28.02.1972
Neðri deild: 44. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í C-deild Alþingistíðinda. (3094)
184. mál, vegalög
Stefán Gunnlaugsson:
Herra forseti. Ég fagna þeim áhuga, sem fram kom í framsögu fyrir frv. til l. um breytingu á vegalögum hjá hv. 3. landsk. þm. fyrir því að fella niður innheimtu umferðargjalds af bifreiðum og öðrum ökutækjum, sem aka um Reykjanesbraut. Eins og hv. 11. landsk. gat um í sinni ræðu um þetta mál, sem hér er til umr., kom fram fsp. til hæstv. samgrh. varðandi þetta veggjald hinn 11. nóv. s. l. Spurðist ég fyrir um, hvort núv. ríkisstj. hygðist afnema veggjaldið á umferð um Reykjanesbraut, og hafði þá í huga yfirlýsingu hæstv. fyrrv. samgrh. um það efni, sem hann lét hafa eftir sér rétt fyrir síðustu alþingiskosningar um, að hann mundi fella niður innheimtu á þessu veggjaldi. Hæstv. fyrrv. samgrh. gat þó ekki komið því í framkvæmd, þar sem hann lét af ráðherrastarfi skömmu síðar.
Í svari núv. hæstv. samgrh. kom fram, að ríkisstj. hefði þá ekki tekið ákvörðun í málinu. Hann sagði, að „prinsip“-ákvörðun varðandi innheimtu á veggjaldi yrði tekin, þegar svipaðir áfangar lægju fyrir í hraðbrautargerð austur, norður og vestur og Reykjanesbrautin er. Taldi hann, að það mundi verða á næsta sumri. Hæst.v. samgrh. túlkaði þá ákvörðun fyrirrennara síns að ætla að fella niður veggjaldið á umferð um Reykjanesbraut þannig, að hann hefði tekið þá afstöðu að leggja ekki veggjald á umferð um veginn austur til Selfoss og vestur um, og þess vegna hugðist hann ekki láta halda áfram innheimtu eftir það á umferð um Reykjanesbraut. M. ö. o.: af því að ekki má íþyngja íbúum fyrir austan fjall og öðrum, sem um hinn nýja austurveg fara, með veggjaldi, þá hlotnast Suðurnesjamönnum og öðrum, sem um Reykjanesbraut aka, loksins sú náð að sleppa undan því, eftir að hafa þurft að greiða gjaldið í 6–7 ár.
Hæstv. núv. samgrh. talaði um, að íbúar Suðurnesja hefðu notið forréttinda á kostnað alþjóðar að búa við veg eins og Reykjanesbrautina, og varði álagningu veggjaldsins á þeim grundvelli. Þessu var auðvitað mótmælt í umr. Enn fremur kom fram í þessum umr. athyglisvert innlegg frá hv. 2. þm. Reykn., en hann sagði m. a., að það hefði verið eitt af hans fyrstu verkum, eftir að núv. ríkisstj. kom til valda, að reyna að hefta áhrifum sínum til að fá gjaldið fellt niður. Honum fórust orð á þessa leið um það atriði, með leyfi hæstv. forseta, — hv. 2. þm. Reykn. sagði:
,Ég vil taka það fram, að strax eftir að núv. ríkisstj. kom til valda, varð það eitt af mínum fyrstu verkum að ræða við hæstv. samgrh. um þetta veggjald og reyna að beita þeim áhrifum, sem ég hef haft innan ríkisstj. og í stjórnarflokkunum, til þess að það verði fellt niður sem fyrst. Ég hef einnig reynt að fá þá til þess að hjálpa mér í þessu, hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh., og ég tel mig geta hér frá því skýrt, að ég hef fengið góðar undirtektir hjá þeim í sambandi við þessa málaleitan.
Nú er talað um það, að það komi til álita að fella þetta veggjald niður í sumar, þegar svipaðir áfangar verði til á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. Ég vil gefa þá yfirlýsingu hér, að ef hæstv. ríkisstj. ekki fellst á það að fella veggjald niður á þeim tíma, þá er ég reiðubúinn sem þm. ásamt með öðrum þeim þm., sem hér kunna að finnast, að beita mér fyrir því, að sú heimild, sem er fyrir ráðh. í vegalögum til þess að leggja á þennan skatt, verði felld niður.“
Svo mörg voru þau orð. Síðar í ræðu sinni hvatti hv. 2. þm. Reykn. hæstv. samgrh. til þess að ganga nú fram í því að fella vegskattinn niður, helzt frá næstu áramótum.
Í framhaldi af því, sem ég hef hér rakið, langar mig til að spyrja hv. 2. þm. Reykn. með hliðsjón af málflutningi hans 11. nóv. s. l. hér á hinu háa Alþ., sem ég hef hér drepið að nokkru á, hvort skoða megi aðild hans að flutningi þessa frv., sem hér er til umr., sem merki þess, að hann sé orðinn úrkula vonar um, að það takist að fá núv. ríkisstj. til að standa við fyrirheit fyrrv. hæstv. samgrh. um að fella niður veggjald á umferð um Reykjanesbraut. Ber að líta á flutning þessa frv. sem vísbendingu um, að í raun og veru hafi ríkisstj. tekið sínar ákvarðanir í málinu og ætli ekki að fella veggjaldið niður? Væri fróðlegt að heyra álit hæstv. samgrh. um það efni.
Að lokum vil ég láta þá skoðun mína í ljós, að ég tel vegskattinn á Reykjanesbraut óréttlátan og hann beri að afnema nú þegar og það þótt fyrr hefði verið.