24.04.1972
Neðri deild: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (3154)
242. mál, heilbrigðisþjónusta
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég tel, að það hafi verið mjög skynsamlegt af hæstv. heilbrmrh. að leggja þetta frv. fram á þann hátt, að þm. gæfist tóm til að kynna sér það rækilega og afgreiðsla þess biði fram til næsta þings. Hér er nefnilega um að ræða það víðáttumikla löggjöf og kostnaðarsama og í þessu frv. felast það mörg nýmæli, að það er eðlilegt, að menn eigi erfitt að átta sig á því, hvað í mörgum tilvikum er um að ræða.
Eins og ég sagði áðan, eru í þessu frv. mörg nýmæli og ágæt og skal ég ekki fara að telja þau upp. Í raun og veru má segja, að bygging heilbrigðisþjónustunnar sé hér tekin alveg nýjum tökum, yfirstjórninni hagað á aðra lund en áður var. Hér er um að ræða nýja skipan læknishéraða, heilsugæzlustöðvum er komið upp, 26 um allt land. Hér er um að ræða nýja skilgreiningu á sjúkrahúsum og mismunandi tegundum þeirra, um starfsmannaráð og lýðræði við sjúkrahúsin o. s. frv. Hér er ákaflega margt, sem vert væri að ræða, en það eru einkanlega tvö atriði, sem ég ætla að víkja að, sem mér hefur þótt, að væri vert að athuga öllu betur. Ég vil taka það fram, að þetta eru lauslegar hugleiðingar.
Það, sem fyrst kemur fram við lestur, er yfir stjórn heilbrigðismálanna. Hér er um gífurlega mikla „sentraliseringu“ að ræða, þar sem allt er fellt undir einn hatt, þ. e. undir heilbrmrn., og þar er dregið t. d. inn heilbrigðiseftirlitið. Felldar eru niður stöður berklayfirlæknis, skólayfirlæknis o. s. frv. Nú er það ljóst, að svona samþjöppun valds á að leiða til samræmis og hagkvæmni, jafnvel sparsemi eða sparnaðar í yfirsýn yfir allan málaflokkinn. En í staðinn kemur það atriði, sem við nefnum lýðræði, þ. e. að sjálft kerfið verði ekki svo sterklega uppbyggt, að hið lýðræðislega fari forgörðum. Og það er einmitt þetta, sem hér virðist nokkuð á skorta í sambandi við yfirstjórn þessara mála, það er sjónarmið neytendanna, sjónarmið sjúklinganna. Gert er ráð fyrir því, að ráðuneytisstjóri heilbr.- og trmrn. verði sérmenntaður embættislæknir. Um þetta má náttúrlega deila, en eins og þetta kemur fyrir í frv. tel ég, að þessu sé ofaukið, þar sem enn er gert ráð fyrir, að landlæknir verði starfandi og sérmenntaður embættislæknir. Satt að segja sé ég ekki, hvaða ástæða er til þess að hafa svona tvær húfur, ef svo mætti segja, samhliða. Hér væri án efa nægilegt, að annar hvor maðurinn væri læknir og hinn þá — ja, ef landlæknisembættinu er haldið, þá sé ég ekki ástæðu til þess, að ráðuneytisstjórinn sé sérmenntaður embættislæknir.
Eins og frv. liggur fyrir, þá tel ég, að landlæknisembættið ætti að hverfa. Mig grunar, að það séu tilfinningaleg rök eða söguleg rök læknastéttarinnar, sem vilja halda í þetta embætti sem einhvers konar viðurkenningu á stöðu læknastéttarinnar í heilbrigðisþjónustunni. Ef á að halda landlæknisembættinu, sem mér þykir koma til mála, þá vil ég gera úr honum annan embættismann. Ég vil, að honum verði falið að vera einhvers konar gagnrýnandi um framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar, hann eigi að vera einhvers konar fulltrúi sjúklinganna, neytendanna, þannig að þeir gætu komið málum sínum áfram. Og það er einmitt þetta, sem ég vildi koma að. Það vantar að mínu viti, að fram komi betur en hér gerir í frv. sú þörf fyrir aukna rödd sjúklinganna sjálfra. Og ef það yrði ofan á, þá þætti mér einmitt ráð, að landlæknir væri slíkur aðili, hefði vakandi auga á því, hvernig sjúkrahúsmál og heilbrigðisþjónusta færu úr garði, svo að sjúklingar og aðrir gætu leitað til hans til þess að fá ábendingar eða leiðréttingar sinna mála. Ef þetta yrði þannig, þá mundi fást þarna eitthvert mótvægi gegn þessari miklu samþjöppun valds, sem virðist stefnt að með frv. Og ég tel, að landlæknir ætti sem sagt að fá hér aðra stöðu og starf hans ætti að vera skilgreint á aðra lund en hér er gert, ef á að halda í þetta embætti.
Hér er sett upp Heilbrigðisráð Íslands og ráðuneytisstjóri er formaður ráðsins. Það er dálítil hætta á, að þegar sami maðurinn er ráðuneytisstjóri og formaður Heilbrigðisráðs, sem á að vera ráðgefandi nefnd, þá er eiginlega ráðuneytisstjórinn farinn að gefa sjálfum sér ráð, ráðleggingar, hvernig hann eigi að gefa ráðh. ráð. Er þetta ekki dálítið ofhlaðið? Væri ekki betra, að t. d. sæti ráðuneytisstjórinn á þessum fundum og hefði þar tillögurétt? Ég sé enga ástæðu til þess, að það sé endilega ráðuneytisstjórinn, sem sé formaður Heilbrigðisráðs.
Það er sagt frá því hér í 34. gr., hvernig eigi að veita læknisstöður, og það er sagt frá því, að einn maður sé skipaður af ráðh. án tilnefningar í nefnd, sem þar um ræðir, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar. Ég veit nú ekki, hver yrði skipaður af ráðh. í slíka nefnd til þess að ákveða hæfni umsækjenda, en afskaplega væri það óskemmtilegt, ef ráðuneytisstjórinn yrði einnig formaður þessarar nefndar. Þá mundi hann sjálfur meta hæfni umsækjenda, vera formaður í Heilbrigðisráði Íslands og vera sjálfur ráðuneytisstjóri. Þá fer þetta að verða dálítið einum um of. En um þetta skal ég ekkert fjalla frekar. Ef ég dreg þetta nú saman, sem ég vildi sagt hafa, þá vantar, að hlutur sjúklinga og ábyrgð lækna sé tryggð nægilega í yfirstjórn heilbrigðisþjónustunnar. Ég get sagt það hér til skemmtunar mönnum, að það má heita, að talað sé um lækna í hverri grein. Það er talað kannske í fimm eða sex greinum um, hvað læknar eigi að fá. Þeir eiga að fá bifreiðastyrki, ferðastyrki, námsstyrki, yfir á þá að byggja hús o. s. frv., en ég hef ekki rekizt á orðið sjúkling í frv. Með þessu er ég ekki að segja, að þetta sé með öllu óeðlilegt. En ég hygg, að þetta stafi einmitt af því, að það eru læknar, sem standa að þessu, og við verðum líka að hyggja dálítið að því, að hér þarf einmitt að tryggja stöðu sjúklingsins í þessu kerfi öllu saman.
Varðandi læknishéruðin kemur það dálítið undarlega fyrir sjónir, að þau eru talin átta og að Vestmannaeyjahérað með nokkur þúsund manns skuli hafa þá sömu stöðu í frv. og Reykjavíkur hérað, sem er með yfir 100 þús. manns, alla leið frá Herdísarvík að Hvalfjarðarbotni. Úr því að þetta eru nú hliðstæðir embættismenn, a. m. k. launalega, þá hlýtur þetta að vera gerólíkt starf. Ég hef nú ekki komið auga á það, af hverju þetta þurfi endilega að vera með þessum hætti. En þetta eru einmitt svona lauslegar hugleiðingar um atriði, sem maður áttar sig kannske betur á síðar meir.
Varðandi héraðslækna, sem eiga að vera einhvers konar stjórnendur í læknishéruðunum átta, þá er kveðið svo á, að þeir hafi ekki skyldu til almennra læknisstarfa, nema svo sé fyrir mælt í skipunarbréfi, en heimild hafa þeir til slíkra starfa, ef sérstaklega stendur á og leyfi landlæknis kemur til. Mér finnst dálítið langt gengið, þegar læknar mega ekki grípa til hendinni til læknisstarfa, nema þeir fái sérstaka heimild frá landlækni. Að vísu þekki ég ekki nógu vel þessa embættislækna eða stöðu þeirra, en mér sýnist eins og verk þeirra verði veruleg stjórnunarstörf og skýrslugerðir. Þá er spurningin, hvort við þurfum svona dýra starfskrafta í það. Ef þessir sömu menn mega hvergi koma nærri sjálfum læknisstörfunum, er þetta þá ekki dálítið í lagt fyrir þessa þjóð að halda uppi slíkum embættislæknum? Ég hygg, að það væri ekki slæmt fyrir þessa embættislækna að hafa eitthvert verulegt samneyti við fólkið, verða ekki bara ,,kontórístar“, sem gefi nákvæma skýrslu til landlæknis eða rn.
Um heilsugæzlustöðvarnar 26 að tölu vildi ég aðeins segja þetta: Hér er um að ræða grundvallarbreytingu, og hér er færzt mikið í fang, og kostnaður mun vafalaust verða geysimikill. Hæstv. heilbrmrh. minntist á, ef ég man rétt, 700 millj., en við vitum nú vel, að þetta kemur til með að kosta vafalaust meira, ef að líkum lætur. Ég hefði talið eðlilegt að ráðast ekki í það í einni svipan að byggja svona margar heilsugæzlustöðvar. Ég hefði talið skynsamlegt að byggja svona 6–7 heilsugæzlustöðvar og fá verulega reynslu af þeim. Í fyrsta lagi, hvernig reynast þessar heilsugæzlustöðvar, þessar læknamiðstöðvar? Við vitum, að þessi hugmynd um læknamiðstöð hefur átt miklu fylgi að fagna hjá læknum sjálfum, en það vantar reynslu á þetta fyrirbæri, og aðstæðurnar geta breytzt í þjóðfélaginu. Það geta komið upp ýmsar hugmyndir aðrar á reynslutímabilinu, sem gera það kannske ástæðulaust að koma upp svona dýru og víðfeðmu fyrirkomulagi í einni andrá. Ég hefði talið miklu heppilegra, eins og ég segi, að fá svona fimm ára reynslu á nokkrar stöðvar og síðan fikra sig áfram.
Ég vil líka benda á það, að í 3:6. gr. segir, að ráðh. láti gera áætlun um heilbrigðisstofnanir samkv. 17. og 27. gr., og gera skal áætlun 10 ár í senn og endurskoða hana á tveggja ára fresti. Þetta er auðvitað alveg rétt. Það er reynt að gera áætlun um heilbrigðisstofnanirnar, og það væri þá alveg í þeim anda að gera fyrst áætlunina og framkvæma síðan stig af stigi en ekki byrja strax á því að reisa þessar 26 heilsugæzlustofnanir. Ég tel rétt, að það sé í þessu þróun, en ekki stökkbreyting að þessu lagi. Og það gæti sparað þjóðinni e. t. v. of fjár, ef reynslan kenndi okkur viss atriði, sem vert væri að fara eftir og taka upp.
Ég skal ekki tefja lengur við þetta. Það er hér sitthvað, sem ég gæti minnzt á, en skal ekki víkja að að sinni. Þetta mál verður hjá heilbr.- og félmn. og verður fjallað um það þar, en eins og ég hef tekið fram, þá eru í þessu mörg ágæt nýmæli, en hér þarf auðvitað að huga að mörgu engu að síður.