12.04.1972
Neðri deild: 59. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í C-deild Alþingistíðinda. (2924)
241. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Þó að þetta mál, sem hér er til umr., fari til n., sem ég á sæti í, og út af fyrir sig megi segja, að það sé óþarfi fyrir mig á þessu stigi málsins að ræða mikið þessar frvgr., ekki sízt eftir síðustu ræðu, þá tel ég samt rétt að segja hér nokkur orð vegna ræðu hv. 1. þm. Sunnl. hér í dag og hv. 7. þm. Reykv.
Eins og kom fram í framsöguræðu hæstv. landbrh., hefur þetta frv. verið samið af n. og er flutt eins og þessi n. gekk frá frv. Ég er einn þeirra hv. þm., sem eiga sæti á stéttarsambandsfundi bænda, og mér er ekki launung á því, að það eru nokkur atriði í þessu frv., sem ég er óánægður með eða ekki fyllilega ánægður með, þó að ég líti á þau nokkuð öðrum augum en t. d. hv. 1. þm. Sunnl., og kem ég síðar að því. Það er t. d. atriði, sem hæstv. landbrh. gat um sérstaklega og ég er honum alveg sammála um, þessi kafli um kvótafyrirkomulag eða kvótakerfi. Ég held, að það væri breyting til bóta að fella þann kafla alveg úr og ýmis atriði önnur, sem þarf að skoða, og vita, hvort ekki er hægt að fá samstöðu um til breytinga, ef menn verða á einu máli um það, að eftir þær breytingar sé frv. betur úr garði gert. En ég mun ekki ræða þau atriði frekar.
Mér fannst það vera dálítið athyglisvert að hlusta á ræðu fyrrv. landbrh. áðan. Ég held, að ef hann hefði nú fundið eitthvað jákvætt við þetta frv., þá hefði málflutningur hans náð eyrum fleiri manna en mun hafa verið. En þessi neikvæða afstaða, að vera fyrir fram ákveðinn á móti eiginlega hverju atriði í frv., fannst mér dálítið einkennileg.
Ég varð því miður að fara frá og hlustaði ekki á hv. 7. þm. Reykv., en mér er tjáð, að hann hafi verið á móti frv. að öllu nema einu leyti, og það var kjarnfóðurskatturinn, og ég verð að segja það, að þó að ég hefði verið jafnvel með kjarnfóðurskattinum áður, þá hefði ég farið að athuga minn gang mjög eftir að fá þá yfirlýsingu úr þessari átt. En þar sem hann er á móti frv. að öðru leyti, þá hlýtur það að sannfæra flestalla hv. þm. um það, að þetta frv. hljóti að vera töluvert mikið til bóta frá því sem áður var, enda er sú raunin. Hitt er svo annað mál, að hér eru atriði, sem hefði mátt skoða svolítið nánar.
Það var eitt af þeim atriðum, sem hv. 5. þm. Austf. kom að áðan, það var í sambandi við 39. gr. Það má segja, að það sé mikið sök 1. þm. Sunnl., fyrrv. landbrh., að ýmsir bændur hafa aðhyllzt þá leið að óska frekar eftir verðjöfnun með fóðurbætisskatti en þeirri leið, sem hann valdi eða var lögfest undir hans forustu, þ. e. a. s. um verðmiðlunina. Árið 1958 kom þessi verðmiðlun mjög harkalega niður á sauðfjárbændum. Mér er tjáð, — ég hef ekki reiknað það út og ég verð þá leiðréttur, ef ég fer með skakka tölu, að í þessari verðjöfnun hafi vantað í raun og veru 12% á verðið. Það munu hafa verið rúmar 100 millj., sem þurfti að verðjafna þá, og það var allt á þessa framleiðslu, og það er eitt af þeim atriðum, sem vantar alveg og er gengið fram hjá enn þá, að leyfilegt sé að verðjafna þannig, ef vantar útflutningsuppbætur, ef farin er þessi leið, að það sé látið ná til allrar þeirrar landbúnaðarframleiðslu, sem verðuppbætt er. Þetta er eitt af þeim atriðum, sem ég mundi vilja láta skoða mjög, hvort ekki yrði talið til bóta að gera slíka breytingu á þessu frv. Það eru, eins og hv. 5. þm. Austf. sagði áðan, mjög skiptar skoðanir, svo að ekki sé meira sagt, um að 39. gr. sé þannig úr garði gerð, að það í raun og veru standist, blátt áfram standist að innheimta verðjöfnunargjald eftir henni, ef vantar útflutningsbætur. Greinin er eingöngu þannig, að miðað er við að verðjafna innanlands.
Ég hafði nú líka gaman af því, þegar 1. þm. Sunnl. var að tala um kjör bændanna og þróun þessara mála, eins og hún hefur verið á undanförnum árum, og þegar hann var að minnast á þær miklu framkvæmdir, sem hafa verið, og góðan hag bændanna. Ég held nú, að framleiðsluaukningin á þessum síðasta áratug eða rúmlega það sé ekki mikil. Það er að vísu alveg rétt, að árferðið hefur haft þar veruleg áhrif, en það er líka fleira, sem kemur til. Ef við tökum áratuginn 1948–1958, þá er kindakjötsframleiðslan 1948 ekki nema 4 330 tonn, en 1958 er hún komin upp í 9 920 tonn. Hún fór svo upp í rúm 12 þús. tonn, en var á s. l. ári ekki nema 10 075 tonn. Mjólkurframleiðslan var 1948 rúml. 32 millj. lítra, en 1958 var hún komin upp í tæpar 70 millj. lítra. Á s. l. ári og undanfarin ár hefur þetta losað um 100 millj. lítra, var 105 millj. lítra á s. l. ári.
Ef við förum að líta á, hvernig hefur gengið með framkvæmdirnar á áratugnum áður og þessum síðasta áratug, og sérstaklega ef maður lítur á viss ár, þá er alveg sýnilegt, að framkvæmdir í landbúnaði hafa verið langtum minni á þessum áratug en áður. 1956 voru öll lán 45 millj. En til hvaða framkvæmda var lánað þá? Það var lánað til íbúðarhúsabygginga, útihúsabygginga í sveitum, ræktunar og gróðurhúsabygginga. En miðað við vísitölu núna hefði átt að lána til þessara framkvæmda milli 230 og 240 millj. Lán út á þessar framkvæmdir á s. l. ári, sem hefur verið talað um, að hafi verið metár, ná ekki 140 millj. út á sams konar framkvæmdir sem lánað var til á þessum árum. Og það er svipað, ef tekið er árið 1957, þá er það rúml. 51.5 millj. Þá var vísitalan 116 stig, en á árinu 1971 var byggingarvísitalan 532 stig, og það hefði jafngilt því, að það hefði, til þess að fjármagnið hefði sama framkvæmdamátt, þurft að vera rúml. 232 millj. Á s. l. ári var lánað út á allar framkvæmdir, í vélakaup, minkahús og vinnslustöðvar, samtals 254 millj. Það eru sem sagt milli 110 og 120 millj., sem lánaðar eru til annarra framkvæmda en lánað var út á á þessum árum.
Nú skulum við athuga, hvernig staða bændanna er, efnahagur bændanna, og hvernig þetta hefur gengið til.
Fyrrv. landbrh. sagði í ræðu sinni áðan, og við höfum oft deilt um það hér á undanförnum árum, hvaða laun bændurnir hafa haft út úr sínum búum í raun og veru. Það er auðvitað hægt að deila um það endalaust, eins og síðasti hv. ræðumaður kom inn á, eftir því hvernig maður gefur sér þær tölur, þær forsendur, sem reiknað er út frá, og ég samþykkti ekki þær tölur, sem Hagstofan reiknar út frá. Það er vegna þess, að þar er ýmsu í raun og veru sleppt, þeirra útkoma er þannig, að bilið er meira en Hagstofan segir til um, ef farið er ofan í þau mál nákvæmlega miðað við það skýrsluform, skattskýrsluform, sem við höfum búið við fram að þessu. En við skulum bara sleppa þessum tölum. Hvernig stendur á því með efnahag bændanna, að skuldaaukningin hefur orðið svona gífurleg á þessum árum, þrátt fyrir það að framkvæmdirnar hafa ekki verið eins miklar á s. l. áratug og t. d. áratugnum áður?
Hv. 1. þm. Sunnl. gat um það áðan í ræðu sinni, að það hefði verið eitthvað nýtt, þegar útflutningstryggingin var tekin upp 1960. Þetta er misskilningur eða misminni, þetta var tekið upp 1955, þegar framleiðslusjóðir til uppbóta á útflutta íslenzka framleiðslu voru teknir upp, bæði í sambandi við sjávarútveg og landbúnað, og það var byrjað þannig á því, að til þeirra landa, sem höfðu frjálsan gjaldeyri, voru útflutningsbæturnar 35% á vöruna og til vöruskiptalandanna 17.5%. Landbúnaðurinn yfirleitt sat við þau beztu kjör, sem sjávarútvegurinn sat við á þessum árum, með sína útflutningsframleiðslu, og árið 1958 var þetta komið upp í 94%. En það var annað. Þegar breytingin varð 1960, þá var tekinn sá réttur af bændum að hækka verðið innanlands á sinni vöru til þess að ná verðinu, ef vantaði á útfluttu afurðirnar, og þessi breyting varð að mörgu leyti til tjóns fyrir landbúnaðinn. Það er alveg rétt, að á þessum árum litu margir þannig á, að þessi 10% verðtrygging mundi duga næstu ár. Það voru bara liðin 3 ár, unz hún dugði alls ekki, og svo þekkjum við þessa sögu og þarf ekki að rifja hana upp. Það hlóðust upp vörurnar hér, og það var ekki hægt að flytja út, vegna þess að það vantaði útflutningsuppbætur, og með þessari sorgarsögu, að það vantaði svona mikið 1968.
1. þm. Sunnl. talaði um, að það væru minnstu búin í raun og veru, sem gerðu útkomuna svona slæma. Það getur vel verið, að hann hafi athugað, hvernig þetta kemur út hér t. d. á Suðurlandi. En tilfellið er, að stærstu búin víða koma ekki betur út, þeir sem þurfa að kaupa vinnukraft, en litlu búin. Það þekki ég mjög vel. Það er einfaldlega vegna þess, að það hefur verið búið þannig að landbúnaðinum, að hann þolir ekki að borga kaup, eins og aðrir atvinnuvegir borga, og það kemur þannig út, að stærri búin, sem eru rekin með aðkeyptu vinnuafli, koma ekki betur út í mörgum tilfellum. Þetta er auðvitað breytilegt eftir ýmsum aðstæðum, en þau koma yfirleitt ekki betur út en litlu búin. Beztu búin, bezti reksturinn er á þeim búum, þar sem fjölskyldan vinnur að búunum, og þau eru af þeirri stærð, að fjölskyldan ræður vel við rekstur þeirra.
Hv. 1. þm. Sunnl. talaði um það áðan, að mjólkuriðnaðurinn væri kominn í gott lag, og manni skildist það á hans máli áðan, að ekki þyrfti nú mikil átök að gera í þeim málum. Ég hélt, af því að ekki eru margir mánuðir síðan þessi hv. þm. kom úr ráðherrastóli, að hann vissi nú betur, að á ýmsum stöðum er eftir að byggja upp mjólkursamlög og mjólkuriðnaðinn, og hefur verið fyrirhugað í mörg ár að gera það. Það er á öðrum stöðum, sem þetta er í lagi í bili, á meðan framleiðslan er ekki meiri en er í dag, en það er kannske vegna þess, hvað framleiðslan hefur vaxið lítið á þessum síðustu árum.
Ég hefði vel getað unnt fyrrv. landbrh. að tala á annan veg en hann gerði í sambandi við þetta frv., þó að þar sé sjálfsagt, eins og um öll okkar mannanna verk, ýmislegt, sem gæti komið til álita og jafnvel gæti farið betur, þá væru líka mörg atriði í því, sem væru til mikilla bóta. Þegar við vorum að deila hér á árunum um framlagið til Landnáms ríkisins og einnig um framlagið, sem hann var nú búinn, eftir því sem ég kemst næst, að lofa í sambandi við uppbyggingu sláturhúsanna, þegar ekkert framlag kom til þess í Framleiðnisjóðinn, þá voru hér harðar umr. En þá var það nú svo, að þó að kannske þessi hv. þm., sem þá var landbrh., hafi allur verið af vilja gerður að standa við það, þá voru það einhverjir aðrir. sem tóku í hann, þannig að hann gat ekki innt þessi framlög af hendi. En ég held, að þessi 5 ár, sem ég hef verið á þingi, hafi sjaldan eða aldrei verið flutt jafnneikvæð ræða við 1. umr. um frv. hér á Alþ. og kom fram hjá þessum hv. ræðumanni áðan, því að það er bezt fyrir alla, þegar þeir eru að rökstyðja sinn málflutning, að viðurkenna það, sem betur hefur verið gert, en aftur að deila jafnvel harðara á það, sem í þeirra augum miður fer.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar nú. Mér gefst sjálfsagt tækifæri til þess að ræða þetta aftur við 2. umr., þegar þar að kemur. Ég vil endurtaka það, að ég mun beita mér fyrir breytingum, eftir því sem ég get, og ég vona, að menn gefi sér tíma til þess að athuga frv., og ef verður samkomulag um slíkar breytingar að athuguðu máli, að frv. verði talið þannig úr garði gert, að það nái betur sínum tilgangi. En ég vil líka undirstrika það sérstaklega, að ýmis ákvæði, sem eru í þessu frv. og eru ekki í gildandi lögum, eru til hagsbóta og horfa til betri hátta fyrir bændastéttina en sú löggjöf, sem við búum nú við.