22.03.1972
Efri deild: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í C-deild Alþingistíðinda. (2868)
228. mál, fiskvinnsluskóli
Jón Árnason:
Herra forseti. Í sambandi við umr. um þetta mál vil ég víkja að því, sem fram kom, þegar lög um fiskvinnsluskóla voru hér samþ. á sínum tíma. Þá var vissulega rætt um það, að ýmsir aðrir staðir en Reykjavík kæmu til greina fyrir staðsetningu skólans. Þá voru auk þess sem var samþ. löggjöf um sjálfan fiskvinnsluskólann, bæði hér í Reykjavík og í Vestmannaeyjum, einnig tilgreindir tveir staðir sérstaklega, Suðurnesin annars vegar og Akranes hins vegar, þar sem skyldi leggja áherzlu á, að á árunum 1972–1975 skyldi undirbúa og koma á fót fiskvinnsluskóla 1. og 2. stigs. Það er nú, sem betur fer, þannig með fleiri en eina verstöð í okkar landi, að þær hafa að bjóða margvísleg skilyrði til þess, að þar sé slíkur skóli sem hér er um að ræða. Á Akranesi t. d. eru, að ég hygg, allar greinar fiskvinnslunnar, sem um er að ræða hjá okkur. Við höfum niðursuðu, við höfum síldar- og fiskmjölsverksmiðju, við höfum hraðfrystingu, við höfum saltfiskverkun og annað þess háttar. Við höfum sem sagt fiskvinnslu á öllum sviðum, sem um er að ræða í nýtingu sjávarafurða, sem nú eru þekktar hjá okkur hér á landi. Það eru fleiri staðir eða slíkar verstöðvar úti um landið, sem vissulega uppfylla þessi skilyrði, en ég tók hér fyrst og fremst til máls til þess að leggja áherzlu á það, að stjórnvöld standi við það, sem kveðið er á um í þessum lögum, en ekki til þess að fara að metast um það, hvar þessi fiskvinnsluskóli sem samkv. þessu frv. er lagt til að verði á Ísafirði, verður endanlega staðsettur.
Það má segja, að það sé merkilegt fyrir þjóð eins og Íslendinga, hvað það hefur dregizt um langan tíma, að við sinntum meira verzlunar- og skólamálum fiskiðnaðarins en raun ber vitni, — þjóð, sem á jafnmikið undir því komið, að full og góð nýting sé á sjávarafurðum, sem hafa verið 80–90% af verðmæti þeirrar útflutningsvöru, sem þjóðin hefur haft mörg undanfarin ár og áratugi. Ég vil segja, að eins og fram kemur í 1. gr. laganna, þar sem talað er um að undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla 1. og 2. stigs á Suðurnesjum, Akranesi og í stærstu fiskiðnaðarstöðum í öðrum landshlutum, sé þetta, ef við þetta verður staðið og að því stefnt, merkilegt mál út af fyrir sig, það eigi eftir að hafa mjög góð og giftudrjúg áhrif í þessum málum hjá okkar þjóð. Ég vil því sérstaklega leggja áherzlu á það, að ríkisstj. vinni samkv. þessum lögum, og þar sem nú er komið árið 1972, þá byrji hún að vinna að því að undirbúa, að stofnsettir verði þeir fiskvinnsluskólar, sem um getur í 1. gr. laganna og, eins og ég þegar hef sagt, ber að vinna að á árunum 1972–1975.
Að sjálfsögðu er hér um mikið fjárhagsmál að ræða, og bylting í þessum efnum verður vart gerð á örfáum árum. En það ber að hefja þessar framkvæmdir, að stofnsetja þessa skóla í hinum ýmsu fiskvinnslustöðum. Vissulega er það rétt, sem síðasti hv. ræðumaður gat um hér áðan, að að sjálfsögðu verður að líta á það, hvernig aðstaðan er í hinum ýmsu sjávarplássum með það, hvað verður látið sitja í fyrirrúmi. Ég tel t. d., að auk Akraness sé í Vesturlandskjördæmi sérstaklega nauðsynlegt að koma upp einum skóla á Snæfellsnesi. Þar eru, sem kunnugt er, í röð inn með Breiðafirði fjórar verstöðvar, en þaðan á sér stað mikil útgerð á hverju ári. Þarna hafa á undanförnum árum verið námskeið fyrir skipstjóraefni og vélstjóra og aðra slíka, og hefur það greitt fyrir í þeim efnum, sem við koma útgerðinni. En vissulega væri mikil þörf á að koma þar á stofn fiskvinnsluskólum, þó ekki væri nema 1. og 2. stigs, eins og þessi lög gera ráð fyrir, að verði á Akranesi.
Ég vil því að lokum endurtaka það og vænta þess, að ríkisstj. muni beita sér fyrir því, að lög þau, sem hér um ræðir, nr. 55 frá 15. apríl 1971, komi sem fyrst til framkvæmda.