26.04.1972
Neðri deild: 66. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (2898)

154. mál, fiskeldi í sjó

Frsm. (Garðar Sigurðsson) :

Herra forseti. Hér er til 3. umr. frv. til l. um fiskeldi í sjó. 2. umr. fór hér fram án þess að ég hefði framsögu um málið, en ég var innilokaður í Vestmannaeyjum, vegna samgönguerfiðleika, eins og oftast kemur fyrir, þegar maður þarf að bregða sér þangað.

N. hefur rætt þetta mál á nokkrum fundum og leitað umsagna og fengið umsagnir frá 4 aðilum; Fiskifélagi Íslands, Sambandi ísl. sveitarfélaga, veiðimálastjóra og Hafrannsóknastofnun. Þessar umsagnir eru að vísu með ýmsum hætti, en heldur neikvæðar að því leyti, að Fiskifélaginu finnst af sér tekið, Hafrannsóknastofnunin gerir aths. m. a. við orðalag, og síðan höfum við rætt þetta mál við höfunda frv. og starfsmenn í rn. Ég sé nú ekki ástæðu til að lesa upp allar þessar umsagnir að þessu sinni, nema um það verði beðið, en frv. er, eins og menn sjá, þegar þeir líta yfir það, í fyrsta lagi um það, hvern þarf að biðja um leyfi til þess að setja á stofn fiskeldi í sjó og til hverra þarf síðan að leita, áður en leyfið er veitt. Um leyfið er sótt til sjútvrn., þar sem þetta er í sjó, en áður en leyfið er veitt, verða þeir í Fiskifélagi Íslands og Hafrannsóknastofnuninni og veiðimálastjóri að gefa sínar umsagnir, þannig að í þessum efnum geta þeir í hverju einstöku tilfelli komið fram með sitt álit.

N. varð sammála um að fylgja þessu frv., nema Björn Pálsson sat hjá við afgreiðsluna, en þm. áskildu sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.