02.02.1972
Neðri deild: 37. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í C-deild Alþingistíðinda. (3072)
156. mál, þingsköp Alþingis
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. nú. Ég kvaddi mér aðeins hljóðs til þess að undirstrika það, að þar sem þetta frv. er frv. um þingsköpin, ný þingsköp, og er búið að vera fyrir fjórum þingum og er nú lagt fram að nýju í samráði við flokkana, þá finnst mér, að flokkarnir eigi að taka höndum saman á þessu þingi og ljúka því verki að endurskoða þingsköpin. Það er enginn efi á því, að það er ekki mikið verk að endurbæta þingsköpin frá því, sem nú er, og við höfum fengið af því góða reynslu á liðnum árum, og ýmsar augljósar ábendingar hafa komið fram. Mér finnst, að við eigum ekki að setja of mikið fyrir okkur, að við séum að semja þingsköp fyrir alla framtíð. Þetta er eins og önnur lög, sem hægt er að breyta eftir hendinni við og við með einstökum breytingum.
En ég tel það mikils virði, að þingflokkarnir sameinist um það að ljúka nú endurskoðun þingskapanna í einu formi eða öðru, sníða af þeim verstu vankantana a. m. k. Hér hefur sérstaklega verið rætt um sjónvarp og útvarp frá Alþ. Það er annað mál, sem blandast inn í þetta, sem ég vildi aðeins nefna, en það snertir fleira en þingsköpin. Og það er sú spurning, að breyta þyrfti stjórnarskránni, þannig að Alþ. starfaði í einni málstofu. Ég ræddi um það í fyrra við þingflokkana, hvort samkomulag gæti orðið um það í sambandi við kosningarnar, sem þá fóru í hönd, og það varð nú ekki, en ég minnist á þetta nú vegna þess, að nú fyrir nokkrum dögum hefur byrjað að starfa að nýju húsbyggingarnefnd Alþ., sem skipuð er einum manni frá hverjum þingflokki, og það skiptir mjög miklu máli, að ég hygg, ef menn vilja fá einhverjar endanlegar niðurstöður þar, sem ég tel mjög æskilegt, en hjakka ekki alltaf í sama farinu, hvort við eigum að gera ráð fyrir því, að Alþ. starfi í einni málstofu eða tveimur. Það er miklum vanköntum háð að breyta þessu húsi, þrengslin eru svo mikil hér í þessum þingsal, ef báðar deildirnar, eins og Sþ. er nú, eiga að inna öll sín störf af höndum hér. En eftir því sem við margir hverjir álítum, þá yrði þessi vandi miklu auðleystari en með öðrum hætti, ef mætti gera ráð fyrir því, að Ed.-salurinn gæti orðið til stækkunar á þessum sal hér, vegna þess að það væri bara ein málstofa. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar, að það muni taka verulega langan tíma — og það saki kannske ekki, þangað til menn séu orðnir sammála um staðsetningu og fyrirkomulag nýs þinghúss. En það hefur miðað töluvert í þá átt að bæta starfsaðstöðuna hér í þinghúsinu og við höfum mikla möguleika í kringum þinghúsið til þess að byggja ýmiss konar viðbyggingar, sem þó eru ekki þinghús í þeim skilningi, öðruvísi en vera skrifstofur og vistarverur þm., salarkynni, kaffistofur og annað slíkt. En þetta atriði í sambandi við sjálfan þingsalinn og afnot hans kemur þarna inn í málið. Ég bendi á þetta, vegna þess að það er mjög æskilegt, að þm. hugsi um þetta, og við munum auðvitað halda áfram að athuga þetta mál nánar í húsbyggingarnefnd þinghúss, sem ég vék að áðan og hefur, nú á ný hafið starfsemi sína. Hún er nokkuð gömul, þessi n., hefur starfað mjög skrykkjótt, en hér er þýðingarmikið atriði á ferðinni.
Það er einnig betra að hafa þetta atriði í huga áður en kosningar standa rétt fyrir dyrum, þannig að menn hafi tóm til að átta sig á því, en geti þó tengt breytingar og kannske þá einhverjar aðrar breytingar á stjórnarskránni við slíkar breytingar, þegar að þingkosningum kemur, án þess að beita þeim sérstöku aðferðum, sem gilda um þingrof og kosningar af þessu tilefni. Það var að vísu sagt svo við mig í fyrra, að ríkisstj. þáv. væri hrædd um að tapa einu þingsæti og vildi skapa sér möguleika til að starfa áfram með meiri hluta þings, þó að það væri ekki nema eins atkv. meiri hl., sem mundi vera og er lýðræðislega rétt, þegar þingið er í einni málstofu, en annað á við, þegar tvær eru deildirnar. Þetta var nú ekki, því að ég held, að þáv. ríkisstj. hafi verið búin að boða þessa breytingu sem skoðun sína eða a. m. k. hún yrði athuguð og reynt að ná samkomulagi um hana a. m. k. 4 árum fyrr, í yfirliti eða grg., sem þáv. forsrh., Bjarni Benediktsson, gaf þingheimi og tók upp að vissu leyti nýja þingsiði í því sambandi. Bæði breyting á þingsköpum og einnig það, sem ég nú er að tala um, bygging þinghúss og þar af leiðandi kannske breytingar á stjórnarskrá og annað, er þess eðlis, að hægara og eðlilegra er að ná um það samstöðu, sem mjög nauðsynlegt er og allir gera sér grein fyrir og vilja, þegar menn eru ekki í kosningaham og vita, að kosningar eru fram undan.
Þetta, sem ég nú hef nefnt, vildi ég gjarnan, að kæmi til athugunar, bæði í n. og svo að sjálfsögðu innan þingflokkanna, þannig að þeir gæfu sér tóm til að ræða þessi mál, og það er eðlilegt, eftir því sem fram vindur störfum í þinghúsnefndinni, að við, sem erum þingfulltrúar flokkanna þar, látum okkar þingflokka fylgjast með á hverjum tíma og störfum þá að því í þeirri veru, að við viljum reyna að ná einhverjum árangri í þessu máli, sem lengi hefur verið á döfinni hjá okkur, og líkt hefur staðið á um endurskoðun þingskapanna.