26.04.1972
Efri deild: 72. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í C-deild Alþingistíðinda. (3223)
98. mál, Þjóðleikhús
Frsm. (Ragnar Arnalds) :
Herra forseti. Það er nú ekki ástæða til að orðlengja mjög um þetta mál, en ég vildi bæta hér fáeinum orðum við í tilefni af ræðu hv. 5. þm. Vestf., Þorv. Garðars Kristjánssonar. Það er laukrétt hjá þm., að í nefndinni, sem undirbjó þetta frv., var um það fullt samkomulag að haga skipan þjóðleikhúsráðs á þann veg, sem þar var lagt til, og að þjóðleikhúsráð yrði svo fjölmennt sem þar var reiknað með. En hitt er allt annað mál, að það voru ekki allir jafnánægðir með þessa skipan. Ég held, að það sé ekkert launungarmál, að leikarar voru almennt mjög óánægðir með þetta fyrirkomulag, mjög lítið hrifnir af þessu stóra og mikla ráði, og þó að þeir létu gott heita að hafa þessa skipan málanna eins og samkomulag náðist um, þá fóru þeir ekki dult með óánægju sína í einkasamtölum. Þetta kemur reyndar glöggt fram í umsögn frá öðru leikarafélaginu, sem gefur það fyllilega til kynna, að leikarar séu ekki mjög ánægðir með þessa skipan, þó að þeir hafi sem sagt látið kyrrt liggja. Ég er sannfærður um það, að listamennirnir sjálfir yrðu dauðfegnir, ef þessum furðulega pýramída, sem settur hefur verið eða fyrirhugað er að setja ofan á Þjóðleikhúsið, ef honum yrði velt um koll. En það er þó ekki fyrst og fremst vegna leikaranna og listamannanna, sem við flm. till. höfum haft frumkvæðið að því að breyta þessari skipan. Við gerum það fyrst og fremst til þess að varðveita virðingu Alþingis og stjórnmálaflokkanna á Alþingi. Þetta skipulag, að hafa 16 manna ráð yfir Þjóðleikhúsinu með einum fulltrúa fyrir hverja tíu þingmenn í hverjum þingflokki, skipulag, sem á sér bókstaflega talað ekkert fordæmi í íslenzkri löggjöf, það er svo fáránlegt, að ég er sannfærður um það, að Alþingi og stjórnmálaflokkarnir yrðu beinlínis að athlægi með þjóðinni, ef þessir aðilar samþykktu slíka skipan. Til viðbótar kemur svo hitt, að með þessu skipulagi, með þessu fjölmenni, neyðast aðstandendur þessa frv. til að útbúa nýtt og fámennara ráð, vegna þess að þeir gera sér grein fyrir því, að stóra ráðið er óstarfhæft. Þeir verða að búa til annað ráð og minna til þess að hafa eitthvert starfrækjanlegt ráð yfir stofnuninni. Það er einmitt það, sem okkar till. miðar að, hún miðar að því að fækka það mikið í þjóðleikhúsráði, að það verði raunverulega starfhæft, að það verði eitthvað meira en bara puntstofnun, sem eigi að koma saman tvisvar á ári, að það geti m. ö. o. raunverulega rækt sitt starf, og þá um leið verður þetta fimm manna framkvæmdaráð algjörlega óþarft. Framkvæmdaráðið verður óþarft, vegna þess að það er síður en svo hægt að segja það, að Þjóðleikhúsið sé stjórnlaust án þess, það hefur sinn framkvæmdastjóra, þjóðleikhússtjóra, það hefur fjármálafulltrúa, bókmenntafulltrúa og fjöldamarga aðra til að stjórna þessari stofnun.
Ef litið er yfir frv. um Þjóðleikhúsið, kemur skýrt fram, að aðalverkefni þessa fimm manna framkvæmdaráðs átti að vera það að undirbúa fundi þjóðleikhúsráðsins, undirbúa till., sem væru lagðar fyrir þjóðleikhúsráðið, og ég held, að það mál sé leyst einfaldlega með því, að sú setning er sett inn í brtt. okkar, að þjóðleikhússtjóri undirbúi fundi þjóðleikhúsráðs í samráði við tvo aðila, fjármálafulltrúa leikhússins og formann ráðsins. Ég tók þannig til orða áðan, að það mætti kannske segja, að þarna væri um að ræða einhvers konar vísi að framkvæmdaráði, það hefur kannske verið nokkuð ónákvæmt til orða tekið, því að þarna er náttúrlega ekki um neitt framkvæmdaráð í þess orðs eiginlegri merkingu að ræða, auðvitað hlýtur framkvæmdahliðin að lenda á herðum þjóðleikhússtjóra fyrst og fremst og það hlýtur að nægja, en ég átti við það, að að svo miklu leyti sem þessu fyrra framkvæmdaráði var ætlað að undirbúa fundi þjóðleikhúsráðs, sem var aðalverkefni þess, þá hlýtur þetta að duga.
Hvað hina till. snertir, — þá, að heimilt verði að ráða rithöfund til nokkurra mánaða í senn, eftir atvikum, til að semja leikverk fyrir leikhúsið, — kom það glöggt fram hjá seinasta ræðumanni, hv. 5. þm. Vestf., Þorv. Garðari Kristjánssyni, að það væri varhugavert að ráða einstaka menn á vegum ríkisins til þess að skapa listaverk, eins og hann sjálfur komst að orði, og það var nú einna helzt á honum að skilja, að slíkt skipulag væri eiginlega hálfgerður „bolsévismi“ af versta tagi eða a. m. k. vísir að „bolsévisma“, eins og hann komst að orði, er hann ræddi um þetta atriði, og ég verð nú að leyfa mér að benda hv. þm. á, að þarna er um varla mikinn misskilning að ræða. Ég veit ekki betur en að í vaxandi mæli hafi verið horfið að því ráði hvað snertir styrkveitingar til listamanna að veita þeim starfsstyrki, og mér hefur heyrzt, að starfsstyrkir yfirleitt ættu mjög vaxandi fylgi að fagna, bæði meðal alþm., meðal listamanna og annarra, sem láta sig varða þessi mál. Það má eiginlega segja, að þarna sé um nákvæmlega sams konar skipulag að ræða, nema bara að þetta er tengt því að skrifa leikverk fyrir Þjóðleikhúsið. Ég vil spyrja hv. þm. um það, ef um þetta er að ræða, hvort ekki megi þá kalla það fáránlegt, að ríkið skuli ráða leikara til starfa við Þjóðleikhúsið, hvort það sé þá ekki jafnfáránlegt skipulag og í ætt við „bolsévisma“ eins og hann var að gefa í skyn hér áðan um till. okkar. Ég er anzi hræddur um, að það hljóti að mega leiða nákvæmlega sams konar rök að því, að það sé eitthvað óeðlilegt við það, að ríkið hafi leikara í sinni þjónustu, eins og það að ríkið hafi í þjónustu sinni einn mann hverju sinni til þess að skrifa leikverk. Ég vil undirstrika það, að ég fæ ekki séð, að það verði á nokkurn hátt erfiðara að velja rithöfunda til þess að vinna nokkra mánuði í senn að slíku verkefni en yfirleitt að ráða leikara að leikhúsinu eða hverja aðra menn.
Það er rétt, sem þm. sagði, að út af fyrir sig kæmi til greina að örva íslenzka leikritun með mörgum öðrum hætti, — hann nefndi samkeppni meðal rithöfunda og hann nefndi það fyrirkomulag að verðlauna bezta leikritið, þetta er alveg laukrétt. Þetta eru auðvitað leiðir, sem vissulega koma til greina. Vandamálið er hins vegar það, eins og við allir þekkjum, að til þess að menn geti setzt niður og unnið í marga mánuði að einu leikverki, verða menn helzt að hafa efni á því að vera kauplausir þann tíma, þeir verða sem sagt að geta fórnað tíma sínum til þess að vinna upp á von og óvon að slíku verkefni. Till. okkar stefnir einmitt í þá átt að gera mönnum þetta kleift. Ég er sannfærður um það, að hvað snertir íslenzka leikritun er auðvitað flöskuhálsinn hvað mest þarna, að menn raunverulega hafa sig ekki í það að setjast niður til að vinna að þessu mikla verkefni, vegna þess að þeir bókstaflega hafa ekki fjárráð til þess. Þess vegna dugar sjaldnast það, að menn hafi von um að vinna í samkeppni einhvern tímann síðar meir eða hljóta verðlaun fyrir það að hafa skrifað bezta leikritið. Þeir hafa bara aldrei gefið sér tíma til þess að setjast niður og vinna verkið.
Hér liggur fyrir till. frá hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni og Auði Auðuns, þess efnis, að þessari till. verði breytt á þá leið, að um verði að ræða, að rithöfundi verði greidd laun meðan á því stendur, að verið er að æfa verk eftir hann og verið er að færa upp verk eftir hann. Ég vil taka það fram, að slíkt skipulag er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt og kæmi vel til greina, en það tekur ákaflega stuttan tíma að setja upp leikverk, það tekur venjulega ekki meiri tíma en 1½ til 2 mánuði í mesta lagi, og þar af leiðir, að þetta út af fyrir sig er kannske ekki nægileg örvun til þess, að menn setjist niður og skrifi leikverk. Þess vegna tel ég, að till. eins og hún er af okkar hendi gerð sé æskilegri og heppilegri.
Hvað snertir þá hugmynd, sem hann nefndi hér áðan, að það væri gæfulegra að skylda Þjóðleikhúsið til þess að flytja a. m. k. þrjú íslenzk leikverk á hverju ári, — hann hefur reyndar komið þessari hugmynd á framfæri í tillöguformi, — vildi ég segja það, að ég tel slíka skipan mála afskaplega óeðlilega og óheppilega og ég get ekki stutt þá till. Ég álít, að þjóðleikhúsráð verði hverju sinni að hafa algjörlega óbundnar hendur um það, hversu mörg leikverk það flytur, af hverju tagi á hverju ári og það sé ekki nokkur leið fyrir Alþingi Íslendinga að fara að segja þjóðleikhúsráði fyrir um það, hvort það eigi að flytja eitt eða þrjú eða fimm íslenzk leikverk á hverju ári. Um það verður þjóðleikhúsráð að hafa algjörlega frjálsar hendur.