02.02.1972
Neðri deild: 37. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (3069)
156. mál, þingsköp Alþingis
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Þingsköp Alþingis eru að meginstofni til frá 1936, en hefur verið breytt nokkrum sinnum síðan, seinast, að ég ætla, árið 1964. Eins og hv. 1. flm. þessa frv. gat um, var hafin endurskoðun á þingsköpum fyrir nokkrum árum, og var samið frv. það, sem hér liggur fyrir og nú er flutt í fimmta sinn. Þetta er ákaflega furðuleg saga, þegar þess er gætt, að frá upphafi hafa fulltrúar allra flokka verið sammála um þetta frv. og verið flm. að því. Fjórum sinnum hefur þetta sameiginlega frv. allra flokka verið flutt og fjórum sinnum hefur það dagað uppi í n. og ekki hlotið afgreiðslu. Nú er það flutt í fimmta sinn, og skulum við vænta þess, að eitthvað hafi skipazt, þannig að nú geti orðið samstaða um að gera þær endurbætur, sem nauðsynlegar eru á þingsköpum. Ég tel, að margt og raunar flest í þessu frv. sé til bóta.
Hv. 1. flm. rakti efni frv. og bætti við aths. til viðbótar og ræddi þar einkum um fsp. Ég vildi aðeins við þessa 1. umr. minnast á fáein atriði til athugunar fyrir hv. allshn., sem fær málið til meðferðar.
Ég vil taka mjög undir það með hv. 1. þm. Austf., að ákvæðin um fsp., reglurnar um fsp. hafa að sumu leyti misst marks. Það var ætlunin, þegar þau voru lögtekin, að hér yrði um að ræða fsp., sem tækju stutta stund í upphafi hvers fundar í Sþ., í áttina við það, sem væri í öðrum þjóðþingum og alveg sérstaklega í brezka þinginu. Niðurstaðan hefur orðið sú, að fsp. taka oft mjög langan tíma og stundum er það þannig á fundum í Sþ., að þar sem byrja skal fund með fsp. samkv. þingsköpum, þá fer meginhluti fundartímans, a. m. k. fram undir kl. 4, í fsp., þannig að önnur mál komast ekki að. Einhverjar breytingar þarf hér á að gera, og tel ég mjög athyglisvert það, sem lagt er til í frv.
Varðandi það atriði, hvort eigi að takmarka ræðutíma manna eða heimild til að taka til máls frekar en gert er í frv., er sjálfsagt að athuga það. Þó ætla ég, að í hugmynd hv. 1. flm. um að takmarka ræðutíma manna, annarra en fyrirspyrjenda, við 2 mín. sé helzt til naumt skammtað, og býst ég við, að mörgum þm. muni þá þykja þröngt fyrir dyrum, ef þeir mega ekki tala lengur en 2 mín., og sumum fyndist þá kannske varla taka því að fara upp í ræðustólinn með slík takmörk. Mér finnst hin hugmyndin líka koma mjög til athugunar, að fyrirspyrjandi tali fyrst, síðan svari ráðh., fyrirspyrjandi megi síðan gera aths. og síðan sé umr. lokið, þannig að aðrir komi þar ekki inn í umr. heldur en fyrirspyrjandi og ráðh. Það finnst mér einnig mjög til athugunar, og ef sá háttur yrði hafður á, þá held ég, að fsp. mundu ná tilgangi sínum og verða innan þess ramma, sem upphaflega var til ætlazt.
En í sambandi við fsp. eins og nú er, þá er athugandi, að fundir í Sþ. eru og hafa undanfarin ár verið með þeim hætti, að ákaflega örðuglega gengur að þoka málum þar áleiðis. Þess eru dæmi, m. a. á þessu þingi, að till., sem fram eru bornar í Sþ., þurfa að bíða vikur, jafnvel mánuði eftir því að komast til umr. eða komast til n. Þetta stafar af miklu annríki, einkum af þáltill. og fsp. í Sþ. Þetta hefur m. a. leitt til þess, að nokkuð er farið að bera á því, að till. til þál. eru nú fluttar í deildum í stað Sþ., fyrst og fremst og ég ætla jafnvel eingöngu vegna þess, að þá eru líkur til, að þær komist fyrr á dagskrá. Hér er málefni, sem þarf athugunar við, á hvern veg er hægt að breyta starfsháttum að þessu leyti, þannig að málefnum þoki betur áfram í Sþ.
Eitt atriði er enn í þessu sambandi, sem mér finnst þurfa að athuga í sambandi við þingsköp, og það eru fsp. utan dagskrár og umr. utan dagskrár. Nú hefur það jafnan tíðkazt í Alþ., að öðru hverju væru gerðar aths. eða fsp. til ráðh. utan dagskrár, og er ekkert við það að athuga. En hitt kemur einnig fyrir, að þær umr. taka meginhluta fundartímans. Er þess skemmst að minnast nú fyrir tveimur dögum, þegar fsp. var gerð út af mikilvægu máli hér í hv. Nd., að þær umr. stóðu fram undir kl. 4, þannig að þá fyrst var unnt að ganga til dagskrár, þegar fundartími var að lokum kominn. Ég ætla, að alveg eins og þörf er á að setja almennar reglur um fsp. og endurskoða þær reglur, sem nú eru, þá væri það athugandi fyrir allshn., hvort ekki ætti einnig að setja einhverjar reglur um fsp. og umr. utan dagskrár, þannig að slíkar umr. gangi ekki um of út á meðferð almennra þingmála.
Það er einnig í sambandi við þingnefndir, sem ég vildi beina því til hv. allshn., að hún taki eitt atriði til athugunar. Í þingsköpunum er nú svo ákveðið um eina n. í þingi, að hún skuli einnig starfa milli þinga. Í 16. gr. þingskapanna segir: „Utanríkismálanefnd starfar einnig milli þinga, og skal rn. ávallt bera undir hana utanríkismál, sem fyrir koma milli þinga: Slík ákvæði eru ekki um aðrar þingnefndir. Ég ætla hins vegar, að það væri til gagns fyrir meðferð mála, ef heimilt væri að kveðja þingnefnd til starfa einnig milli þinga. Nú hefur þetta verið gert að vissu leyti, án beinnar heimildar í þingsköpum, á þann veg, að nm. eru kallaðir stundum til, áður en þing kemur saman, til að athuga einstök mál, og einkum á það sér stað varðandi fjvn. eða fulltrúa frá fjvn. Fyrir nokkrum árum var sá háttur tekinn upp að kveðja form. fjvn. til starfa strax að hausti í sambandi við undirbúning fjárl., þannig að hann gæti fylgzt með og tekið þátt í þeim störfum ásamt starfsmönnum fjmrn. strax frá byrjun eða a. m. k. frá, að ég ætla, seinni hluta sumars. Þetta ætla ég, að hafi orðið til gagns fyrir störf fjvn., þegar þar að kom. Síðan hefur þessi starfsemi varið aukin að því leyti, að fleiri fulltrúar úr fjvn. hafa verið kvaddir til starfa við undirbúning fjárl., en mér finnst það væri athugandi, ekki aðeins varðandi fjvn., heldur ýmsar aðrar n., að í þingsköpunum væri bein heimild til þess að þingnefndir störfuðu milli þinga, eftir því sem tilefni gæfust til, þannig að ýmist ríkisstj. eða einstakir ráðh. óskuðu eftir því og þá að sjálfsögðu í samráði við formenn þingnefnda.
Loks er eitt atriði, sem ég vildi einnig beina til hv. n., og það er um að endurskoða ákvæði þingskapanna um atkvgr. og kosningar í þingi. Því er ekki að neita, að sum ákvæði þeirra eru ekki nógu ljós og hafa jafnvel verið umdeild. Á ég þar sérstaklega við það atriði, hvernig skuli meta atkv. þeirra, sem lýsa því yfir, að þeir greiða ekki atkv., og um gildi auðra seðla. Þetta kom m. a. til athugunar í byrjun þessa þings varðandi túlkun á 3. gr. þingskapanna. En í 3. gr. þingskapa segir: „Rétt kjörinn forseti er sá, er hefur meira en helming greiddra atkv., þeirra er á fundi eru.“
Hér hefur verið uppi tvenns konar skilningur: Annars vegar, að meiri hl. þm. þurfi beinlínis að kjósa einn tiltekinn mann og það sé ógild kosning, ef forseti eða varaforsetar fá minna en helming atkv., þ. e. a. s. ef meiri hl. þm. skilar auðum seðlum. Aðrir hafa aftur á móti túlkað þetta svo, að það væri gild kosning, jafnvel þó að meiri hluti þm. skilaði auðum seðlum. Ég skal hér engan dóm á þetta leggja, en bendi á, að bæði um túlkun á þessu ákvæði í 3. gr. þingskapa og raunar á fleiri ákvæðum þingskapa um atkvgr. er nokkur vafi, hvernig eigi að skilja. Og það væri mjög æskilegt, ef hv. allshn. vildi taka það til athugunar, hvort hún treysti sér til þess að gera þau ákvæði skýrari um kosningar og atkvgr. innan þingsins, sem nú hefur verið og lengi hefur verið ágreiningur um, hvernig skyldi túlka.