18.12.1971
Neðri deild: 31. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

86. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég ætlaði að koma að einni fsp. til hæstv. forsrh., áður en hann fór í ræðustól, en fsp. mín beinist að því, hvernig sé aðstaða þeirra atvinnugreina, sem sækja stofnlán sín til annarra sjóða en tilgreindir eru í frv. Ég á þar t.d. við fiskiðnaðinn, sem fær sín stofnlán hjá Fiskveiðasjóði, en ekki er ætlað, að mér skilst, að hann heyri undir Framkvæmdastofnun ríkisins. Ég hef ástæðu til að spyrjast fyrir um þetta, því að það hefur verið mjög innt eftir þessu við mig, og ég vil því leita upplýsinga um það, hvernig aðstaða þessara aðila yrði. Ef t.d. einstaklingar eða fyrirtæki úti á landsbyggðinni hafa í hyggju eða eru búin að ákveða að byggja fiskvinnslustöð og hafa sótt um lán til þeirra stofnlánasjóða, sem þar koma til greina, sem aðallega er Fiskveiðasjóður, hafa eigið fjármagn til þess að standa undir þeim mismun, sem verður á stofnkostnaði og því láni, sem þeir fá samkv. reglum sinna stofnlánasjóða, geta þeir þá vænzt þess að vera alveg utan við það kerfi, sem af frv. til l. um Framkvæmdastofnun má búast við. Ég tel, að það sé nokkuð mikilvægt, að það fáist um þetta alveg hreinar línur, hvort þessir aðilar þurfa ekki að óttast það neitt, að sú stofnun, sem þarna er gert ráð fyrir, að verði sett á laggirnar, skipti sér neitt af framkvæmdum þessara aðila. Maður getur rennt grun í það, ef maður les 7. og 10. gr. frv.; að það muni kannske gegnum stofnlánasjóðina, sem ég hef hér minnzt á, verða reynt að hafa áhrif á lánaveitingar. En svo hefur ekki verið fram að þessu.

Fiskveiðasjóður hefur nokkuð farið eftir aldri umsókna og haft um það ákveðnar reglur að lána vissa upphæð af áætluðum stofnkostnaði, en ekki verið að meta, hvort þessi og þessi framkvæmd væri nauðsynlegri en önnur. Ef þessari reglu verður haldið áfram, að umsóknir fáist afgreiddar hjá Fiskveiðasjóði í þeirri röð, sem þær eru lagðar inn, og eftir því sem fjármagn er fyrir hendi, án tillits til þess, hvort sé verið að meta, hvort þessi stofnun eigi að hafa forgang, þá verður engin breyting hjá þessum aðilum. Ef framkvæmdir þessara aðila eiga hins vegar að heyra að einhverju leyti undir Framkvæmdastofnun ríkisins, þá verður náttúrlega farið að meta það, hvort fyrirtæki á þessum stað á landinu sé nauðsynlegra en annað fyrirtæki annars staðar og í hvaða röð þessi fyrirtæki skuli fá fyrirgreiðslu.

Hæstv. forsrh. tók það mjög greinilega fram, þegar hann gerði grein fyrir frv., að það þyrfti enginn að sækja um leyfi til framkvæmda, hvorki smærri né stærri. Ég vona, að þeir aðilar, sem ég hér hef aðallega rætt um, sem sækja ekki sitt stofnfé til þeirra sjóða, sem lögin gera ráð fyrir, þurfi ekkert frekar að gera en áður og séu ekki í neinni hættu með það, að utanaðkomandi aðilar aðrir en stjórnendur víðkomandi stofnana fari neitt að skipta sér af þeim umsóknum, sem þeir leggja inn, t.d. til Fiskveiðasjóðs. Þetta tel ég, að þurfi að koma alveg greinilega fram, áður en þessum umr. lýkur.

Þá er það annað atriði, sem ég vildi aðeins lauslega koma hér að, og þá beina kannske þeirri fsp. til hæstv. forsrh. einnig, hvernig hann túlkar það, en þetta er ekki í sjálfu frv. Þetta kemur fram í grg. frv., en þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Í annan stað væri æskilegt, að samstarf kæmist á milli stofnunarinnar og viðskiptadeildar Háskóla Íslands (og jafnvel fleiri deilda), þannig að stofnunin fengi nemendum á síðari námsárum í víðskiptadeild raunhæf rannsóknarefni til úrlausnar.“

Ber að skilja þetta þannig, að Framkvæmdastofnunin eigi að fara að skipta sér af námsefni, sem doktorar og prófessorar í Háskólanum vilja leggja fyrir nemendur sína? Það getur vel verið, að þetta sé misskilið hjá mér, en í grg. segir, að það sé talið æskilegt, að þannig sé staðíð að, að stofnunin fái nemendum á síðari námsárum í viðskiptadeild raunhæf rannsóknarefni til úrlausnar. Ef ber að skilja þetta eins og ég hef skilið það, og það kemur fram í aths. með frv., þá er komið hér alveg inn á nýtt svíð, því að ég ímynda mér, að þetta hafi ekki tíðkazt áður, að nokkur óvíðkomandi aðili hafi farið að skipta sér af því, hvaða námsefni væri um að ræða í hinum ýmsu deildum Háskólans.

Þá segir í næstu mgr.:

„Í þriðja lagi má á það benda, að æskilegt væri, að ákveðið samkomulag tækist í verki á milli ríkisstj., Alþ. og Framkvæmdastofnunarinnar um, að hún tæki að öðru jöfnu að sér athuganir og rannsóknir á málum, sem til þessa hefur verið venja að skipa nefndir til að fjalla um.“

Nú hefur það verið svo, að þegar ríkisstjórnir skipa nefndir í hin ýmsu mál, sem fyrir Alþ. eiga að leggjast, þá hygg ég, að allar eða flestar ríkisstj. hafi fylgt þeirri reglu, ef um þm. hefur verið að ræða til að skipa í slíkar nefndir, að taka þá þm., sem hafa reynslu eða sérþekkingu á þeim málaflokkum, sem þar er um að ræða. T.d., ef það er nefnd varðandi landbúnað, þá eru teknir menn, sem hafa reynslu og þekkingu á landbúnaðarmálum. Sama er um sjávarútvegsmál eða félagsmál, eða ef það eru sveitarstjórnarmál, sem um er að ræða.

Í aths., sem ég hef hér vitnað til í grg., er því haldið fram, að það væri æskilegt, að ákveðið samkomulag næðist um það, að þessu yrði breytt á þann veg, að nú tæki hin nýja stofnun að sér þetta verk. Í þeirri bláu bók, sem lögð hefur verið á borð þm. hér, sýnist mér fljótt á litið, — ég skal nú ekki segja, að ég hafi kannske séð það alveg rétt, — að þar væri um 330 nefndir að ræða, sem starfandi væru, þegar bók þessi var gefin út. Ég hygg nú, að það yrði allstrembinn biti að gleypa fyrir Framkvæmdastofnunina, ef hún ætti að taka að sér störf hjá flestum þessum nefndum. Um þetta eru að sjálfsögðu, eins og ég tók fram, ekki nein ákvæði í frv. sjálfu, en þetta er tekið fram í grg., að það væri æskilegt, að að þessu hvoru tveggja yrði stefnt, í fyrsta lagi í sambandi við úrlausnarefni nemenda í Háskólanum og í öðru lagi um skipan mála, að því er varðar skipun nefnda, sem bæði, að mér skilst, ríkisstj. og Alþ. kynnu að skipa. Það er einnig þarna farið inn á þá nýju braut að ætla að taka jafnvel fram fyrir hendur Alþ. um nefndaskipun og talið æskilegt, að Framkvæmdastofnun beinlínis taki að sér þau hlutverk, sem Alþ. fram að þessu hefur haft, en það hefur verið talið eðlilegt að skipa nefndir til sérstakrar athugunar á hinum einstöku málaflokkum.

Ég vildi nú spyrja hæstv. forsrh. um það, hvort ég hef skilið þetta rétt og hvort þetta sé raunverulega stefna, sem við megum reikna með, að fylgt verði eða verði stefnumótandi hjá hæstv. núv. ríkisstj., því að eins og ég hef bent á, er talið í grg., að æskilegt væri, að að þessu væri stefnt.