22.11.1971
Neðri deild: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (3048)
73. mál, læknishéraðasjóðir
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Eins og hv. frsm. benti á, er hér um að ræða mál, sem mjög oft hefur verið á dagskrá á Alþ. og er eitt af stærri vandamálum þjóðfélagsins, sem ég held, að allir þm. séu sammála um, að verði á einhvern hátt að leysa. Ég minnist þess ekki, að það hafi komið fram við þær umr., sem hér hafa orðið um þetta mál, nein hugmynd um athugun á því, hvort ekki mætti koma þarna á kannske verulegum úrbótum með því að ríkisvaldið gengist fyrir því, að keyptar yrðu smærri þyrlur til flutninga á læknum og þá aftur á sjúklingum á sjúkrahús, þegar þess þyrfti með. Ég geri mér alveg ljóst, að þarna er um verulegt fjármagn að ræða, en ég hygg, að alþm. séu almennt sammála um, að það þýði ekki að horfa í fjármagn í þessu sambandi, ef einhverjar leiðir eru til, til úrbóta, þá verði í þær að ráðast. Það er alkunna, að þyrlur eru nú orðið mjög mikið notaðar víða erlendis, þar sem erfiðar aðstæður eru með flugvelli einmitt í sambandi við sjúkraþjónustu. Ég vildi koma þessari hugmynd að hér við 1. umr. um þetta mál, til þess að sú n., sem fær það til meðferðar, gæti þá jafnframt skoðað þessa hlið málsins og þá ábendingu, sem hér er um að ræða. Íslendingar hafa enn sem komið er litla reynslu af þyrlum og notagildi þeirra, en þó nokkra, og ég hygg, að ef t. d. væri staðsett ein þyrla á Austurlandi, önnur á Norðurlandi og ein á Vestfjörðum, þá mundi það skapa þó nokkurt öryggi fyrir þá lækna, sem þar starfa, og það fólk, sem þarf á læknishjálp að halda. Bæði vegakerfi og sjúkraflugvellir eru því háð, að þessar samgönguleiðir verða ekki notaðar, ef um snjó eða ófærð er að ræða. Þyrlum verður aftur á móti mjög oft komið við við aðstæður, sem öðrum farartækjum verður ekki, og það er skoðun mín, að það mætti nokkuð tryggja læknisþjónustuna og gera hana nokkru öruggari með því að hafa þyrlur staðsettar eina í hverjum fjórðungi, eins og ég hér hef bent á, þ. e. Austfirðingafjórðungi, Norðlendingafjórðungi og Vestfirðingafjórðungi.