08.11.1971
Neðri deild: 10. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (3010)
52. mál, Jafnlaunadómur
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Jafnframt því, sem tveir ágætir fulltrúar kvenþjóðarinnar hafa tjáð sig um þetta mál, þá hefur fulltrúi eins stjórnmálaflokksins hér á Alþ. staðið upp og lýst stuðningi flokks síns við þetta mál. Bæði er það nú vegna þess, að mér finnst það í sjálfu sér andkannalegt, að menn sjái ástæðu til þess að lýsa yfir stuðningi heils stjórnmálaflokks við slíkt mál, jafnréttismál kynjanna, og svo vegna hins, að ég tel ástæðulaust að láta það um okkur spyrjast hér á hinu háa Alþ., að konur hafi einkarétt á að tjá sig og styðja þetta mál, að ég sé ástæðu til þess að standa hér upp og láta í ljós mína skoðun. Ég hef að vísu ekki umboð til þess að lýsa yfir stuðningi míns flokks, heils og óskipts, við þetta mál, en ég tel hins vegar öruggt, að flokksmenn mínir, eins og reyndar annað fólk á Íslandi, bæði karlar og konur, geti vel fallist á og stutt slíkt mál, sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna.
Ég held, að í raun sé enginn hlynntur misrétti milli karla og kvenna. Það er hins vegar reynsla okkar í þjóðfélaginu, bæði hér og annars staðar, að slíkt misrétti á sér stað í litlum eða stórum mæli, og þess vegna er það spurning, sem hlýtur að vakna, af hverju þetta misrétti stafar, þegar enginn vill stuðla að því og enginn vill viðurkenna, að hann vilji viðhalda slíku misrétti. Þessi spurning vaknar vegna þess, að ég skil þetta mál svo, að það sé sett hér fram meira til þess að leggja áherslu á „prinsippið“ á grundvallaratriðin, sem felast í því, að það skuli vera jafnrétti milli kynjanna, — ekki endilega, að þetta mál sé lausn á öllum þeim vanda, heldur að það sé til þess að koma hér af stað einhverjum umr. um þessi mál.
Ég hef stundum hugleitt það með sjálfum mér, hvað valdi, og ég tel, að m. a. sé ástæða til þess kannske röng pólitík hjá kvenfólkinu, sem hefur haft forustu í því að draga úr þessu misrétti. Kvenréttindasamtökin hafa verið hér á ferðinni, og þau hafa, að manni hefur virzt úr fjarlægð, rekið sína pólitík á þann hátt, að það sé ekki í tengslum við hinn almenna fjölda kvenna, sett hafi verið á oddinn mál og kröfur, sem ekki hafa átt hljómgrunn hjá kvenfólkinu, og þau hafi stundum talað út, þegar fjöldinn talar suður. Enn fremur sýnist mér það vera ljóður á ráði kvenna, sérstaklega nú í seinni tíð, að þær vilja um of, a. m. k. þær sem hafa sig í frammi, blanda þessa baráttu sína pólitískum átökum í þessu landi. Þær hafa viljað tengja baráttu sína við pólitíska flokka og því miður þess vegna fælt frá sér einhverja stuðningsmenn, sem hafa viljað vera og eru hlynntir þessari baráttu, en geta ekki af stjórnmálalegum og flokkslegum ástæðum tekið þátt í þeirri baráttu, sem beinlínis er rekin eða háð undir merki ákveðinna stjórnmálaflokka. Þetta segi ég ekki til þess að draga úr ágætri baráttu, t. d. samtaka eins og Rauðsokkanna, heldur til þess að vekja athygli á, að það eru stundum baráttuaðferðir, sem geta valdið því, að markmiðið sjálft nái ekki fram að ganga. Misrétti það, sem við getum öll viðurkennt að ríki hér í meira eða minna mæli, stafar af ýmsum ástæðum og er af öðrum toga spunnið en það, að menn vilji einfaldlega ekki borga jafnhá laun til kvenna og til karla. Þar er um að ræða mjög gamalgróið vanmat á starfshæfni kvenna, vanmat, sem við verðum að vinna bug á og tekur lengri tíma en svo, að það sé gert í einu vetfangi. Það er ein ástæðan fyrir því líka, að konur hafa aflað sér annarrar og stundum takmarkaðrar menntunar á við karlmenn, sem leiðir aftur af sér, að þær eru ekki eins hæfar til þess að taka að sér þau störf, sem stundum eru betur launuð í þjóðfélaginu, og eins er það líka, að konur hafa einfaldlega ekki haft aðstöðu til þess að afla sér þessarar menntunar, hafa síðan leitað í störf eða menntun, sem veitir þeim störf, sem aftur eru þess eðlis, að þau krefjast ekki mikillar hæfni og eru, eins og við köllum í daglegu tali, léttari störf, og nefni ég það ekki til þess að gera lítið úr störfum eins og vélritunar- og skrifstofustörfum, afgreiðslustörfum og öðru slíku, sem konur gjarnan vinna og krefjast óneitanlega minni menntunar, en þær hafa sótzt eftir slíku námi og þar af leiðandi slíku starfi. Verkaskiptingin í þjóðfélaginu hefur líka stuðlað að þessu misrétti, ef við köllum það svo, verkaskipting, sem þessi kynslóð hefur ekki skapað og ekki kallað yfir sig, hefur skapazt í gegnum aldirnar og þeirri verkaskiptingu verður ekki með góðu móti varpað fyrir róða í einu vetfangi, eins og ég sagði áðan, svo ekki sé talað um líkamsburði karla og kvenna, sem sennilega gengur erfiðlega líka að breyta með skjótum hætti, og svo umfram allt er það sú hefð og sú venja, sem komizt hefur á um störf kynjanna.
Ég held þess vegna, að þó að þetta mál sé mjög gott og gagnlegt og sé þess virði, að það sé mjög athugað, þá leysi það ekki allan vanda á þessum vettvangi. Það þarf að kafa miklu dýpra, það þarf að skapa þær aðstæður í þjóðfélaginu, skapa þann hugsunarhátt og skapa þau viðhorf, sem leiða til þess, að fólk hefur aukinn skilning á því, að það eigi ekki að eiga sér stað misrétti á milli kynjanna. Þess vegna held ég, að umr., sem gætu farið hér fram á hinu háa Alþ. um þau mál og væru meira um grundvallaratriði, gætu leitt til aukins skilnings og leitt til þess, að við hér séum betur fær um að setja einhverja slíka löggjöf eða beita okkur fyrir einhverjum þeim málum, sem ættu að geta jafnað þennan mun.
Hvað snertir þetta ákveðna mál, um jafnlaunadóm, þá finnst mér þarna vera um mjög athyglisverða hugmynd að ræða, sem rétt sé að skoða mjög vel, en þó er náttúrlega sú spurning, sem strax kemur upp í huga manns og sett var hér fram af síðasta ræðumanni, hversu virkur þessi dómur getur orðið. Bent var á, að fyrir hendi væri félagsdómur, sem konur og reyndar aðrir gætu skotið sínum kvörtunum til. En í reynd hefur það verið svo, að sú aðferð eða sú leið hefur lítið verið notuð, og reynslan hefur sýnt, að konur hafa kinokað sér við að kæra eða bera sín mál undir slíka dómstóla, og spurningin er sú, hvort það mundi eitthvað bætast eða aukast með stofnun slíks dómstóls eins og hér um ræðir. Sú spurning kemur líka upp, og er kannske samtengd þessu: Vilja konur og aðrir, sem starfa hjá atvinnurekendum, hjá hinu opinbera eða einstaklingum, bera mál sín undir dómstóla fyrr en það er þá þrautreynt að ná samstarfi og samkomulagi við viðkomandi atvinnurekanda, og gætum við ekki reynt að finna leiðir, sem stuðluðu að auknu samkomulagi eða samvinnu í þeim efnum, áður en farið væri út í það að kæra slíkt mál til dómstóla, sem aftur leiddi af sér hörku og óbilgirni og jafnvel til uppsagna og annarra erfiðleika, þannig að viðkomandi aðilar stæðu sízt betur að vígi eftir þann hildarleik?