27.04.1972
Neðri deild: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (3158)

242. mál, heilbrigðisþjónusta

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt um heilbrigðisþjónustu og læknamál. Fjölmargar till. hafa verið fluttar til að reyna að fá fleiri lækna til landsins og til starfa úti á landsbyggðinni. Löggjöf hefur hvað eftir annað verið aukin og endurbætt. Ríkisstj. og alþm. hafa lagt sig fram um að reyna að ráða bót á þessum vanda. Forustumenn byggðanna, sveitarstjórnir og sýslunefndir, hafa lagt allt kapp á að búa sem bezt í haginn fyrir læknana, sem ekkert mannlegt samfélag getur án verið. Það má segja, að öllum brögðum hafi oft og tíðum verið breitt í þessu skyni, og mætti segja af því ýmsar sögur. Árangur hefur verið misjafn. Víða um land er ástandið óviðunandi. Það er svo langt til læknis, að fólk telur öryggi sitt og velferð í veði.

Hér er til umr. frv. til l. um heilbrigðisþjónustu, sem unnið hefur verið að s. l. tvö ár. Með því fylgir að sjálfsögðu almenn grg. auk sérstakrar sköpunarsögu. Þá er og gerð grein fyrir veigamestu nýmælum frv. Eitt þeirra er till. um nýja og mjög breytta skipan læknishéraða í landinu. Sem betur fer ætti að gefast tóm til að athuga hin nýju ákvæði frv. nánar og nokkuð vel, þar sem þeim er ekki ætlað að taka gildi á þessu þingi. Verður þá unnt að kanna betur viðhorf læknanna sjálfra til þessa máls, svo og íbúa hinna einstöku héraða. Er því ekki ástæða til að ræða málið mjög mikið að sinni, en þó rétt að varpa fram einstaka aths.

Góðra gjalda verð er sú stefnuyfirlýsing, sem sett er fram í 1. gr. frv., að allir landsmenn skuli eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri. líkamlegri og félagslegri heilbrigði. Spurningin er aðeins á hvern hátt þessu marki verði sem bezt náð. Nokkur atriði, en örfá, skulu nefnd, sem miklu máli skipta að mínum dómi. Það þarf að efla læknadeild Háskóla Íslands þannig, að þeir stúdentar, sem hafa getu og vilja til læknanáms, eigi kost á að nema læknisfræði hér á landi. Náminu sjálfu þarf að haga þannig, að það beinist meira að almennri læknisfræði heldur en hingað til, en ekki eingöngu að þeirri sérfræði, sem bæði læknar og aðrir nefna oft sín á milli bæði í gamni og alvöru að „vita meira og meira um minna og minna“. Læknisfræðinámið er að vísu bæði langt og strangt og þar af leiðandi dýrt. Vel lærður læknir er því mjög dýr maður. Offjölgun kynni þó að verða í stéttinni við eflingu læknadeildar. Það á þó ekki að vera hundrað í hættunni. Menntun lækna er alþjóðleg. Íslenzkir læknar hafa hvarvetna staðið fyrir sínu á erlendum vettvangi. Þau eru ekki svo mörg verðmætin, sem við getum miðlað öðrum þjóðum, að ekki er nema gaman og gott að geta hlaupið undir bagga með nágrannaþjóðum og frændþjóðum á þessu sviði, sem svo alhliða beinist að þjónustu við lífið sjálft.

Frv. þetta gerir ráð fyrir því, að allmargir læknar starfi enn einir sér úti um dreifbýlið. Segja má því, að þeir verði einir á vakt, svo sem víða hefur tíðkazt hingað til, allan sólarhringinn, eins og oft er sagt. Alveg sérstaklega þarf að búa svo um hnútana, að þessir menn geti gengið að því vísu, að þeir komist í gott árlegt leyfi frá störfum a. m. k. til eðlilegrar hvíldar og sjálfsagðrar endurnæringar. Kjör lækna og allan aðbúnað að öðru leyti er stöðugt verið að bæta. Í því efni gengur maður undir manns hönd alls staðar, þar sem ég þekki til, og sparar hvorki fé né fyrirhöfn, ef takast má að fá góðan lækni í byggðina. Þetta hefur stundum gengið erfiðlega. Stundum hafa menn orðið að bíða eftir lækni, stundum verið læknislausir. Við fögnum því, þegar við náum í góðan lækni, búum eins vel að honum og unnt er á allan máta. Þegar hann hverfur til annarra starfa, óskum við honum góðs gengis og förum eftir þeirri gömlu reglu eða hverfum að henni, „að alltaf má fá annað skip og annað föruneyti“.

Frv. gerir ráð fyrir því, að Vesturlandshérað nái allt frá Hvalfjarðarbotni í Vatnsfjörð á Barðaströnd. Þetta er stórt svæði. Læknissetur eins læknis skal vera í Búðardal, segir í 18. gr. Þar hefur verið laust tíma og tíma undanfarin ár. Ég hygg, að erfiðleikar þeir, sem komið hafa í ljós við að fá héraðslækni til frambúðar í Búðardal, stafi m. a. af því, að þeir læknar, sem þangað hafa farið, hafa yfirleitt í seinni tíð mátt búast við því, að þeir hafi orðið að annast þjónustu í Austur-Barðastrandarsýslu jafnframt, vegna læknisleysis í Reykhólahéraði. Þá koma löng og erfið ferðalög til sögunnar, sem menn geta ekki sætt sig við og eru mörgum erfið. Á hinn bóginn telja margir, að slík samvinna milli umræddra héraða væri eðlileg og sjálfsögð, ef tveir læknar sætu í Búðardal, m. ö. o. ef þar yrði heilsugæzlustöð. Að því lýtur brtt. sú, sem við flytjum, hv. 8. landsk. þm. og ég, á þskj. 594. Skoðun manna heima fyrir er sú, að þetta sé eitt stærsta öryggismál héraásbúa, a. m. k. í Dalahéraði. Til styrktar þeirri staðhæfingu má geta þess, að Sparisjóður Dalasýslu, sem nú ráðstafar nær öllum vaxtatekjum sínum árlega til almannaheilla og í þágu héraðsbúa, hefur s. l. tvö ár ákveðið, að það fé renni til byggingar heilsugæzlustöðvar í Búðardal. Og það vill einmitt svo til, ef ég man rétt, að í þessum till. ábyrgðarmannanna hefur einmitt þetta orð verið notað, heilsugæzlustöð. Um þetta hafa allir ábyrgðarmenn verið á einu máli. Þessi byggingarsjóður er þegar orðinn allt að hálfri millj. kr., að vísu ekki stór fjárhæð, en vaxandi ár frá ári og segir meira en orðin ein. Ég vænti þess, að umrædd brtt. verði tekin til sérstakrar athugunar ásamt frv. í heild. Nú er sumarið fram undan, þing lækna og ráðstefnur, sem vafalaust taka þetta mál til meðferðar í heild. Þess vegna hef ég ekki fleiri orð um það að sinni.