12.04.1972
Neðri deild: 59. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (2921)
241. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, er, eins og hæstv. ráðh. sagði, samið af stjórnskipaðri n. N. mun hafa lokið störfum um s. l. áramót. Aukafundur Stéttarsambands bænda kom saman til þess að athuga málið og hafði ýmislegt við það að athuga, en síðan eru liðnir, að ég held, tveir mánuðir, frá því að stéttarsambandsfundurinn var og þangað til frv. er lagt fram. Það eru vitanlega til ýmsar skýringar á þessu, en það, sem greinilegast er, er það, að stjórnarliðið, eins og hæstv. ráðh. sagði, er ekki á einu máli um þetta frv. Satt að segja undrast ég það ekki. Þegar frv. er lesið vel, kemur margt í ljós, sem vissulega ber að gera athugasemdir við, og ég hygg, að þeir, sem telja sig sérstaklega fulltrúa bænda, og eins hinir, sem telja sig sérstaklega fulltrúa neytenda, geti haft ástæður til að gera athugasemdir við málið, en þá ekki sízt þeir, sem bera sérstaklega hagsmuni bænda fyrir brjósti.
Fyrstu lög um Sexmannanefnd voru samþ. 1943. Með þeim dögum var það viðurkennt, að bændur skyldu ekki hafa lakari kjör en aðrar stéttir, sjómenn, verkamenn og iðnaðarmenn. Þetta samkomulag fékkst eftir að búvörur höfðu hækkað mjög mikið haustið 1942, og þótti þá nauðsynlegt að gera nákvæma athugun á því, með hverjum hætti hægt væri að finna út réttmætt verð til handa bændum. 1947 voru sett lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu og verðmiðlun, en margt í þeim lögum var líkt því, sem var í hinum upphaflegu lögum um Sexmannanefnd. Síðan hafa lögin um Framleiðsluráð oft verið endurskoðuð. Þeim hefur nokkrum sinnum verið breytt allverulega: Síðasta breytingin var gerð 1966. Þá vann stjórnskipuð n. að endurskoðun laganna. Þá var það mál manna, að endurskoðunin hefði leitt til þess, að 1ögin voru endurbætt verulega, og það eru þau lög, sem nú eru í gildi.
Ég man eftir því, að flokksbræður hæstv. landbrh. töldu breytinguna 1966 vera mikilvægan árangur til hagsbóta fyrir bændur. Síðan eru 5 ár rúmlega, að þessi lög voru staðfest. Það breytist vitanlega margt og getur margt breytzt aðeins á 5 árum, og út af fyrir sig er réttmætt að hefja endurskoðun öðru hverju á lagabálki. En endurskoðun á að leiða til framfara, leiða til þess, að sú löggjöf, sem er endurskoðuð, verði endurbætt. Sé það ekki unnt, á að fresta endurskoðuninni og láta hana taka lengri tíma, þar til þróunin verður sú, að það megi takast að endurbæta þá löggjöf, sem stefnt er að að breyta.
Þessum lögum hefur alltaf verið ætlað að tryggja bændum sambærileg kjör og aðrar vinnandi stéttir hafa haft, þ. e. viðmiðunarstéttirnar, sem ég áðan nefndi. Þetta hefur tekizt misjafnlega, og eru vitanlega margar ástæður til þess, að það hefur sjaldnast tekizt að láta bændur fá jafnháar tekjur á pappírnum og viðmiðunarstéttirnar. En þetta hefur sérstaklega verið erfitt, þegar atvinnuástand hefur verið gott í kaupstöðum og kauptúnum. Þegar atvinna hefur verið svo mikil, að það hefur verið bæði eftirvinna og næturvinna, þá hefur það leitt til þess, að heildartekjur viðmiðunarstéttanna hafa orðið meiri en þegar atvinnuástandið hefur verið í meðallagi. Þetta hefur einnig verið erfitt, þegar árferði hefur verið slæmt, eins og oft er hér á Íslandi. Þegar kuldatíð hefur verið, eins og síðastliðin ár, þá hefur það haft áhrif á tekjur bænda, eins og eðlilegt er. Það hefur einnig haft áhrif, þegar búin eru mjög lítil og ef ekki hefur tekizt að ná því verði á afurðirnar, sem stefnt hefur verið að.
Hæstv. ráðh. las upp áðan töflu, sem er prentuð með þessu frv., þar sem skýrt er frá því, hvernig það hefur tekizt að láta bændur fá sambærilegar tekjur við viðmiðunarstéttirnar. Ég verð að segja það, að þessar tölur, sem hér eru birtar, eru mér alveg ókunnar. Þær eru nýjar. Hvernig þær eru til orðnar, vil ég ekkert fullyrða um, en mér dettur ekki í hug að ætla það, að sú n., sem vann að endurskoðun framleiðsluráðslaganna hafi viljandi látið prenta hér rangar tölur. Ég vil gera samanburð á tölum n. og tölum Hagstofunnar og lofa hv. alþm. að heyra, hver hann er. Hingað til hefur það þótt góð regla — og reyndar alltaf verið gert — að byggja á tölum Hagstofunnar í þessu efni sem öðru.
Þegar talað er um heildartekjur viðmiðunarstéttanna yfir landið allt 1969, þá eru tölur Hagstofunnar 277 514, en tölur n. 316 000, og þannig er þetta öll árin, að tölum Hagstofunnar og tölum n. ber ekki saman. Tekjutölur n. til handa viðmiðunarstéttunum eru miklu hærri en tölur þær, sem Hagstofan birtir, og með þessu móti vantar eðlilega mörg prósent á, að bændur hafi sambærilegar tekjur, þegar miðað er við tölur n. En sé miðað við tölur Hagstofunnar, þá verður allt annað uppi á teningnum. Að vísu er útkoman ekki nógu góð þrátt fyrir það, en hún er allt önnur og betri. Hér er miðað við tölur Hagstofunnar, bæði hvað tekjur bænda snertir á árunum 1962–1969 og einnig þær tölur hvað atvinnustéttirnar snertir, og reiknað út hlutfallið, hvað vantar til þess að bændur fái sambærilegar tekjur og viðmiðunarstéttirnar. Meðaltalið á þessum árum, 1962–1969, verður það, að bændur vantar 13.8% til þess að fá sambærilegar tekjur og viðmiðunarstéttirnar, 1962 vantar 5.1%, 1963 vantar 6%, 1964 vantar 0.6%, 1965 vantar ekkert — það er bezta árið —, 1966 vantar 27.4%, 1967 vantar 6%, 1964 vantar 0.6%, 1965 vantar ekkert en til jafnaðar er vöntunin á þessum árum 13.8%. Ef tekinn er sams konar samanburður á árunum 1954–1960, þá vantar að meðaltali 22.7%. Hér er um hagstofutölur að ræða í báðum tilfellum, bæði hvað tekjur bænda snertir og hvað tekjur viðmiðunarstéttanna snertir, en tekjur n. til handa viðmiðunarstéttunum eru harla skrýtnar og þarf að gera grein fyrir því, hvernig þær eru fengnar, prentaðar í opinbert þingskjal, sem lesið er upp í útvarp og birt öllum almenningi. Tekjutölur bænda virðast vera í aðalatriðum réttar í frv., en það er lítið atriði, sem ber þó keim af því, sem er heldur dularfullt og leiðinlegt í þessu sambandi, og það er það, að tekjur bænda 1969 voru samkvæmt hagstofutölum 235 þús., en eru samkvæmt nefndartölunum 233 þús. Ég segi það, að mér þykir leiðinlegt, að það skuli verið að hagræða tölum í sambandi við þetta frv., til þess jafnvel að það líti þannig út, að útkoman hafi verið verri á undanförnum árum en hún raunverulega var hvað snertir tekjur bænda. Ég tek það þó fram, að mér kemur ekki til hugar, að þeir, sem stóðu að samningu þessa frv., hafi gert þetta viljandi. (Gripið fram í.) Það er einhver skrifstofumaður, sem hefur reiknað vitlaust og fengið n. þetta í hendur. Ég þekki ýmsa af þessum mönnum, sem stóðu að samningu frv., og ég væni þá alls ekki um að vilja hafa það frekar, sem rangt er — dettur það ekki í hug. En þetta þarf að leiðrétta, og bæði hv. alþm. og þjóðin öll á heimtingu á því, að aðeins sé borið fram það, sem rétt er, í þessu efni sem öðru.
Þess bar náttúrlega að geta, að nú hefur vinnutíminn verið styttur verulega og orlofið lengt, og þá þarf náttúrlega að taka tillit til þess í þessari nýju löggjöf og reyna að vinna það upp samhliða því, sem vantar til, eins og hefur verið undanfarið. Það er enginn vafi á því, að hagur bænda hefur farið batnandi undanfarið, þegar árferði hefur verið í meðallagi eða sæmilegt, og kemur þar til, að þeir hafa búið við þessa löggjöf, sem við nú erum að ræða um, framleiðsluráðslögin. Þeir hafa tileinkað sér tæknina og þeir hafa aukið framleiðsluna í krafti aukinnar ræktunar og tækni. Þeir hafa stækkað búin. Það er þetta, sem hefur gefið þeim betri afkomu. Og það er enginn vafi á því, að þeir bændur, sem hafa meðalbú eða meira sæmilega rekin og hafa lagni á því að fá afurðir af búinu, hafa sambærilegar tekjur og aðrar stéttir þjóðfélagsins. En því miður eru enn svo margir með lítil bú, að það er vonlaust, að þau bú geti gefið sæmileg laun. Og það eru þessi mörgu smáu bú, sem enn eru fyrir hendi, sem draga niður meðaltalið, og það verður til þess, að flaggað er alltaf með því, að bændur séu lægst launaðir af öllum stéttum þjóðfélagsins. Ég segi, að enn er svo mikið af litlum búum og tekjulágum, að það ber mikið á þeim, þótt þeim hafi fækkað og stærri búunum hafi fjölgað. Tekjuhlutfall bænda versnaði eðlilega á kuldaárunum undanfarið, og það er ekki nema eðlilegt, að það hafi sagt til sín. En það var hin mikla ræktun, sem þá var komin, sem bjargaði því, að það var hægt að halda búpeningnum, og tiltölulega hagstætt verð á fóðurbæti hjálpaði einnig mikið til. En strax þegar árferðið fór að batna 1970, batnaði hagur bóndans verulega. Búnaðarmálastjóri gaf greinargerð eftir síðustu áramót um hag bænda og útkomu ársins 1970. Búnaðarmálastjóri sagði, að samkv. búreikningum yfir það ár hefði hækkun meðaltekna bænda verið 50% í krónutölu frá árinu 1969 og námu 83% af vinnutekjum viðmiðunarstéttanna. Ég hygg, að búnaðarmálastjóri hafi miðað við hagstofutölurnar, og hann hefur ekki haft aðrar tölur. Þess vegna hygg ég, að þetta sé rétt, sem hann segir. En tekjur viðmiðunarstéttanna hækkuðu 1970 um 27.4% samkv. upplýsingum Hagstofunnar. Sýnir það sig því, að bændur hafa unnið mikið á á árinu 1970 til þess að rétta sinn hlut.
Árið 1971 var mjög hagstætt, eins og allir vita, en það liggja ekki fyrir tölur um það, hversu mikið tekjur bænda hafa hækkað á því ári. Ég hef ekki fengið þær tölur enn. En vonandi er það lítið minna en árið 1970. Þó er vitanlega ekkert hægt að fullyrða um það.
Framleiðsluráðslögin hafa í aðalatriðum reynzt bændum mjög vel og tryggt bændum sæmilegar tekjur í meðalárferði. Það er þetta, sem við þurfum að hafa hugfast, þegar um það er að ræða að breyta þessum lögum, að það verði þá ekki til þess að gera lögin verri í framkvæmd en gildandi lög. Í Ólafskveri stendur skrifað, að breytt skuli framleiðsluráðslögunum, og þar er sagt, að breytingarnar eigi að verða til að tryggja bændum betri lífsafkomu. Ja, mér dettur ekki í hug, að nokkur ríkisstjórn eða nokkrir ráðh. og þá ekki heldur neinir alþm. vilji gera lög þannig úr garði, að þau verði til þess að gera hlut heilla stétta verri. En menn hafa skiptar skoðanir á málunum, og margir hafa rangar skoðanir, og þeir, sem halda því fram, að þetta frv., ef það verður lögfest, leiði til þess að rétta hlut bænda, þeir hafa rangar skoðanir á málunum. Ég er sannfærður um það, að þetta frv., ef það verður að lögum, verður ekki til þess að bæta hlut bænda.
Mér þykir rétt að minnast á nokkrar þær breytingar, sem í þessu frv. felast.
Breytingar samkv. 1. gr. frv. eru alveg meinlausar. Þar er gert ráð fyrir að fjölga í Framleiðsluráði úr 9 í 11. Þetta er vitanlega ekkert aðalatriði. Framleiðsluráð getur starfað alveg eins vel. þótt það séu 11 menn, sem þar eiga sæti, eins og 9, en kannske ekkert betur.
Breytingar á 2. gr. ættu einnig að vera meinlausar, ef rétt er á haldið. Þar er talað um áætlanagerð í landbúnaði og að skipuleggja framleiðsluna, eftir því sem unnt er. Þetta er í rauninni ekki nýtt ákvæði, nema þá að litlu leyti, vegna þess að undanfarið hefur verið unnið að áætlanagerð í landbúnaði, og meira að segja fyrir 20 árum lét Stéttarsamband bænda gera 10 ára áætlun fyrir landbúnaðinn. Og síðan hafa áætlanir verið gerðar, bæði smáar og stórar og til lengri og til skemmri tíma.
En breytingarnar, sem felast í 3. gr., eru veigamiklar, og þær eru sannarlega þess virði, að það verði staldrað við þær. Þar er um nýmæli að ræða, að vísu þó ekki nema að nokkru leyti. Það hefur verið óskað eftir því fyrr að leggja á fóðurbætisskatt, en það hefur ekki orðið samkomulag um það fyrr en ef það er nú. En ég vil vænta þess, að það sé ekki samkomulag um það í stjórnarliðinu að leggja fóðurbætisskatt á, eins og hér er lagt til. Það er gert ráð fyrir að fá heimild til þess að leggja 25% fóðurbætisskatt á innflutt kjarnfóður, ef útflutningsuppbæturnar hrökkva ekki til, til þess að gefa bændum fullt verð, þ. e. 10% ákvæðið, sem gerir ríkissjóði skylt að greiða í útflutningsuppbætur 10% af heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar, ef með þarf. Þetta ákvæði var sett í lög snemma árs 1960, og það verður að segja, að oftast síðan hafa útflutningsuppbæturnar verið nægilegar til þess að tryggja bændum haustverð. Nokkrum sinnum hefur lítið eitt vantað. Ég hef talað við marga bændur, sem hafa sagt, að þeir vildu miklu heldur, að það vantaði nokkur prósent á fullt verð framleiðslunnar, en þeir færu að taka á sig fóðurbætisskatt, sem þeir verða að borga í því skyni að borga sjálfum sér aftur hluta af verði búvörunnar, ef útflutningsuppbæturnar hrökkva ekki til. Og ég hef heyrt marga bændur segja, að það væri fyrir sig, þótt það vantaði nokkur prósent á verðlagið, ef það væri vegna aukinnar framleiðslu, vegna þess að árferðið væri betra en venjulega, — þá þyldu þeir betur að láta sig vanta örfá prósent heldur en fara að taka á sig að borga fóðurbætisskatt. Og fóðurbætisskatturinn kemur ekki heldur jafnt eða réttlátlega niður. Það er gert ráð fyrir, að þeir borgi vitanlega mestan fóðurbætisskatt, sem mest framleiða. Þeir vitanlega borga mestan fóðurbætisskatt. Og þeir, sem engan fóðurbæti kaupa, eiga að njóta þess, að þeir, sem kaupa fóðurbæti, borga svona mikið með fóðurbætinum. Með þessu móti er ætlazt til, að það verði flutt fjármagn á milli landshluta og á milli bænda eftir því, hvað þeir framleiða. Þeir, sem framleiða mjólk, kaupa mikinn fóðurbæti. Þeir, sem ekki framleiða mjólk, kaupa lítinn og jafnvel engan fóðurbæti. En þeir eiga eigi að síður að fá hlutdeild í þeim sjóði, sem verður myndaður með fóðurbætisgjaldinu.
Þessi fóðurbætisskattur á ekki að koma inn í verðlagið. En það er annars konar fóðurbætisskattur, sem gert er ráð fyrir að leggja á. Þar er ekki um heimild að ræða. Það er ákveðið, að það skuli gert. Það eru 5%. Þessi skattur á að renna í sjóð til þess að byggja upp sláturhúsin og aðrar vinnslustöðvar landbúnaðarins. Þetta hljómar nú ekki illa, en þetta er ekki eðlileg skattlagning, vegna þess að landbúnaðurinn hefur byggt upp vinnslustöðvar sínar, án þess að þetta gjald væri til, og landbúnaðurinn er kominn vel á veg með að byggja upp sínar vinnslustöðvar, að byggja upp mjólkurbúin. Mjólkuriðnaðurinn er í bezta standi, og vinnslustöðvar mjólkuriðnaðarins eru fyrsta flokks víðast hvar. Það hefur þegar verið byggt upp nokkuð mikið af sláturhúsum, góðum, fullkomnum sláturhúsum, en því miður er enn eftir að fullgera mörg sláturhús. Það er verkefni næstu ára. En það er hægt að gera án þess að taka þennan skatt, sem hér er gert ráð fyrir. Það er hægt að gera með því, að Stofnlánadeild landbúnaðarins veiti lán í þessu skyni, eins og hún hefur gert. Það er unnt að gera með því að halda áfram því, sem þegar hefur verið byrjað á í sambandi við Framleiðnisjóð landbúnaðarins og framlög á fjárlögum í þessu skyni, og það er miklu eðlilegra en að leggja á fóðurbætisskatt í þessu skyni. Þess vegna er það, að ég er á móti því, að þetta ákvæði verði lögfest.
Það er gert ráð fyrir, að þessi skattur komi inn í verðlagið og leiði til þess að hækka búvöruverðið. Frá sjónarmiði bænda er þarna bót í máli. En er ekki miklu eðlilegra, að vextir af lánum, sem eru tekin í þessu skyni, gangi inn í verðlagið og að bændur fái það bætt á þann hátt? Ég held, að það sé hlutverk lánastofnana og þeirra stofnana, sem þegar hafa verið settar á fót til styrktar þessum málum, að stuðla að því, að landbúnaðurinn geti haldið áfram að byggja upp og endurbæta vinnslustöðvar sínar, eins og hann er kominn vel á veg með. Og ólíkt er nú það, hvað landbúnaðurinn er kominn lengra og stendur betur að vígi í sambandi við sínar vinnslustöðvar en sjávarútvegurinn. Og það er ekki rétt að vera að leggja skatt hér á þá, sem kaupa fóðurbæti, til þess að standa undir þessu.
Þá er eitt atriði í 3. gr., sem er nýmæli og hæstv. ráðh. sagðist vera á móti, eigi að síður flytur hann frv. með þessu ákvæði. Það er að taka upp svokallað kvótakerfi, þ. e. að refsa þeim, sem framleiða mikið, og láta þá aðeins fá fullt verð af hluta framleiðslunnar. Þetta er nýtt ákvæði í lögum, en minnir þó nokkuð á 17. gr. jarðræktarlaganna, sem mikið var rifizt um á fjórða tug þessarar aldar, þegar jarðræktarstyrkurinn var tekinn af þeim bændum, sem voru duglegir að rækta. En nú á að setja í lög ákvæði, sem heimila að borga ekki fullt verð fyrir framleiðsluna til þeirra bænda, sem eru duglegir og framtakssamir.
Ég held, að ákvæði eins og þetta geti fyllilega orðið til þess að draga það mikið úr framleiðslunni, að það geti orðið skortur á búvörum hér í landinu. Þetta ákvæði ásamt öðrum, fóðurbætisskatti og öðrum, getur leitt til þess, að það verði verulegur samdráttur í framleiðslu búvöru í landinu, og þetta er spor aftur á bak. Með þessum ákvæðum er stefnt að því, að bændastéttin hætti að ganga fram og sækja fram, eins og hún hefur gert undanfarið, og stigið er spor aftur á bak. Mig undrar ekki, þó að ekki hafi fengizt samstaða innan stjórnarliðsins um þetta frv., eins og það er úr garði gert.
Þá er það 5. gr. frv. Það var áður miðað við, að bændur skyldu hafa tekjur eins og iðnaðarmenn, verkamenn og sjómenn. Nú er fellt úr að hafa sjómennina með. Hæstv. ráðh. sagði áðan, að sjómennirnir hefðu verið felldir niður 1966. Þetta er ekki rétt. Það var ákvæði í lögum um það, að ekki skyldi miða við aflahlut sjómanna eða ákvæðisvinnu verkamanna og iðnaðarmanna. En til þess að sýna, að það getur verið skaði fyrir bændur að fella sjómennina úr, þá er rétt að geta þess, hverjar tekjur sjómenn höfðu árið 1970. Þeir höfðu 429 þús. kr., en verkamenn höfðu 372 þús. og iðnaðarmenn 439 þús. Vegið meðaltal er 402 þús. Vegið meðaltal lækkar verulega, ef sjómennirnir eru taldir úr, og ég er sannfærður um það, að hv. landbn. á eftir að gera aths. við þetta. Þetta dregur niður þá upphæð, sem tekjur bænda miðast við, og getur orðið til þess að lækka tekjur bænda, þegar kaup bóndans er miðað við, eins og að undanförnu, kauptaxta og heildartekjur. Þess vegna hljóta bændur að verða á móti þessu. Neytendur geta kannske greitt atkv. með því í von um að fá lægra verð á búvörunni á eftir. En það er ekki það, sem stefnt er að með þessu frv., eftir því sem hæstv. landbrh. lýsti því hér áðan og stefnumiðum þess.
Breyting samkv. 6. gr. er skipun Sexmannanefndar. Nú á að semja við ríkisstj. og fulltrúar neytenda í Sexmannanefnd eiga ekki lengur að koma við sögu. En það hefur áreiðanlega orðið til þess að auka skilning á milli stéttanna, að neytendur og fulltrúar bænda komu saman að samningsborði til þess að finna út réttlátt verð á búvörum. Það er enginn vafi á því, að það hefur haft ákaflega mikla þýðingu. Og þegar búvörur hafa hækkað mikið í verði, þá hefur verið ákaflega þægilegt að segja við neytendur: Verðhækkunin var samþ. af fulltrúum ykkar eftir að þeir höfðu sannfært sig um, að verðið er sanngjarnt. — Ég er ósköp hræddur um, að fulltrúar ríkisstj. í Sexmannanefnd hafi ekki þessa aðstöðu gagnvart neytendum og þeir verði miklu frekar tortryggðir heldur en fulltrúar, sem eru skipaðir af launaþegahópum. Í gildandi lögum hafa þrír launþegahópar rétt til að skipa fulltrúa í Sexmannanefnd, þ. e. Sjómannafélag Reykjavíkur, Landssamband iðnaðarmanna og Alþýðusamband Íslands. Alþýðusamband Íslands hefur ekki kært sig um að nota rétt sinn síðustu árin, en eigi að síður hefur það átt þennan rétt, og ég er sannfærður um, að ef lögunum væri ekki breytt að þessu leyti, þá kæmi fljótlega að því, að Alþýðusambandið vildi nota þennan rétt, sem er eðlilegt,. að það hafi. En nú á að breyta þessu og semja við ríkisstj., eins og hæstv. landbrh. sagði áðan.
Ég hef talað við marga bændur um þetta ákvæði. Það eru margir á móti þessari breytingu. Aðrir segja, að það sé náttúrlega ekki unnt að fullyrða neitt um það fyrir fram, hvort þetta verður til bóta eða hvort þetta er verra. Það er alveg rétt, það er engin leið að sanna það fyrir fram, að þetta verði verra. En mín skoðun er sú, að þetta geri málin erfiðari viðfangs en ef skipun Sexmannanefndar yrði höfð óbreytt. Og hvað segja opinberir starfsmenn um það, hvernig semja eigi við ríkisstj.? Ég ætla ekkert að dæma um það og réttmæti þess, sem þar er farið fram á, en ég er alveg viss um það, að þarna kemur upp mikill ágreiningur öðru hverju. Ríkisstjórnir eru misjafnar, stundum eru þær skilningsríkar og stundum eru þær vinveittar bændum, en þetta getur allt saman verið misjafnt, því að ríkisstjórnir koma og fara.
Þá er það 7. gr. frv. Mér þykir rétt að minnast aðeins á hana og þá breytingu, sem hún felur í sér. Ríkisstj. er heimilt að semja við bændasamtökin um framlög ríkisins til landbúnaðarins, að því er varðar verðlagsmálin, niðurgreiðslur, búvöruverðs á innlendum markaði, sbr. 14. gr., svo og framleiðslustyrki til þeirra byggðarlaga, sem erfiðust skilyrði hafa. Hérna kemur aftur að því sama og með fóðurbætisskattinn, að ríkisstj. gæti samið við fulltrúa bænda um að veita styrk til ákveðins byggðarlags eða til þeirra bænda, sem verst eru settir, gegn því, að fulltrúar bænda falli frá því að fá þá hækkun á afurðunum, sem þeim ber að fá. Ég tel, að þetta ákvæði sé mjög varasamt, vegna þess að með þessu móti er raunverulega verið að leggja byrðar á hluta bændastéttarinnar til þess að bæta fyrir öðrum í stéttinni, sem verr eru settir. Ég segi þetta ekki vegna þess, að það geti ekki verið réttmætt að veita sérstaka styrki til þeirra, sem verst eru settir, eða til einstakra byggðarlaga, sem verða illa úti. En ef á að gera það, þá þarf að gera það af opinberu fé, en ekki af fjármagni, sem kemur raunverulega frá nokkrum hluta bændastéttarinnar. Það er þetta atriði, sem er alveg nauðsynlegt að athuga nánar, til þess að ekki verði íþyngt um of þeim byggðarlögum og þeim bændum, sem talið er að komist sæmilega af. Það er með þessu ákvæði opnuð leið til þess að verzla við ríkisstj. með hagsmuni þeirra bænda, sem eru sæmilega settir, fá styrk úr ríkissjóði með því að falla frá verðhækkun á búvörum, sem allir bændur ættu að njóta. Þannig kaupskapur gæti orðið háskalegur og dregið slæman dilk á eftir sér.
Sáttanefnd er felld niður, sem gert er ráð fyrir í gildandi lögum að starfi. Hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að sáttanefndin hafi komið að litlu gagni. Ég skal ekkert fullyrða um það. En ég ætla ekki að gera neina verulega aths., þó að þessi n. sé felld niður, úr því að yfirnefndin er fyrir hendi, úr því að gert er ráð fyrir að skipa hana með sama hætti og er í gildandi lögum. Það má reikna með, að málið lendi hjá henni, ef ekki verður samkomulag um verðlagninguna, og hún á að leysa málið. En ég held, að það sé ekki til bóta, að það skuli vera heimild til að segja úrskurði yfirnefndar upp með 6 mánaða fyrirvara. Ég held, að það geti orðið til þess að skapa rugling, en ekki til þess að bæta fyrir.
Þá er mér nýmæli samkv. 14. gr., sem ég vil leyfa mér að minnast aðeins á. Það er sagt hér í síðustu mgr.:
„Einnig er Sexmannanefnd heimilt að semja um, að hluti niðurgreiðslu einhverrar vörutegundar sé greiddur framleiðendum án tillits til framleiðslumagns, enda komi til samþykki þeirra aðila, sem tilnefna menn í Sexmannanefnd.“
Ég veit nú ekki, hvernig á að skilja þetta. Er hægt að skilja þetta öðruvísi en þannig, að það sé heimilt að greiða fé til niðurgreiðslu á vöru, sem aldrei hefur verið framleidd og ekki er til? Þetta er sannkallað nýmæli. Og satt að segja er ég ekki búinn að átta mig á því, hvað n. og hæstv. ráðh. er að fara með því að flytja frv. með þessu orðalagi. Eða dettur nokkrum hv. alþm. í hug, að þetta geti leitt til heilbrigðra atvinnuhátta? Hlyti þetta ekki að verða til þess að draga úr dugnaði og framtaki manna? Er ekki með þessum hætti farið að verðlauna framtaksleysi og ódugnað?
Þá er það 15. gr., sem mér þykir einnig rétt að minnast nokkuð á. Það er gert ráð fyrir því, að ef afgangur verði af útflutningsuppbótunum, þ. e. af 10% gjaldinu, sem kemur úr ríkissjóði, þá megi geyma það í tvö ár og nota það seinna. Vitanlega er ágætt að hafa þetta í lögum. En líklega hefur þetta verið framkvæmt að einhverju leyti áður, og ég mæli með því, að þetta sé út af fyrir sig lögfest. Hins vegar geri ég lítið úr því, að eftir tvö ár verði enn afgangur, sem búnaðarsamtökin megi verja í sína þágu. En það skaðar vitanlega ekki heldur, að það sé í lögum, ef til þess kæmi, að það yrði afgangur af útflutningsuppbótunum, sem aldrei hefur orðið fram að þessu, nema ef það skyldi verða að einhverju leyti á þessu ári, vegna þess að slátrun var óeðlilega lítil á s. l. hausti, en fénaði mun hafa fjölgað um 40 þús. á s. l. ári vegna minnkandi slátrunar. Og þá eru það kartöflurnar, sem einnig eiga þarna að koma við sögu, — um kartöflumálið ætla ég ekki að deila við hæstv. ráðh., því að ég vænti þess, að hann hafi skilning á því, — en kartöflurnar gætu tekið drjúgan hluta af því, sem ætlað var að verða afgangs af útflutningsuppbótunum fyrir þetta ár.
Samkv. 16. gr. er gert ráð fyrir að stofna sjóð, sem annast það hlutverk að veita flutningastyrki og kannske að bæta verðlagið, þar sem aðstaðan er verst. Ég tel, að það sé ágætt, ef Byggðasjóður greiðir þetta fé, en ég vil taka það fram, að það er svolítið á misskilningi byggt, sem hæstv. ráðh. sagði áðan, að bændurnir hefðu að undanförnu sjálfir kostað flutninga og veitt styrki til einstakra staða. Það hafa þeir raunverulega ekki gert, vegna þess að þessir flutningastyrkir og önnur styrkjastarfsemi, sem hefur verið viðhöfð, hefur ekki leitt til þess, að bændur hafi ekki fengið fullt verð fyrir afurðirnar. Þetta hefur komið til af því, að það hefur að nokkru leyti verið ætlað fyrir þessu í sambandi við dreifingu og vinnslu vörunnar. En þótt þetta hafi tekizt áður, þá er vitanlega ekkert nema gott um það að segja, að þessi sjóðsmyndun geti átt sér stað, og það er eiginlega það eina í frv., sem ég tel vera jákvætt, en vegur vitanlega allt of lítið, þegar tekið er tillit til þess, hve mörg atriði í frv. eru algerlega neikvæð.
Þá er hér breyting í sambandi við 39. gr., sem ekki tekur að gera mikið úr. Með þessari breytingu er verið að auka heimildir til Framleiðsluráðs um tilfærslu og verðmiðlun. Ég geri ráð fyrir, að þetta sé algerlega skaðlaust, vegna þess að Framleiðsluráð gangi ekki lengra en sanngjarnt er í þessu efni.
Ég hef nú drepið á nokkrar þær breytingar, sem eru veigamestar í þessu frv. Þær eru yfirleitt neikvæðar, nema sú eina, sem ég áðan nefndi. Ég tel, að þessar breytingar geti verið mjög háskalegar og geti leitt til minnkandi framleiðslu, vegna þess að stefna frv. er í rauninni að draga úr framtaki þeirra, sem bezt hafa dugað, sem mestan dugnað hafa sýnt í framleiðslustörfunum. Frv. gengur út á það að skattleggja þann hluta bændastéttarinnar, sem framleiðir tiltölulega mikið, skattleggja hann og yfirfæra fjármagn frá þeim hluta bændastéttarinnar yfir til hinna, sem verr eru settir. En eins og ég tók fram áðan, þá vil ég alls ekki fullyrða, að það geti ekki verið réttmætt að veita styrki og stuðning til ýmissa byggðarlaga og til þeirra bænda, sem verst eru settir, en það hlýtur að vera rangt að ætlast til þess, að það sé aðeins hluti bændastéttarinnar, sem á að gera það. Það hlýtur að vera réttlátt, að það sé þjóðin öll, sem gerir það, ef til þess þarf að koma. Ég get ekki sagt, að þetta sé rétt stefna. Þetta er röng stefna og hlýtur að leiða til þess, að hinir, sem dugmeiri eru, fari að draga að sér höndina.
Ég þarf ekki að minna á, hvaða atriði það eru sérstaklega í frv., sem gætu verkað þannig neikvætt og til samdráttar, þegar það liggur fyrir, að það á að setja í lög, að það megi refsa þeim, sem framleiðir mikið, með því að taka upp kvótakerfi, það megi refsa honum með því, að hann eigi að borga fóðurbætisskatt og mynda sjóð, sem er notaður til greiðslu handa þeim, sem engan fóðurbæti hafa keypt. Þetta er ekki uppörvandi. Þetta verður ekki til þess að hvetja menn til framtaks eða dugnaðar. Þetta verður til þess að jafna allt út. Þetta verður sú hindrun í framleiðslunni, sem getur orðið háskaleg og mjög skaðleg. Þetta er sett inn í frv. vegna þess, að ýmsir eru hræddir við offramleiðsluna, offramleiðslu á landbúnaðarvörum á Íslandi, en það hefur ekki orðið slys eða tjón af því fram að þessu, því að oftast er það nú svo, að íslenzka þjóðin hefur búið við að að framleiða of lítið. Þótt framleiðslan hafi aukizt mikið í seinni tíð í krafti tækni og ræktunar, þá getur það ekki gert tjón, þó að framleitt sé meira en það, sem þarf að nota í landinu.
Bændur fengu 1960 rétt til útflutningsuppbóta, 10% af heildarverðmæti framleiðslunnar. Það hefur gert mögulegt að veita bændum flest árin fullt verð fyrir framleiðsluna. Framleiðslan hefur ekki verið meiri en það. Og ég held, að það sé óþarfi að vera að lögfesta drabít eða hemil á búvöruframleiðslu á Íslandi. Við höfum um áratugi og aldir haft annan hemil, sem er tíðarfarið á Íslandi. Það hefur jafnan með vissu millibili gripið inn í og komið í veg fyrir það, að bændur hafi getað framleitt of mikið, og þess vegna undrast ég það, hve margir virðast lifa í þessum ótta enn í dag, að framleiðslan verði of mikil. Ég hef oft hugsað um það, hvað það væri ánægjulegt, að Íslendingar gætu tekið upp stórframleiðslu í landbúnaði með útflutning fyrir augum, og einu sinni setti ég upp dæmi og sá í framtíðinni, þegar búið væri að rækta tún, heimahaga og öræfin, að Íslendingar hefðu t. d. 2 milljónir sauðfjár. Þeir þyrftu að nota í landinu, þegar þeir væru orðnir 300 þúsund, kannske afurðir af 700–800 þúsundum, hitt flyttu þeir út, og ef bóndinn hefði 1000 ær í staðinn fyrir 200 ær, þá þyrfti hann ekki að fá eins mikið fyrir hvert kg af kjöti og hann þarf nú, meðan hann er með smábúið. Það er enginn vafi á því, að íslenzka þjóðin gæti framleitt landbúnaðarvörur til útflutnings með stórhagnaði, bæði flutt út kjöt og svo náttúrlega unnar vörur úr ull og skinnum. Þess vegna er það háskalegt að vera nú að bera fram frv. til l. um Framleiðsluráð, sem getur leitt til samdráttar í framleiðslunni og dregið dug og kjark úr mönnum, sem hafa að undanförnu staðizt illt tíðarfar og aukið framleiðsluna með sérstökum dugnaði.
Ég vænti nú þess, þar sem það liggur fyrir, að stjórnarliðið hefur skiptar skoðanir á þessu máli, að þetta frv. verði endurskoðað vel og rækilega og það verði fellt í burtu, sem hv. þm. koma sér saman um að geti leitt til tjóns, ekki fyrir bændastéttina eina, heldur fyrir þjóðina í heild.
Það hefur á undanförnum árum verið haldið uppi framleiðslustefnu í þessu landi, og í sambandi við þessa framleiðslustefnu hefur ræktunin verið aukin. Það er túnræktunin, það er grasið, sem er undirstaða búvöruframleiðslunnar, og þess vegna er það, að túnin hafa stækkað um nærri helming á 12 árum. Árið 1959 eru túnin aðeins 61 811 ha., en í árslok 1971 11 5000 ha. Á 12 ára tímabili hefur verið ræktað nærri eins mikið og áður var ræktað, frá því að byrjað var að rækta á Íslandi í byrjun þessarar aldar. Og kuldaárin undanfarið hefðu verið þung í skauti fyrir landbúnaðinn, ef túnastærðin hefði ekki verið orðin eins mikil og raun ber vitni. Framleiðslan hefur aukizt á þessum árum, sem hafa verið misjöfn, þrátt fyrir það að fólki hafi fækkað við landbúnaðarstörfin.
Það var áðan minnzt á það, að hlutur bænda hefði batnað fljótt, þegar tíðarfarið breyttist 1970 og 1971, og við skulum vona, að kuldinn láti nú á sér standa og það verði bið á því, að hann sæki okkur heim að nýju. Við skulum vona, að nú fari í hönd betra árferði, og að við getum einnig búið við löggjöf, sem er framleiðsluhvetjandi og hvetur menn til framtaks og dugnaðar, en ekki löggjöf, sem dregur úr mönnum dug og kjark.
Eins og ég sagði áðan, þá mun þetta frv. verka eins og hemill, ef að lögum verður, og leiða til samdráttar. Það er spor aftur á bak, en er ekki jákvætt. Það er mín skoðun, að það sé þjóðfélagsleg nauðsyn að halda áfram framleiðslustefnu í 1andbúnaðinum eins og á öðrum sviðum þjóðlífsins, það megi ekki hindra það, að haldið verði áfram að rækta og byggja upp í landbúnaðinum á öllum sviðum. Landbúnaðurinn hefur tileinkað sér nýjustu tækni, fengið sér vélar, flestir bændur hafa orðið rafmagn, húsin hafa verið byggð upp, bæði íbúðarhúsin og peningshúsin, og viðhorfið til framleiðslunnar og til afkomumöguleika landbúnaðarins er gott, ef við getum búið við meðalárferði í landinu. En nú vonum við, að vondu árin séu að baki og langt verði þangað til þau verri koma aftur.
Ég hef talað vel um framleiðsluráðslögin, sem nú eru í gildi. Eigi að síður er mér alveg ljóst, að ýmis ákvæði gætu staðið til bóta, en erfitt getur verið að breyta þeim á þann veg, að það verði til batnaðar. Það er nokkuð langt síðan mér varð þetta ljóst, og þess vegna var það, að ég skipaði nefnd 7 manna 1969, sem skyldi gera athugun á því, hvort æskilegt væri að breyta framleiðsluráðslögunum og með hvaða hætti það mætti gerast til batnaðar, og ég vil til fróðleiks fyrir, hv. alþm. lesa upp, með leyfi forseta, erindisbréf þessarar nefndar:
„Ráðuneytið hefur ákveðið að skipa 7 manna n. til þess að taka til athugunar og vinna að þeim verkefnum, sem talin eru hér á eftir:
1. Að gera athugun á því, hvort tiltækilegt sé að gera framleiðslu búvöru hagkvæmari og laga hana betur að þörfum neytenda með aukinni fjölbreytni.
2. Að gera athugun á því, hvort heppilegt sé að stuðla að sérframleiðslu búvara á vissum svæðum, svo sem mjólkurframleiðslu í grennd við þéttbýli og kjötframleiðslu þar sem lengra er til markaðssvæða.
3. Að gera athugun á því, hvort æskilegt sé að nota það fjármagn, sem varið er til niðurgreiðslna og útflutningsuppbóta, með öðrum hætti en nú er gert, þannig að það komi bændum og þjóðarheildinni að betri notum.
4. Að gera athugun á því, hvort mögulegt sé að lækka framleiðslukostnað á búvörum.
5. Að athuga möguleika á og gera tilraun til að fá neytendur til þess að taka fullan þátt í verðlagningu búvöru og athuga, hvort mögulegt sé að gera verðlagningarkerfið einfaldara.“
Í n. þessa voru skipaðir Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambands bænda, Einar Ólafsson frá Lækjarhvammi, Vilhjálmur Hjálmarsson alþm., Jón Þorsteinsson alþm., Björn Jónsson alþm. og Jónas Haralz hagfræðingur, en hann var þá forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar. Þegar Jónas hætti, tók Bjarni Bragi Jónsson við formennsku n. sem forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar.
Þetta er erindisbréf þessarar n. Hún starfaði mikið og safnaði gögnum og verk hennar átti að vanda. Henni var ekki settur fyrir ákveðinn starfstími, vegna þess að framleiðsluráðslögin voru endurskoðuð 1966 og voru þannig úr garði gerð, að það bar ekki brýna nauðsyn til að breyta þeim að svo stöddu. Hins vegar þótti sjálfsagt að hafa góða menn starfandi í n. til, þess að leita að því, á hvern hátt væri hægt að bæta lögin og gera þau betur úr garði, og n. ætlaði sér ekki að skila áliti, fyrr en hún hefði fullunnið þetta verk. En hæstv. landbrh. leysti n. upp, leysti hana frá, störfum á s. l. sumri og skipaði aðra n., sem átti að flýta sér. Hún hafði ekki nema takmarkaðan starfstíma og þess vegna er frv., sem við nú erum að ræða um, eins og það er. Hefði ekki verið betra að láta þessa n. starfa áfram? Hæstv. landbrh. hefði getað bætt manni eða mönnum í n., ef hann hefði viljað, en leyft n. að starfa áfram og leita eftir því bezta, sem fáanlegt var í þessa löggjöf, sem er svo mikils virði.
Í þessu erindisbréfi er ekki talað um að leggja á fóðurbætisskatt. Það er ekki heldur talað um að taka upp kvótakerfi. Það er ekki talað um það í þessu erindisbréfi að koma með einhvern hemil á framleiðslu íslenzkrar búvöru. Tilgangurinn með þessu bréfi var að leita eftir breytingum á lögunum, sem gætu verið til bóta. Þess vegna átti þessi breyting ekki að vera neitt flýtisverk. í n. voru valdir góðir menn og gegnir, eins og reyndar í þá n., sem hæstv. ráðh. skipaði s. l. sumar. Vissulega voru margir góðir og gegnir menn í þeirri n. En jafnvel góðir og gegnir menn geta ekki náð árangri, ef sá tími, sem þeim er ætlaður til starfsins, er ekki nægilega góður og ef þeim er gefin forskrift til þess að vinna eftir. Og það er það, sem ég er hræddur um, að hafi verið gert. Ég er hræddur um, að hæstv. ríkisstj. hafi gefið n. forskrift til þess að vinna eftir, það hafi verið fyrirmæli ríkisstj. að taka upp fóðurbætisskattinn, það hafi verið forskrift frá ríkisstj. að taka upp kvótakerfið, það hafi verið forskrift frá ríkisstj. að skattleggja vissan hluta bænda til þess að bæta fyrir öðrum bændum, og þá fer maður að skilja það, þótt jafnvel góðir menn, sem störfuðu í n. ráðherrans, hafi ekki náð betri árangri en raun ber vitni.
Það er leitt til þess að vita, að svona skyldi fara, en þetta frv. fer nú til hv. landbn., og það verður að bera þá von í brjósti, að hv. n. beri gæfu til að lagfæra frv. Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að svo komnu máli að hafa fleiri orð um þetta frv., áður en það fer til n., en leyfi mér að vænta þess, að það verði endurbætt þar, ef því er ætlað að verða að lögum á þessu þingi. Það bezta væri vitanlega að gefa sér tíma, a. m. k. til haustsins, til þess að endurskoða frv. og taka af því verstu hnökrana og endurbæta það.
Það er ekki aðeins í þessu máli, sem hæstv. ríkisstj. vill flýta sér óeðlilega mikið. Það er eins og hæstv. ríkisstj. geri alls ekki ráð fyrir því að lifa haustið af eða næsta þing. Ekki dettur mér í hug að spá neinu um það, og ekki hef ég gert ráð fyrir því, að núv. ríkisstj. hætti störfum á næsta hausti. Ég hef alls ekki gert ráð fyrir því. Ég hef reiknað með því, að hún mundi starfa næsta vetur og gæti þess vegna alveg beðið með að lögfesta frv., þangað til þau hafa fengið eðlilega meðferð. En ég veit ekki, hvað hæstv. ríkisstj. sjálf hugsar í þessu efni. Það er eins og það þurfi að ljúka öllu af á þessu þingi, vegna þess að ekki verði tími til þess síðar.