20.10.1971
Efri deild: 4. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í C-deild Alþingistíðinda. (3173)

15. mál, kaupábyrgðasjóður

Flm. (Eggert G. Þorsteinsson) :

Herra forseti. Í verðsveiflum undanfarinna ára og áratuga á afurðum okkar á erlendum mörkuðum ásamt misjöfnu árferði í veiðimagni og tíðarfari, þá hefur það því miður hent, að mörg atvinnufyrirtæki hafa komizt í greiðsluþrot. Afleiðingar þessa ástands hafa svo aftur bitnað á þeim, sem sízt skyldi, þ. e. launþegunum í viðkomandi atvinnufyrirtæki, í formi þess, að þeir hafa ekki fengið laun sín greidd. Þetta hefur því miður gerzt þrátt fyrir lögverndaðan forgangsrétt launa.

Frv. það, sem hér er flutt, hefur þann megintilgang að tryggja svo sem verða má, að þegar slík vandræði skapast, sé til sjóður, sem geti hlaupið undir bagga samkv. nánari ákvörðun í reglugerð, sem félmrh. setur á grundvelli laga, er sett verði um þessi efni. Tölur þær, sem eru nefndar í hinum einstöku frv.-greinum, eru að sjálfsögðu ekkert heilagar okkur, og erum við flm. vel til viðræðu um breytingar á þeim, einungis til frekari eflingar þessa sjóðs, sem frv. fjallar um.

Eftir því sem næst verður komizt, hafa framlög atvinnurekenda til Atvinnuleysistryggingasjóðs numið á s. l. ári um 49 millj. kr., þannig að 20% viðauki við það gjald ætti í svipuðu árferði að geta numið 9.8–10 millj. kr. á ári.

Ég tel óþarft að rekja efni einstakra greina frv., svo augljósar sem þær eru hverjum, sem vill lesa þær. Geri ég það að till. minni, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.