03.05.1972
Neðri deild: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (3025)
52. mál, Jafnlaunadómur
Frsm. (Svava Jakobsdóttir) :
Herra forseti. Ég hlýt að játa, að mér þykir málflutningur þeirra beggja, hæstv. félmrh. og hv. 12. þm. Reykv., að mörgu leyti harla undarlegur. Þau hafa bæði haft mörg orð um það, að dómstólaleiðin, eins og þau nefna það, — ég vil þó vekja athygli á því, að hér er ekki um dómstól að ræða, heldur ráð með úrskurðarvaldi um eitt einasta atriði, að þessi leið muni vera viðkvæm og særandi. Þau draga nánast grátklökkar myndir upp af vinnustöðum, þar verði grátur og gnístran tanna, og þess vegna sé ómögulegt að fela jafnlaunaráði þetta hlutverk, sem því er ætlað samkv. 4. gr. Ég fæ ekki skilið, að það verði viðkvæmara eða meira særandi, þó að máli sé skotið til jafnlaunaráðs en til félagsdóms. Að því leyti hlýtur eðli málsins að vera nákvæmlega hið sama. Þau rök, að jafnlaunaráð eigi ekki að hafa þetta hlutverk, vegna þess að það mundi valda sundrung, falla því að mínu áliti um sjálf sig.
Ég er vitaskuld fyllilega sammála hæstv. félmrh. um það, að ekki eigi að hlaupa í það að kæra, og ég held, að ég hafi aldrei látið þau orð falla úr þessum ræðustól í sambandi við þetta mál, að ég teldi það sjálfsagt sem fyrsta skref. Og ég vil henda honum á 4. gr. í brtt. allshn., þar sem talin eru upp atriði, sem jafnlaunaráði ber að gera, og í 6. tölul. stendur, að ráðið skuli kveða upp úrskurð í deilumálum, er rísi út af kærum um brot á lögum þessum, ef eigi takast sættir með aðilum, en ætíð skal jafnlaunaráð leita þeirra. Ég lít svo á, að hér sé nánast um ástarjátningu til atvinnurekenda að ræða, og ég efast um, að til sé skýrari ástarjátning í félagsdómi. A. m. k. hef ég ekki getað fundið hana.
Annað mjög mikilvægt atriði vil ég ræða hér nánar. Það hefur komizt inn sá grundvallarmisskilningur, að jafnlaunaráð eigi að koma í stað frjálsra vinnusamninga og í stað kjaradóms. Þetta er alger misskilningur. Það sem jafnlaunaráði ber að gera, er í fyrsta lagi að skera úr um, hvort það starf, sem konan eða einstaklingurinn innir af hendi, sé í samræmi við það starfsheiti eða þann launaflokk, sem henni hefur verið skipað í, og í öðru lagi, hvort hver einstaklingur nýtur allra þeirra hlunninda og kjara, sem hinir frjálsu vinnusamningar eða kjaradómur ætlast til. Hér er um persónulega ráðningarsamninga að ræða, ekki vinnusamninga.
Það kann að vera, að ákvæðin um jafnan rétt karla og kvenna í lögum um opinbera starfsmenn séu skýr á prenti, en sá, sem hefur orðið að vinna undir þeim, hefur allt aðra reynslu. Sömu laun fyrir sömu störf geta opnað nánast ótæmandi möguleika fyrir atvinnurekendur. Ég get nefnt hæstv. félmrh. eitt dæmi. Ef kona vinnur meinatæknistörf, þá er hún kölluð meinatæknir og skipað í launaflokk eftir því. Hins vegar veit ég um einn karlmann, sem vinnur meinatæknistörf. Hann er kallaður bóluefnastjóri og er þar af leiðandi settur tveimur launaflokkum ofar. Það eru m. a. slík mál, sem jafnlaunaráði yrði falið að fjalla um.
Ég vil aðeins koma inn á umsagnir Dómarafélagsins. Ég vil benda hæstv. félmrh. á það, að mörg þau atriði, sem hann las hér áðan í ræðu sinni, eru þegar komin út úr frv. og voru tekin til greina, eins og brtt. allshn. ber með sér. Frjáls sóknaraðild er ekki lengur fyrir hendi. Hins vegar er komin inn heimild til þess að gefa jafnlaunaráði ábendingu, ef grunur leikur á um misrétti. Margt af því, sem hæstv. félmrh. sagði síðast, var raunar hér til umr. við 2. umr. málsins og er þegar orðið úrelt og fellur því um sjálft sig. Eftir sem áður stendur það óhaggað, að eigi að vísa ágreiningsmálum til félagsdóms, verður konan að fá samþykki fjögurra aðila til þess að fá mál sitt tekið upp þriggja dómara og mótaðilans. Öðruvísi getur hún ekki fengið málið tekið fyrir. Þetta tel ég það mikinn þröskuld, að það sé varla hæfa fyrir hv. Alþ. að samþykkja þessar brtt. hv. 12. þm. Reykv., eins og þær liggja hér fyrir nú. Aðrar breytingar á félagsdómi leggur hún ekki til, að gerðar verði en þær, sem eru í 45. gr. og fjalla um skipun í dóminn. Eftir sem áður er gert ráð fyrir, að málsmeðferðin verði hin sama.
Ég óttast það ekki, að konur muni endilega rjúka til að kæra. Ég held, að sú mynd, sem hæstv. félmrh. dró hér upp áðan til að sýna, hve ófúsar þær væru að kæra, gefi því síður en svo tilefni til þess að ætla, að jafnlaunaráð verði vígvöllur kvenna og atvinnurekenda eða yfirmanna. Ég held hins vegar, að það sem hann sagði um þetta, að þær væru ófúsar að kæra, ætti fremur að opna augu hans fyrir því, við hvers konar mál hér er að etja. Hann er sjálfur gamalreyndur og virtur verkalýðsforingi. Hann veit það ósköp vel, að til þess að aðili, sem er minnimáttar í þjóðfélaginu, nái rétti sínum, er ekki nægilegt að setja lög, sem kannske aðeins einhver forréttindahópur hefur tök á að nota sér. Það er ekki nægilegt að gefa út góðar viljayfirlýsingar. Það verður að aðhafast eitthvað til þess að þetta fólk, sem verið er að vinna fyrir, öðlist kjark til þess að rísa upp og leita þess réttar, sem það veit, að það á. Þetta er mergurinn málsins.
Ég átti þess kost nýlega að ræða við forstöðukonu jafnlaunaráðs í Noregi. Jafnlaunaráð hefur starfað í Noregi nú um nokkurt skeið, og þeir voru að breyta því núna á þessu þingi í jafnréttisráð, til þess að það næði yfir miklu víðtækara svið. Hún sagði mér, að jafnlaunaráð hefði fengið nokkru áorkað, en ekki nægilegu, vegna þess að það hefði ekki það úrskurðarvald í málum, sem það þyrfti að hafa, það hefði ekki það vald, sem dygði til þess að fá fram raunhæfar aðgerðir. Það tekur dálítið langan tíma að breyta hugarfari heillar kynslóðar.