10.11.1971
Neðri deild: 11. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í C-deild Alþingistíðinda. (3039)
64. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir, að reglum um skiptingu framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði breytt, að því er tekur til landsútsvara og söluskatts. Hv. flm. leggur til, að áfram standi sú regla, að fjórðungur landsútsvara, sem til falla í hverju sveitarfélagi, komi í hlut þess. Hins vegar gerir flm. ráð fyrir, að 3/4 hlutum landsútsvara ásamt söluskatti, samkv. 16. gr. tekjustofnalaga a-lið, skuli skipt á milli sveitarfélaganna þannig, eins og segir í frv., að fyrst skuli úthlutað til hvers sveitarfélags fé, er svari til þess, sem útsvör verða lægri en þau ella hefðu orðið vegna sérstaks frádráttar sjómanna samkv. 14. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt. Því, sem þá verður eftir, skuli síðan skipta milli sveitarfélaganna í réttu hlutfalli við íbúatölu hvers sveitarfélags hinn 1. des. árið á undan, og síðan greinin óbreytt. Breytingin er því sú, að fyrst skuli úthlutað úr sjóðnum til þeirra sveitarfélaga, sem hafa sjómenn meðal sinna íbúa, og þau munu vera nokkuð mörg.
Það, sem kemur mér til að standa hér upp, er sá vafi, sem mér þykir leika á því, hvort hér sé farið inn á rétta braut. Ég tek hins vegar skýrt fram, að ég er ekki í neinum vafa um nauðsyn þess, að réttur verði hlutur sjómanna. Einn þátturinn í þeirri viðleitni er ívilnun í greiðslum opinberra gjalda, og liggja nú fyrir hinu háa Alþ. tvö frv., sem ganga í þá átt. Skattfríðindi til handa sjómönnum hefur löggjafarvaldið fyrir löngu viðurkennt, en almennt er líka viðurkennt, að ekki sé nóg að gert og því muni ganga erfiðlega að manna bátaflotann. Hér verður því að finna færa leið.
Með frv. þessu, sem hér er til umr., er lagt til, að hinn sérstaki sjómannafrádráttur verði borinn af þjóðarheildinni án tillits til atvinnuskiptingar í hverju sveitarfélagi, eins og segir í grg. með frv. Á þessa skoðun fellst ég. Hins vegar bendi ég á, að tekjustofna sveitarfélaganna má ekki skerða. Jöfnunarsjóður var þeim kærkominn tekjustofn, og það væri illa farið, ef hann yrði skertur, þótt óbeint sé. Í samræmi við þá skoðun, að hinn sérstaki sjómannafrádráttur væri borinn af þjóðarheildinni, tel ég réttara, að ríkissjóður fremur en Jöfnunarsjóður beri þennan kostnað.
Ég vil einnig benda á, að tekjuþörf hinna einstöku sveitarfélaga er mjög misjöfn. Til eru hrein landbúnaðarsveitarfélög, sem verða að leggja útsvör á með álagi á útsvarsstiga, til þess að endar nái saman. Það eru einnig til sjávarpláss, sem virðast hafa efni á að veita afslátt frá útsvarsstiga. Ég hef ekki skýrslur undir höndum yfir álagningu ársins 1971, en ég hef farið í gegnum skýrslur frá árinu 1970 og þar má greinilega sjá þetta, og þar á meðal má sjá Bolungarvík, sem hér var minnzt á áðan, sem hefur veitt 5% afslátt það ár frá útsvarsstiga. Ég vil spyrja t. d., hvað sveitarstjórnir í landbúnaðarhéruðum segja, ef jöfnunarsjóðsframlag þeirra er skert til að staðið verði undir kostnaði við að halda uppi nauðsynlegri þjónustu í sjávarþorpum. Það eru til hreinir sveitahreppar, sem þurfa að leggja á með allt að 30% álagi á lögbundinn útsvarsstiga. Það væri ekkert eðlilegra en beiðni kæmi frá þessum sveitarfélögum um sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði með þeim rökstuðningi, að bændur væru svo tekjulágir, að endar næðu ekki saman, þótt útsvör og aðstöðugjöld væru lögð á eins og lög framast heimila.
Ég mælist því eindregið til þess, að mál þetta verði athugað vandlega og fordómalaust og niðurstaða fáist, sem hin ólíku sveitarfélög geti sætt sig við. Annars liggur það nú í loftinu, að vænta megi umfangsmikilla breytinga á skatta- og tekjustofnalögum. Ef vænta má frv. um þau efni á næstunni, hlýtur að vera skynsamlegt að bíða með afgreiðslu þessa máls, þar til þau frv. hafa séð dagsins ljós.