28.10.1971
Neðri deild: 7. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (3000)
28. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Út af því, sem hv. 8. landsk. þm. sagði, vil ég staðfesta það, að það er rétt, að heildarendurskoðun fer fram á tekjusköttunum og tekjustofnum ríkissjóðs og þ. á m. eru skattar einstaklinga. Öllum slíkum atriðum, sem til mín hefur verið beint í sambandi við skattamálin, hef ég vísað til þeirrar n., sem vinnur að endurskoðuninni, og mér finnst það jafnsjálfsagt, að þetta frv. verði látið ganga þangað til þess að kynna henni þessi sjónarmið, sem koma fram í frv., og sem sagt vil undirstrika það, að mér er sérstaklega ljúft, að það sjónarnnið verði kynnt, og verði um það fjallað í sambandi við endurskoðun á skattalögunum í heild.