13.05.1972
Efri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2987)

279. mál, dagvistunarheimili

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðh. svör hans og því fremur sem frv. til l. um Fósturskóla Íslands var útbýtt hér í d., eftir að ég lauk máli mínu áðan. En verð þó að harma það, að það skuli vera lagt fyrst fram í síðustu viku þingsins, ef allt fer fram, sem stefnt er að, þegar ég hygg, að það hafi verið fullgert af undirbúningsnefndarinnar hálfu fyrir lok febrúarmánaðar s. l., ef ég les rétt úr aths. Ef samskonar dráttur hefur verið á hinu frv., þá ber að harma það, því að ef eðlilegur tími hefði farið í athugun málsins í rn., hefði verið unnt að afgreiða þessi frv. á þessu þingi.