05.05.1972
Efri deild: 76. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í C-deild Alþingistíðinda. (3240)
98. mál, Þjóðleikhús
Auður Auðuns:
Herra forseti. Það ætti að vera óþarfi að lengja þessar umr. Þær hafa sýnt okkur berlega, hvernig menn bregðast við, þegar þeir þurfa að bjarga andlitinu, eins og kallað er. Það er út af fyrir sig ósköp mannlegt. En ég get þó ekki stillt mig um að sýna fram á, í hvaða ógöngur menn rata við að bjarga andlitinu. Hv. 1. þm. Vestf. sagði, hann lýsti því yfir, að hann hefði haft mikinn áhuga á að fækka í þjóðleikhúsráði og hann hefði líka talið heppilegt, að það væri einnig fækkað í framkvæmdaráðinu eða starfsnefndinni, hvort sem það nú verður, vegna þess að slíkar starfsnefndir gæfust yfir leitt ekki vel, ef fjölmennar væru. En þessi sami þm. vildi gera 11 mannaþjóðleikhúsráð að starfsnefnd fyrir leikhúsið.