16.03.1972
Neðri deild: 52. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (2845)

44. mál, almannatryggingar

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. heilbr.- og félmn. fyrir afgreiðslu á þessu máli, enda þótt ég hefði nú vænzt þess, að hv. n. kynni að geta fallizt á þau rök, sem fram koma í grg. fyrir frv. Að hinu leytinu verð ég að viðurkenna, að það er eðlileg afstaða hjá n., þar sem tryggingakerfið er í endurskoðun, og að það sé rétt að vísa málinu nú til ríkisstj. Ég legg verulega mikið upp úr því, að hér er sagt fortakslaust, að málinu sé vísað til ríkisstj. í trausti þess, að það fái jákvæða afgreiðslu. Ég met þetta á þann veg, ef þessi till. verður samþykkt á þann veg, að d. sé virkilega jákvæð í afgreiðslu málsins. Eins og málum er nú komið í þessu efni, þá verður ekki lengra komizt að sinni, að felst að mínu mati í þessu mjög mikilvæg viðurkenning á því, að hér sé um mikið réttlætismál að ræða.