21.12.1971
Efri deild: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2527 í B-deild Alþingistíðinda. (2805)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér af hálfu hv. þdm. að þakka hlý orð og góðar óskir í okkar garð, sem hæstv. forseti flutti. Ég vil af hálfu okkar þakka forseta fyrir góða samvinnu og réttláta og réttsýna fundarstjórn. Ég flyt honum og fjölskyldu hans af hálfu okkar beztu óskir um gleðiríka jólahátíð og gæfuríkt komandi ár og læt þá ósk í ljós, að við megum hitta hann heilan, glaðan og reifan að þinghléi loknu.

Til staðfestingar þessum orðum mínum vildi ég mega biðja hv. þdm. að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]