08.11.1971
Neðri deild: 10. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í C-deild Alþingistíðinda. (3007)

52. mál, Jafnlaunadómur

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að lýsa yfir stuðningi Alþfl. við meginhugsun þessa frv., sem er að stuðla að auknu launajafnrétti til handa konum í landinu.

Launajafnréttismálið hefur oft komið til umr. á Alþ. og er raunar margra árartuga gamalt sem baráttumál, bæði kvenna og samtaka hinna vinnandi manna í landinu. Mér er minnisstætt, að á tímum vinstri stjórnar Hermanns Jónassonar var gerð tilraun til að þoka því af stað með því að skipa í málið n., en árangur af þeirri nefndarskipun mun ekki hafa orðið mikill.

Á árinu 1960 um þetta leyti fluttu þrír alþm. í Ed., þeir Jón Þorsteinsson, Eggert G. Þorsteinsson og Friðjón Skarphéðinsson frv. um það, að konum skyldu tryggð sömu laun og karlar höfðu í almennri verkamannavinnu, verksmiðjuvinnu, verzlunar- og skrifstofuvinnu í 6 áföngum. Frv. þetta var til meðferðar í n. allan veturinn, og á meðan reyndust ýmsir alþm. vera reiðubúnir til þess að styðja önnur frv., sem gengu lengra. Þó fór svo um vorið, að ríkisstj., sem þá sat, gerði þetta þmfrv. að sínu. Ég tel ástæðu til þess að geta þess, að þáv. forsrh., Ólafur Thors, vann mikið starf við að sætta atvinnurekendasamtökin í landinu við þessa afgreiðslu málsins. Enda þótt ekki væri lagaleg nauðsyn á samþykkt þeirra, þá hafði hún töluvert raunhæft gildi.

Frv. þetta varð að lögum, eins og hv. frsm. nefndi, og á árabilinu 1962–1967 voru laun kvenna og karla samræmd samkvæmt því. Það hefur þó orðið ljóst á síðustu árum, að hér var aðeins um áfanga að ræða. Var aðeins gert ráð fyrir launajafnrétti í tilteknum atvinnugreinum, enda þótt rétt sé að minnast þess, að þetta eru þau svið atvinnulífsins, þar sem langmestur fjöldi kvenna er starfandi í dag.

Þegar þetta frv. var samþ., var talið, að kvennakaup væri 78% af karlakaupi fyrir sömu vinnu. Lengra er ekki síðan slíkur mismunur var talinn sjálfsagður og var samningsbundinn. Og á því ári gerðu samtök verkakvenna kröfur um 90% í staðinn fyrir 78%. Lengra treystu þau sér ekki til þess að stefna þá í þeim áfanga.

Það er nú liðin 10 ár síðan þetta frv. varð að lögum og 5 ár síðan áhrif þess áttu að vera komin fram, 1967. Á s. l. vori flutti núv. hæstv. iðnrh. till. til þál. um jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Þessi till. var samþ. m. a. með stuðningi Alþfl. Ég vil nú beina þeirri fsp. til hæstv. félmrh., sem þetta mál heyrir væntanlega undir, á hvern hátt sú rannsókn, sem þar var gert ráð fyrir, fari fram og hvað því máli líði. Við höfum í Alþfl. mikinn áhuga á því, að gerð verði ýtarleg úttekt á launajafnréttismálinu, og finnst ekki óeðlilegt, að sú úttekt verði nú gerð, 10 árum eftir að þessi lög náðu samþykki og 5 árum eftir að áhrif þeirra áttu að mestu að vera komin fram. Einstakar athuganir, eins og hv. frsm. skýrði frá, gefa vissulega tilefni til þess, að gerð verði allsherjarúttekt á því, hvernig þessi mál standa. Ég geri ráð fyrir því, að till., sem samþ. var í vor, ætti að ná til þess, að slík athugun verði gerð. Ef hún er ekki talin gefa tilefni til þess, væri gott um það að vita, því að ástæða væri þá til þess að hreyfa málinu á ný á þeim grundvelli.

Mér þætti vænt um, ef hæstv. ráðh. eða höfundur till. gætu gefið þd. frekari upplýsingar um þetta mál. Ég vil svo ítreka það, að ég lýsi stuðningi við meginhugsun þessa frv.