08.12.1971
Neðri deild: 23. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í C-deild Alþingistíðinda. (2874)
114. mál, námulög
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson) :
Herra forseti. Hér er um frv. að ræða, sem er endurflutt, var flutt á síðasta þingi og hefur því legið fyrir Alþ. Hér er um frv. að ræða á vegum iðnrn. Ég verð nú að játa það, að ég er ekki ýkja kunnugur efni frv., en vildi í forföllum iðnrh. mæla hér fyrir frv. og óska eftir því, að það gangi til n. og fái þar sína athugun. Frá því er skýrt í aths. frv., að frv. hefur verið samið af þeim Árna Snævarr ráðuneytisstjóra, Gizuri Bergsteinssyni hæstaréttardómara og Þórði Eyjólfssyni fyrrv. hæstaréttardómara, og þeir gera hér grein fyrir ýmsum meginatriðum í sambandi við þetta mál í grg. frv., bæði þeim stefnum, sem gildandi hafa verið varðandi þessi mál hér á landi frá fornu fari, og eins meginstefnum, sem um þessi mál eru ríkjandi í öðrum löndum.
Það er enginn vafi á því, að það er orðin mikil þörf á því, að sett séu hér skýr lagaákvæði varðandi námuréttindi, og að því er stefnt með þessu frv. að marka þar skýra stefnu í meginatriðum, en efnislega mun ég ekki rekja þetta, því að ég er ekki nægilega kunnugur málinu til þess, og vænti, að hv. þm. kynni sér málið, eftir því sem tök eru á, og að sú n., sem fær málið til athugunar, kanni það gaumgæfilega, svo að hægt verði þá hér við 2. umr. málsins að ræða málið meir efnislega en tök eru á í rauninni af minni hendi hér við 1. umr.
Ég hef þessi orð mín svo ekki fleiri, en óska eftir því, að málið að lokinni 1. umr. gangi til hv. allshn. til athugunar.