16.05.1972
Efri deild: 83. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í C-deild Alþingistíðinda. (2995)
282. mál, sameinaður framhaldsskóli
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Réttast væri vegna efnis þessa máls, sem hér er lagt fyrir, að hafa um það allýtarlega framsögu, en verður þó ekki gert að sinni. Hér er um að ræða frv. að heimildarlögum, sem hafa það að markmiði, að Alþ. heimili ríkisstj. og Reykjavíkurborg að halda áfram undirbúningi, sem þegar er hafinn, að stofnun skóla af nýrri gerð í Reykjavík. Þessi skóli hefur í nál. og umr. manna á milli hlotið nafnið sameinaður framhaldsskóli. Ekki vil ég fullyrða, hvort það nafn festist, einnig hefur verið breytt nafninu fjölbrautaskóli og einhverjum fleiri. En í sem stytztu máli er þar um að ræða skóla, sem sameinar innan einnar stofnunar námsbrautir, sem hingað til hafa hvar um sig verið í sérstakri skólastofnun. Er ætlunin, að farið geti þar fram fullnaðarmenntun undir ýmis störf í atvinnulífi eða undirbúningsnám undir frekara nám í sérskólum og háskólum. Til að mynda má nefna námsbrautir eins og menntaskólanám, verzlunarnám, hússtjórnarnám, iðn- og iðjunám og tækninám. Með þessu fyrirkomulagi telja menn, að sérstaklega vinnist tvennt: Í fyrsta lagi beinn fjárhagslegur sparnaður með sameiginlegum afnotum fjölmenns nemendahóps af ýmsum mannvirkjum og tækjum, sem annars væru aðeins til afnota fyrir fámennari hóp, en einnig og enn frekar hafi skóli af þessari gerð, ef vel tekst til, mjög mikla félagslega og uppeldislega þýðingu. Í slíkum skóla er að því stefnt að auka jafnrétti nemenda með ólíka hæfileika og ólík áhugaefni. Þarna verða nemendur ekki bundnir af því, eins og í hefðbundnum skóla, að taka ákveðið námsefni á ákveðnu aldursstigi og að velja í eitt skipti fyrir öll milli námsbrauta. Skóli sem þessi gefur tækifæri til að nemandi tileinki sér námsefnið, eftir því sem hæfileikar hans, þarfir og vilji þróast, og jafnframt, að hann geti vikið milli námsbrauta, ef hann kemst að raun um það síðar á námsferli, að hann hafi ekki valið rétt við einhvers fyrri vegamót.
Einnig stuðlar slíkur framhaldsskóli tvímælalaust að því, að úr dragi ríg milli einstakra námsleiða, því leiða fyrirbæri, að nemendur, á einni námsleið hafi tilhneigingu til að líta niður á aðra eða öfugt. Þarna eiga nemendur á mismunandi námsleiðum að geta setið við sama borð.
Um efni frv. er það að segja, að meginefnisinntak þess er í fyrsta lagi að heimila, að áfram sé haldið samningum og undirbúningi á vegum menntmrn. og Reykjavíkurborgar, og í öðru lagi, að við stofnun slíks skóla skuli ríkið greiða 60% af stofnkostnaði, en Reykjavíkurborg 40%. Þessi skipting byggist á því, að um er að ræða skiptingu kostnaðar af stofnun og rekstri skóla, sem eðli sínu samkvæmt kemur í stað mismunandi skólastiga. Hér er um að ræða skóla, sem kæmi í stað gagnfræðaskóla, menntaskóla og jafnvel fleiri skóla. Þeir skólar eru sumir kostaðir sameiginlega af ríki og sveitarfélagi, aðrir, eins og t. d. menntaskólar, eru eingöngu kostaðir af ríki. Niðurstaða þeirra, sem um málið hafa fjallað, er sú, að eðlileg skipting, þar sem þessi skólastig renna saman, sé þessi: Ríkishlutinn verði 60%, en sveitarfélagshlutinn 40%.
Ég mun svo ekki hafa fleiri orð um þetta mál að sinni, en leyfi mér að leggja til, að því verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. menntmn.