20.05.1972
Sameinað þing: 77. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2532 í B-deild Alþingistíðinda. (2826)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Alþingi, 92. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, laugardaginn 20. maí 1972. Gert í Reykjavík, 20. maí 1972.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég hef nú lesið, lýsi ég því yfir, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég óska þm. og fjölskyldum þeirra velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og gleðilegrar hátíðar, sem nú fer í hönd, og hið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Ólafur Jóhannesson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.