21.12.1971
Neðri deild: 34. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2527 í B-deild Alþingistíðinda. (2807)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (GilsG):

Þar sem þetta verður síðasti fundur hv. Nd. fyrir jól og áramót, leyfi ég mér af því tilefni að þakka af heilum hug hv. þdm. öllum gott og ánægjulegt samstarf á árinu, sem nú er senn á enda runnið. Ég met mikils það umburðarlyndi, sem mér hefur verið sýnt sem forseta, nýliða í því starfi. Að loknu hinu mikla annríki síðustu daga er mér ljúft að flytja hv. þdm. sérstakar þakkir og þá hv. stjórnarandstæðingum ekki síður en stjórnarsinnum fyrir tillitssemi og beina aðstoð við sem snurðuminnsta framvindu þingstarfa þessa síðustu daga.

Þá þakka ég skrifstofustjóra Alþingis mikilvægt liðsinni og honum og öllu starfsfólki þingsins ágætt samstarf. Ég óska hv. þdm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, svo og starfsfólki Alþ. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar. Ég vil láta í ljós þá von, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing kemur aftur saman á nýju ári.