hvernig komið yrði föstu skipulagi á allan þjóðarbúskapinn, jafnt opinberar framkvæmdir og fyrirtæki sem atvinnurekstur einstaklinga, þannig að þau yrðu rekin sem hagkvæmast með hag almennings fyrir augum. Þessi orð eru úr skipunarbréfi skipulagsnefndar atvinnumála, og þarna er orðrétt tekið fram, að byggja eigi upp svo nefnt „planökonomi“. Án þess að fara Lengra út í þessa sálma er ljóst, að hér var um mjög víðtækt verkefni að ræða, og má segja, að þarna hafi verið um umfangsmikil afskipti ríkisvaldsins af atvinnulífi landsmanna að ræða, enda stóð ekki á því, að hægri öflin rækju upp sitt ramakvein yfir þeim sósíalísku úrræðum, sem hér átti að beita og jöðruðu að áliti íhaldsmanna þeirra tíma við hinn argasta bolsévisma. Þessi nefnd starfaði í mörg ár og hlaut viðurnefnið „Rauðka“, eins og kunnugt er. Óhætt er að fullyrða, að starfsemi „Rauðku“ hafði mjög örvandi og bætandi áhrif á íslenzkt atvinnulíf á sínum tíma, enda var þá í fyrsta sinn hreyft ýmsum stórmálum, sem sum komust þá þegar í framkvæmd, en önnur voru ekki tekin á dagskrá fyrr en alllöngu síðar.

Því miður lagðist sú áætlunarvinna, sem „Rauðka“ hafði komið af stað, niður, þegar styrjöldin skall yfir og atvinnuleysið hvarf úr sögunni og þau algjöru umskipti urðu vegna ytri aðstæðna úr erfiðleikum krepputímans til meiri velmegunar en nokkur dæmi eru til um áður í sögu þjóðarinnar. Áhugi á skipulagningu og áætlanagerð dvínaði stórum, fólksflótti úr strjálbýli til Faxaflóasvæðisins margfaldaðist með tilheyrandi nýjum vandamálum. Það var eiginlega ekki fyrr en í lok styrjaldarinnar, þegar Íslendingar áttu mikinn óeyddan þjóðarauð og komin var til valda ný ríkisstjórn, sem að nokkru leyti var skipuð róttækum flokkum með sósíalíska stefnuskrá, að aftur var farið að hugsa um skipulögð vinnubrögð við nýbyggingu og endurnýjun framleiðslutækja. Nýbyggingaráð, sem þá var stofnað og hafði með höndum áætlanagerð í uppbyggingarstarfinu fyrst eftir styrjöldina, tók tvímælalaust ýmsar merkar ákvarðanir, en það varð heldur skammlíft, og við tók fjárhagsráð á árinu 1947. Meginhlutverk þess var þó raunverulega aldrei áætlanagerð, heldur má segja, að aðalhlutverk þess hafi verið að halda hjólum efnahagslífsins gangandi á erfiðleikatímum, með ýmiss konar skömmtunarstarfsemi og höftum. Fjárfestingareftirlit var þá nokkuð nákvæmt og það ítarlegt, að flestum mun nú þykja nóg um, ef litið er til baka, enda voru þetta sérstakir erfiðleikatímar, en eiginleg áætlanagerð fór ekki fram á vegum fjárhagsráðs. Ráðið var svo lagt niður árið 1953, og þá kemur alllangt hlé í starfsemi af þessu tagi.

Á tímum vinstri stjórnarinnar voru uppi ráðagerðir um áætlanagerð, en segja má, að skoðanir hafi verið nokkuð skiptar um, hvernig ætti að hefja það starf, og stjórninni vannst ekki tími til þrátt fyrir vilja að koma á fót stofnun til skipulagningar áætlanagerðar. Alþb. og fulltrúar þess á Alþ. voru þeirrar skoðunar á þessum tíma og hreyfðu þeim skoðunum, að fela ætti Seðlabankanum að standa fyrir áætlanagerð til að byrja með og lögðu beinlínis til, að bankastjórn Seðlabankans yrði falin yfirstjórn áætlanagerðar. Af því varð þó ekki, en ótvírætt má segja, að á þeim tíma sem vínstri stjórnin starfaði, hafi ýmislegt undirbúningsstarf verið unnið að áætlanagerð, en hins vegar féll það í hlut ríkisstj. Sjáifstfl. og Alþfl. að koma upp svo nefndri Efnahagsstofnun með samkomulagi Framkvæmdabankans og Seðlabankans í ágúst 1967, en þeir gerðu sem sagt samkomulag við ríkisstj. um stofnun Efnahagsstofnunar, og hún hefur nokkuð unnið að áætlunarmálum, þótt kannske hafi þar orðið minna úr en vonir stóðu til. Ég vil samt undirstrika, að Efnahagsstofnunin hefur óneitanlega unnið þýðingarmikið starf á sviði áætlanagerðar. Jafnframt held ég, að við getum orðið sammála um, að áætlanagerð sú, sem þar hefur farið fram, hefur verið á algjöru frumstigi.

Árið 1961 var hafinn undirbúningur þjóðhags- og framkvæmdaáætlunar, sem átti að vera fyrir árin 1962–1967, en varð fyrir árin 1963–1966, og áætlun þessi var mjög almenns eðlis og raunverulega aðeins lausleg spásögn um þróun efnahagslífsins, sett fram í nokkrum talnatöflum, en sú áætlun var raunverulega ekki í neinum tengslum við aðrar smærri áætlanir á afmörkuðum sviðum, og mér er nær að halda, að þó að kannske megi ekki algjörlega líta fram hjá mikilvægi þessa fyrsta spors, þá hafi sú áætlun orðið að heldur takmörkuðu gagni. Áætlanir af þessu tagi féllu svo algjörlega niður og önnur langtímaáætlun hefur ekki verið gerð síðan. Að öðru leyti hefur Efnahagsstofnunin unnið í samvinnu við aðra aðila að framkvæmda- og fjáröflunaráætlunum fyrir ríkissjóð og fyrir ríkisstofnanir til eins árs í senn í tengslum við fjárlög, eins og kunnugt er, og stigin hafa verið fyrstu skrefin að undirbúningi áætlana um þróun og framkvæmdir í einstökum landshlutum, þó að þar hafi sem sagt enn verið um heldur frumstæða áætlanagerð að ræða.

Samkvæmt upplýsingum Efnahagsstofnunarinnar vinna aðeins þrír menn í dag beint að áætlanagerð í áætlanadeild Efnahagsstofnunarinnar. Sú deild hefur það verkefni að undirbúa framkvæmdaáætlanir opinbera geirans, einkum samgönguframkvæmda, undirbúa landshlutaáætlanir og sérverkefni varðandi ríkisstofnanir og vinna að mannfjölda- og mannaflaáætlunum, og þar hafa sem sagt starfað í fyrsta lagi deildarstjóri, sem hefur fjallað um almennar landshluta- og framkvæmdaáætlanir, í öðru lagi sérfræðingur við samgönguáætlanir og hagrænar athuganir samgöngumála og í þriðja lagi sérfræðingur, sem unnið hefur að mannfjölda- og mannaflaskýrslum og spá og rannsakað félagslega aðstöðu og tekjumál einstakra landshluta. Það er óhætt að segja, að starfsemi, sem ekki hefur verið meiri og stærri í sniðum en þessi starfsemi, hefur auðvitað ekki getað náð ýkja langt.

Með stofnun og uppbyggingu Framkvæmdastofnunar ríkisins er tvímælalaust stigið stærra spor til aukinnar áætlanagerðar og heildarstjórnar á þjóðarbúskapnum en nokkru sinni fyrr um margra áratuga skeið. Það er ætlunin að hverfa frá handahófsvinnubrögðum og happa- og glappastefnu fráfarandi stjórnar í atvinnumálum og taka upp hagstjórnaraðferðir, sem að vísu óneitanlega bera nokkurn keim af sósíalískum úrræðum, eins og hvers konar áætlanagerð hlýtur að gera. Það er einmitt þess vegna, sem Sjálfstfl. sér rautt, þegar hann lítur þetta frv., líkt og fyrirrennarar þeirra sjálfstæðismannanna, íhaldsmennirnir, fyrir 37 árum sáu rautt, þegar skipulagsnefnd atvinnumála sá dagsins ljós, og það er af sömu ástæðu sem Alþfl. hefur tekið þá gleðilegu ákvörðun að styðja þetta frv., minnugur uppruna sins og sósíalískrar grundvallarstefnu sinnar.

Það, sem mestu máli skiptir, er, að hér er stefnt að því að sameina tvo mikilvægustu þættina í stjórn efnahagsog atvinnumála, annars vegar alhliða áætlanagerð um þróun atvinnulífsins, hins vegar eftirlit og yfirstjórn fjárfestingarmála. Með því að taka föstum tökum bæði þessi vanræktu viðfangsefni í einni sameiginlegri stofnun gefst ótvírætt tækifæri til þess að hraða uppbyggingu íslenzkra atvinnuvega til þess að tryggja jafna og fullkomna atvinnu um land allt og til að tryggja, að tiltækt fjárfestingarfjármagn renni fyrst og fremst til þjóðhagslegra og arðbærra framkvæmda.

Fjhn. hefur haft til athugunar frv. til l. um Framkvæmdastofnun ríkisins. N. hefur kvatt á sinn fund nokkra aðila til ráðagerða um einstök atriði þessa frv. Forstjóri Efnahagsstofnunarinnar, Bjarni Bragi Jónsson, og Jón Sigurðsson hagrannsóknastjóri, sem ber það heiti, deildarstjóri hagdeildar Efnahagsstofnunarinnar, hafa mætt á nefndarfundi og gert grein fyrir sjónarmiðum sínum og svarað fsp. Einnig hafa seðlabankastjórarnir, Jóhannes Nordal og Davíð Ólafsson, komið á fundi n. og veitt ýmsar gagnlegar upplýsingar og ábendingar.

N. hefur hins vegar ekki orðið sammála um afgreiðslu þessa frv., og meiri hl. fjhn. flytur brtt. við frv., um leið og hann mælir með samþykkt þess, annars vegar brtt. á þskj. 154 og hins vegar nál. á þskj. 153. Ég vil nú víkja að þessum brtt. örfáum orðum og vík þá fyrst að fyrstu brtt. sem meiri hl. fjhn. gerir við 4. gr. frv.

Eins og kemur skýrt fram í frv., þá er gert ráð fyrir því, að auk stjórnar, sem hefur með höndum almenna heildarstjórn á stofnuninni, verði dagleg stjórn í höndum þriggja manna framkvæmdaráðs. Hins vegar segir ekkert um það í gr., til hve langs tíma framkvæmdaráð skuli skipað, og hefur því þótt rétt að bæta þar úr með viðbót við 4. gr. Eins og skýrt kom fram í framsöguræðu hæstv. forsrh., þá er ráð fyrir því gert og engin launung á því, að þetta þriggja manna framkvæmdaráð verði skipað sérstökum trúnaðarmönnum ríkisstj., og það gegnir sem sagt nokkru öðru máli um skipan þess en um skipan embættismanna almennt, sem eiga rétt til þess að gegna störfum sínum, meðan heilsa þeirra og kraftar leyfa, og þess vegna þykir n. rétt að bæta við setningu í 4. gr. frv. um það, á hvern hátt framkvæmdaráð verði leyst frá störfum. Það er gert ráð fyrir því, að það verði gert með mánaðar fyrirvara, en vegna þess að segja má, að í þessu sé nú lítið atvinnuöryggi fólgið, þá þykir eðlilegt, að framkvæmdaráðsmenn eigi rétt til óskertra launa eins og nú má heita venja í slíkum tilvikum í a.m.k. þrjá mánuði.

Í seinni hluta brtt. er að því stefnt, að Framkvæmdastofnunin hafi sjálfstætt launakerfi líkt og er um ýmsar ríkisstofnanir af svipuðu tagi, svo sem Seðlabanka og Efnahagsstofnun, og því er gert ráð fyrir, að stjórn Framkvæmdastofnunarinnar taki ákvörðun fyrir hönd stofnunarinnar um launakjör framkvæmdaráðs, forstöðumanna deilda og annarra starfsmanna, en að það sé ekki beint tengt launakerfi ríkisins og opinberra starfsmanna.

Við 5. gr. frv. hefur smávægileg brtt. verið lögð fram af hálfu meiri hl. n., en þar er gert ráð fyrir því, að þegar starfsfólk er ráðið að stofnuninni, eigi forstöðumenn deilda tillögurétt um þær ráðningar.

Við 11. gr. frv. hefur verið gerð svolítil viðbótartillaga á þá leið, að ríkisstj. gefi Alþ. árlega skýrslu um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins, og virðist það nú ekki þurfa frekari skýringa eða rökstuðnings með.

Við 12. gr. frv. hefur verið gerð brtt., en þar stóð, að Framkvæmdastofnunin gæti sett almennar reglur um, hvers konar framkvæmdir skyldu hafa forgang umfram aðrar, og skyldu þá opinberir sjóðir og lánastofnanir haga lánveitingum í samræmi við það. Í fyrsta lagi hefur verið gerð sú orðalagsbreyting, að tekin eru öll tvímæli af um það, að það er stjórn stofnunarinnar, sem getur sett þessar almennu reglur. Í öðru lagi er orðaröð hnikað til á þann veg, að gr. eigi við lánastofnanir almennt og við opinbera sjóði, en það þótti ekki nægilega ótvírætt af fyrra orðalagi. Í þriðja lagi hefur svo einni setningu verið bætt framan við þessa málsgr. á þá leið, að lánastofnanir og opinberir sjóðir veiti Framkvæmdastofnuninni yfirlit um lánveitingar til fjárfestingar og framkvæmda eftir nánari reglum, sem stjórn Framkvæmdastofnunarinnar setur. Ég geri ráð fyrir því, að menn þurfi ekki mikla útskýringu á því, hvers vegna þessi brtt. er gerð. Það liggur í augum uppi, að forsenda þess, að stjórn stofnunarinnar geti sett almennar reglur um það, hvers konar framkvæmdir skuli hafa forgang umfram aðrar, er, að fram fari nokkur upplýsingasöfnun um það, hvaða framkvæmdir séu í gangi og hvaða lánveitingar séu fyrirhugaðar eða hafi átt sér stað, og að þetta verði stofnunin að hafa til hliðsjónar, til þess að hún eigi þess kost að marka stefnu og setja almennar reglur á þessu sviði.

Við 13. gr. hefur verið gerð lítils háttar brtt., sem er ekki fólgin í öðru en breytingu á seinustu setningu fyrri mgr. 13. gr., en breytingin er á þá leið, að í staðinn fyrir að leita skuli samráðs við Rannsóknaráð ríkisins er gerð till. um það, að leita skuli umsagnar Rannsóknaráðs ríkisins og viðkomandi rannsóknastofnana. Er að sjálfsögðu ljóst, við hvað átt er í þeim tilvikum, það eru svo að nefnd séu dæmi Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun iðnaðarins o.s.frv.

Á 18. og 19. gr. hafa verið gerðar nokkrar breytingar, sem fyrst og fremst verða að teljast tæknilegs eðlis og fela ekki í sér neina efnislega breytingu. Svo sem raunverulega er ljóst af orðalagi 18. gr., eins og hún var í frv., þegar það var lagt fyrir hv. d., þá er hér um að ræða sama sjóðinn og starfað hefur undir nafninu Framkvæmdasjóður Íslands, og það er ekki raunverulega ætlunin, að þarna verði um breytingu að ræða, þannig að nýr sjóður taki við af fyrri sjóði. Það er ætlunin, að Framkvæmdasjóður Íslands, eins og hann er og starfar í dag, flytjist í heilu lagi, með öllum sínum réttindum og sínum skyldum, inn í Framkvæmdastofnun ríkisins úr því umhverfi sem hann er í nú, þ.e. hjá Seðlabanka Íslands, og það er ekki ætlunin, að þarna verði um neina eðlisbreytingu að ræða. Virðist því vera óeðlilegt orðalag á 18. gr., eins og hún liggur fyrir, og eins á 19. gr., og væri mjög óheppilegt að orða þetta á þennan veg, því að með því er verið að gefa í skyn, að um breytingu á sjóðnum sé að ræða og nýr sjóður hafi tekið við, en það mundi hafa það í för með sér, að tilkynna yrði öllum lánardrottnum og væntanlega skuldunautum líka, að nýr sjóður hefði tekið við af hinum fyrri. Ég held, að orðalag á þessum gr., eins og þær liggja fyrir í frv., hljóti að byggjast á einhverjum misskilningi, og reyndar er mér kunnugt um, hvernig hann er til kominn, en hirði nú ekki um að rekja það hér. Aðalatriðið er, að þarna er um misskilning að ræða, og n. gerir till. um það, að 18. gr. breytist þannig, að hún verði orðuð svo:

„Framkvæmdasjóður Íslands (á ensku The Development Fund of Iceland), sem stofnaður var með lögum nr. 66 13. maí 1966, er eign ríkisins. Tekur Framkvæmdastofnun ríkisins við stjórn hans, sbr. 5. tl. 3. gr., svo og umsjá allri og rekstri:“

Með þessari breyt. á 18. gr. virðist algjörlega mega fella niður 1. mgr. 19. gr.

Við 24. gr. hefur verið gerð svolítil orðalags- og efnisbreyting, sem virðist þó ekki skipta ýkja miklu máli. Sú grein fjallar um heimild stjórnarinnar til þess að ráðstafa fé úr sjóðnum til nýjunga í atvinnulífi, og er þar átt við rannsóknir á nýjungum í atvinnulífinu. í 24. gr. í frv., eins og það liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að ráðstafa megi allt að heimingi árlegs tekjuafgangs, og þótti n. óeðlilegt að binda þetta á þennan veg, og leggur hún til, að þessu verði sleppt, þ.e. þessari takmörkun, um leið og það sé skýrt tekið fram, að þarna sé um að ræða fé til rannsókna á nýjungum í atvinnulífinu, en ekki beinlínis lán til nýjunga. Og er mér nær að halda, að orðið „rannsóknir“ hafi fallið niður í meðferð frv., frá því að það fór frá nefndinni, sem undirbjó það, og þar til að það kom hér inn í þingið. Hvað snertir umsagnir í þessu tilviki hefur verið gerð lítils háttar breyting, og er hún í svipuðum anda og hin fyrri breyting hvað 13. gr. snertir, að leita skal umsagnar viðkomandi rannsóknastofnana eða Rannsóknaráðs ríkisins, eftir því sem við á.

N. hefur gert lítils háttar brtt. við 29. gr., og er þar einungis um litla viðbót að ræða, þ.e. orðin „og til að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum.“ Það kemur fram í gr., eins og hún var fyrir, að það er hlutverk Byggðasjóðs að veita fjárhagslegan stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulífs með hliðsjón af landshlutaáætlununum, en þetta viðbótarorðalag þótti gefa sjóðnum svolítið rýmra athafnasvið, og var það samróma álit nm., að þessi brtt. væri til bóta.

Við 31. gr. hefur verið gerð lítils háttar lagfæring, og er hún einungis í því fólgin, að sú greiðsla, sem sjóðnum er heimilað að greiða landshlutasamtökum sveitarfélaga, er ekki bundin því skilyrði, að þau ráði sér sérmenntaðan starfsmann til starfa, heldur einungis rætt um, að þau skuli hafa starfsmann í þjónustu sinni, sem vinni að undirbúningi og gerð áætlana fyrir viðkomandi landshluta í samvinnu við áætlanadeild. Þetta orðalag þótti of óljóst og að það væri ekki ótvírætt, hvað átt væri við, þegar um væri að ræða sérmenntaðan mann, undirbúning og gerð landshlutaáætlana. slíkir menn munu ekki vera á hverju strái, sem sérmenntazt hafa í slíku starfi.

Hvað snertir 38. gr., sem n. gerir fáeinar brtt. við, er þar einungis um tæknileg atriði að ræða. Í ýmsum lögum er getið um það, að Efnahagsstofnunin skuli skipa menn í stofnanir. T.d. er Efnahagsstofnuninni ætlað að skipa fulltrúa í Rannsóknaráð ríkisins, og verður að setja í lögin ákvæði um, að það sé stjórn Framkvæmdastofnunarinnar, sem annist úrlausn slíkra verkefna. Eins er það verkefni yfirmanns hagrannsóknadeildar, sem nefnist hagrannsóknastjóri, samkv. þeim samningum, sem í gildi eru í dag um Efnahagsstofnunina, en sá maður hefur með höndum starf oddamanns í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins. Já, ég biðst nú afsökunar, en þetta er reyndar misskilningur hjá mér eða misminni. Mér er nær að halda, og það mun vera nokkuð öruggt, að það er forstjóri Efnahagsstofnunarinnar, sem hefur það starf með höndum að vera oddamaður í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins. — En það er till. n., að það verði forstöðumaður hagrannsóknadeildar eða fulltrúi hans, sem gegnir þessu starfi, eftir að breyting hefur verið gerð.

Sé ég svo ekki ástæðu til þess að fara frekari orðum um brtt. meiri hl. fjhn. Ég vil hins vegar víkja örfáum orðum að þeim brtt., sem minni hl. n. hefur lagt hér fram, en meiri hl. hefur ekki getað fallizt á.

Í fyrsta lagi er það brtt. frá Jóni Árm. Héðinssyni þess efnis, að framkvæmdaráð Framkvæmdastofnunarinnar skuli skipað forstöðumönnum deilda, og er þá átt við forstöðumenn hagrannsóknadeildar, áætlanadeildar og lánadeildar. Ég vil undirstrika það, að þó að meiri hl. fjhn. hafi ekki getað fallizt á að binda skipun framkvæmdaráðs með þessum hætti, þá er það að sjálfsögðu svo, að í frv. er ekkert, sem hindrar það, að ríkisstj. skipi einhvern af forstöðumönnum deilda, ef ekki þá alla, í þetta framkvæmdaráð. Það er þeim algjörlega opið, og það verður að metast af ríkisstj., hverja hún telur eðlilegast að skipa í framkvæmdaráðið út frá þeim sjónarmíðum, sem hún hefur í huga, og við, sem skipum meiri hl. fjhn. í þessu máli teljum ástæðulaust að binda þetta á þennan hátt.

Hvað snertir brtt. frá minni hl. fjhn., hv. þm. Geir Hallgrímssyni og Halldóri Blöndal, þá er þar fyrst til að taka, að gert er ráð fyrir því, að felld verði niður 3. gr. 6. tölul., en að Byggðasjóður verði undir sérstakrí stjórn, eins og reyndar kemur fram í 5. brtt., en um þetta atriði var fjallað af hæstv. forsrh., þegar frv. var lagt fram, og sé ég nú ekki ástæðu til að bæta þar neinu við. Það hefur sem sagt þótt ákjósanlegra að hafa skipulag þessarar stofnunar sem einfaldast. Sú er ástæðan til þess, að bæði Byggðasjóður, Framkvæmdasjóður og stofnunin í heild lúta einni stjórn.

Önnur till. er snertir það sama og till. Jóns Árm. Héðinssonar, og þarf ég ekki að endurtaka það.

Þriðja till. gerir ráð fyrir því, að hagrannsóknadeild verði felld út úr frv. og út úr þessari stofnun, og geri ég þá ráð fyrir því, að undanskilið sé, að sett verði á fót önnur stofnun, sem gegni hlutverki hagrannsóknadeildar, úr því að ekki er gerð brtt. við 39. gr. frv. um það, að Efnahagsstofnunin skuli lögð niður, eins og þar er gert ráð fyrir. Ég geri þar af leiðandi ráð fyrir því, að tillögumenn ætlist til þess, að komið verði á fót sérstakri stofnun, sem hafi með höndum verkefni hagrannsóknadeildar,.og á það hefur meiri hl. fjhn. ekki getað fallizt. Það sjónarmið varð ofan á hjá meiri hl. líkt og hjá ríkisstj., þegar hún lagði fram þetta frv., að það væri mikils virði að gera skipulag þessara mála sem einfaldast og hafa stofnanirnar frekar eina heldur en tvær, og ég sé nú satt að segja ekki, að það skipulag, sem hér hefur verið valið, hafi þá annmarka, að það réttlæti það, að þessi skipting fari fram. Ég álít, að þau verkefni, sem falin eru hagrannsóknadeild, sem eru m.a. ýmiss konar skýrslugerð og gagnasöfnun fyrir t.d. aðila atvinnulífsins og fyrir ýmsa aðila, eigi að geta farið fram í þessari stofnun óáreitt og verið framkvæmd með hlutlausum hætti, enda þótt deildin sem slík falli inn í stofnunina sem heild. Ég vil hins vegar undirstrika það, að með því að slíta þessa deild út úr stofnuninni væri talsvert óþurftarverk unnið og hætt við, að starfsemi stofnunarinnar sem slíkrar yrði mjög raskað. Það er gert ráð fyrir því í frv., eins og það liggur hér fyrir, að áætlanir til langs tíma um þróun þjóðarbúsins skuli gerðar í hagrannsóknadeild, og sér hver maður, að með því að slíta deildina út úr stofnuninni yrðu um leið slitin tengslin á milli þessa starfs, þ.e. vinnu að áætlun til langs tíma, og svo hins vegar þeirra áætlana, sem ætlazt er til, að áætlanadeildin vinni að, og það væri áreiðanlega ekki heppilegt að slita þannig í sundur þessa starfsemi, sem er að vísu aðskilin þarna í tveimur deildum, en verður að vinnast í samhengi. Eins er um það, að fjölmargt það, sem lánadeild og áætlanadeild koma til með að vinna að, verður að undirbúa í hagrannsóknadeild, og það væri ótvírætt mikið óhagræði að því að flytja það starf yfir í allt aðra og nýja stofnun. Ég held nú, að þessi brtt. sé ein veigamesta brtt., sem minni hl. n. gerir till. um, en ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um það atriði.

Minni hl. hefur einnig gert till. um það, að 3. málsgr. 12. gr. verði felld niður. Meiri hl. hefur hins vegar gert allmiklar breytingar á þeirri gr., en getur ekki á þetta fallizt.

Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja grg. n. frekar.