27.04.1972
Efri deild: 73. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í C-deild Alþingistíðinda. (3301)
236. mál, Rannsóknastofnun fiskræktar
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Ég hef nú fengið skýringuna á 5 þús. kr. og ég verð nú að segja það, að mér finnst ekki of í lagt, ef hv. flm. og þá vafalaust báðir flm. leggja að líku erlent herlið hér í landi og veru einstakra hermanna í landinu og þeirra manna, sem koma hér til að stunda laxveiði, þá get ég vel skilið, að þessi tíföldun sé viðhöfð. En varðandi það, að það beri að hamla á móti því, að útlendingar komi hér til eins og annars, þá stangast þetta náttúrlega gersamlega á við þá ríkjandi stefnu, sem mér hefur skilizt, að væri í þessu landi, að reyna að laða hingað ferðamenn. Og það var engin tilviljun, þegar ég minntist á það, að útlendingar þyrftu að borga 5 þús. kr. fyrir að veiða hér einn dag, fyrir kortið. Það er vegna þess, að hér er fjöldi útlendinga, sem kemur hingað í allt öðrum tilgangi, en sem hefur hug á því að reyna þetta sport, sem stangaveiði er. Hér er sú stefna ríkjandi að fá hingað alls konar ráðstefnur. Þessir aðilar, sem sækja ráðstefnur, eru gjarnan í því landi þar sem ráðstefnan er haldin, kannske einn eða fleiri daga fram yfir ráðstefnuna og hafa þá hug á að gera eitthvað sér til afþreyingar. Það eru slíkir menn, sem gjarnan veiða í ánum í einn dag, en aftur á móti þeir, sem koma gagngert til laxveiði, þeir eru að sjálfsögðu oftast eitthvað lengur.
Við búum nú rúmlega 200 þús. sálir í þessu stóra landi okkar, og ég held, að við getum ekki einangrað okkur það mikið, að við getum borið það saman við erlenda hersetu hér í landi, þó að einhverjir vilji njóta okkar hreina lofts eða rjúpnaveiði eða hvað það nú er. Mér finnst það nú heldur langsótt og a. m. k. fleira en þetta frv., sem verður að koma til, ef við eigum að breyta svo um stefnu. Ég vil endurtaka það, að ég lít á þetta sem alvarlegar hömlur á þeirri þróun, sem verið hefur um vaxandi verðmæti veiðiréttar á undanförnum árum. Ég álít, að það standi í beinu sambandi við eftirspurnina frá útlöndum. Og ég veit líka, að það hafa verið sterkir aðilar hér í landi, sem hafa talið þetta óhagkvæmt.
Varðandi ræktun í fulla stærð til neyzlu, þá er ég flm. fyllilega sammála um það, að það er sannarlega atvinnuvegur, sem hér á sér framtíð. En ég vildi þó geta þess, að bæði á þessu sviði og fleiri öðrum eru hér í gangi miklar rannsóknir. Ég veit ekki betur en það sé farið að nota íslenzkt fóður til þess að fóðra á þessa fiska okkar, og við erum sem sagt núna búnir að mennta úti í útlöndum einmitt aðila, sem eru færir um að taka þessar rannsóknir að sér, sem við höfum verið að ræða um, þannig að þó að eitthvað sé ógert eftir 10 ára starfsemi eða rúmlega 10 ára starfsemi, þá tel ég það nú ekki vera svo óeðlilegt. Ætli það væri ekki á fleiri sviðum, sem við gætum haldið því fram, að það væri ekki búið að gera allt, sem gera þarf? Og einkum vil ég endurtaka það, sem ég sagði, að fjárskorturinn hefur háð þessu fyrirtæki, Veiðimálastofnuninni, rannsóknum og öðrum þáttum alla tíð, fjárskortur hefur háð okkar rannsóknastarfsemi á fjölda annarra svíða vafalaust alla tíð og svo er enn. Og meginatriðið er að auka fjármagnið, sem í rannsóknastarfsemina fer, en ekki að fjölga stofnununum.