20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (3319)

141. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Í þessari þáltill. er farið fram á, að Alþingi veiti samþykki sitt til frestunar á fundum Alþingis frá 21. þ.m. eða síðar, ef henta þykir, enda verði Alþingi kvatt saman eigi síðar en 20. jan. 1972.

Svipaður háttur mun hafa verið á hafður að undanförnu um frestun Alþingis. Ég vænti þess, að um þessa till. verði ekki ágreiningur, og legg til, að hún verði samþ., án þess að henni verði vísað til nefndar, enda mun það ekki hafa verið venja að undanförnu að vísa slíkri till. til nefndar.