13.05.1972
Neðri deild: 77. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í C-deild Alþingistíðinda. (3249)

98. mál, Þjóðleikhús

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :

Herra forseti. Frv., sem menntmn. Ed. flutti að inni beiðni á þskj. 116, kemur nú í annað sinn fyrir Alþ. Þar er um að ræða endurskoðun á þjóðleikhúslögum, og mun ég gera lauslega grein fyrir helztu breytingum, sem í frv. felast frá gildandi lögum. Meginbreytingin er um stjórn Þjóðleikhússins. Í núgildandi lögum er svo kveðið á, að þjóðleikhúsráð er skipað til óákveðins tíma og þjóðleikhússtjóri er skipaður með sama hætti og flestir aðrir embættismenn ríkisins, í eitt skipti fyrir öll. Í frv. er ráð fyrir því gert, að þjóðleikhúsráð hafi takmarkaðan starfstíma, starfstími þess sé fjögur ár í senn, og sömuleiðis er náð fyrir því gert í 8. gr. frv., eins og það liggur nú fyrir komið frá Ed., að þjóðleikhússtjóri sé ráðinn til fjögurra ára í senn, en þó megi endurskipa hann einu sinni.

Önnur nýmæli eru ákvæði, sem eiga að tryggja sem bezt má verða, að listflutningur Þjóðleikhússins sé sem fjölbreyttastur, þar sé lögð stund á fleiri sviðsgreinar en leiklist, og þá fyrst og fremst sönglist og danslist. Í samræmi við það er gert ráð fyrir, að við Þjóðleikhúsið starfi menn sérfróðir um þessar listgreinar. Þar starfi bókmennta- og leiklistarráðunautur, tónlistar ráðunautur og listdansstjóri. Loks er í 19. gr. frv. eins og það liggur fyrir frá Ed. ákvæði um, að komið skuli á fót sérstökum leiklistar, sönglistar og listdansskóla ríkisins, og er það ákvæði við það miðað, að sérstakur skóli á ríkisins vegum taki við því hlutverki, sem leiklistarskóli Þjóðleikhússins og leiklistarskóli Leikfélags Reykjavíkur hafa gegnt, en þeir skólar hafa hvorugir tekið nemendur síðasta ár og leikskóli Leikfélagsins hefur lagt niður störf.

Í Ed. urðu þó nokkrar breytingar á frv., frá því að það var lagt fram, og þó sérstaklega á ákvæðunum um stjórnarstofnanir leikhússins. Í frv. var upphaflega gert ráð fyrir 16 manna þjóðleikhúsráði. Í meðförum Ed. var þeim mönnum fækkað í 11 og fyrst og fremst fækkað þingkjörnum fulltrúum. Þeirri stofnun, sem í frv. nefndist upphaflega framkvæmdaráð Þjóðleikhússins, hefur verið valið annað heiti í frv., eins og það liggur fyrir frá Ed., þar er þessi stofnun nefnd starfsnefnd, en er nákvæmlega eins skipuð og gert var ráð fyrir í frv. upphaflega. Sömuleiðis er vald og verksvið starfsnefndarinnar mjög áþekkt því, sem ætlað var um framkvæmdaráðið í hinu upphaflega frv.

Ég mun svo ekki hafa fleiri orð um þetta mál, en legg til, herra forseti, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn., og ég vil mælast eindregið til, að hv. deild sjái sér fært að gera frv. að lögum á þessu þingi.