29.11.1971
Efri deild: 19. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í C-deild Alþingistíðinda. (2963)

50. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Ég ætla ekki hér að fara að hefja neinar almennar stjórnmálaumr., eins og til hefur þó verið stofnað. Ég er líka ókunnugur, eins og ég tók fram, að miklu leyti þeim umr., sem hér urðu í fyrra. Þó að maður læsi um þetta nokkuð í blöðum og væri þeim kunnugur frá framboðsfundunum, þá er ég að miklu leyti ókunnugur þeim og hætti mér ekki út á þann hála ís að fara að dæma um það, hvað einstakur flokkur eða einstakir menn hafi þar lagt til mála. Hitt sýnist mér vera fyrir mestu, að menn eru hér almennt sammála um það, að þetta sé nauðsynjamál, sem eigi að ná fram að ganga og sjálfsagt sé. Hvað frekari framkvæmd allri líður í sambandi við tryggingamálin, þá vil ég aðeins ítreka það, að nefnd hefur verið skipuð til þess að endurskoða tryggingalögin, eins og ég sagði áðan, og það er hægt að upplýsa það einnig, að n. mun skila áliti nú mjög bráðlega, og þær breytingar, sem hún leggur til, tel ég að verði mjög veigamiklar og afskaplega mikið í anda þess, sem einmitt fyrrv. stjórnarandstaða hélt fram á s. l. þingi. Þessar breytingar munu verða lagðar fyrir Alþ. nú innan skamms. Og þangað til þær verða lagðar fram, held ég, að sé rétt að bíða með alla dóma um það, hvað núv. stjórn vill raunverulega leggja til í sambandi við tryggingabætur og almenna úrlausn tryggingamála. En það ber að fagna því, að menn eru svo sammála um það, eins og raun ber vitni, að flýting á gildistöku þessara laga hafi átt rétt á sér.