11.12.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3354)

110. mál, endurskoðun á loftferðalögum

Flm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Við hv. 4. þm. Norðurl. e. flytjum á þskj. 133 eftirfarandi till. til þál., með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa nefnd til að endurskoða ákvæði loftferðalaga um ábyrgð flytjenda farþega og farms, einkum með tilliti til þess, að eigi er alltaf fullljóst, hver teljast skuli flytjandi; sömuleiðis reglur um ábyrgð eigenda flugvéla gagnvart flugmönnum, svo og vátryggingarsamninga varðandi flug.“

Á seinni árum hefur notkun lítilla flugvéla aukizt mikið hérlendis. Unga fólkið er áhugasamt um að læra flug og nýta síðan kunnáttu sína sér til gagns og yndis og þá máske ekki síður vegna þeirrar ánægju, sem flugið veitir því. Þegar ég var ungur, stóð hugur okkar ungu mannanna til þess að læra að aka bifreið. Það er tímanna tákn, að nú þykir sjálfsagt að svo til allt ungt fólk læri að aka bifreið, en eftirvænting og áhugi unga fólksins beinist í vaxandi mæli að því að læra flug. Ég vil reyna að skilja þessa tilhneigingu unga fólksins í dag, það fylgir því heillandi tilfinning að geta að nokkru fylgt eftir fuglum himinsins með því að þjóta um loftin blá. Ég hef sjálfur notið þeirrar ánægju sem farþegi að fljúga í þessum litlu vélum, vera óbundinn af því að fara svo gott sem skemmstu leið að fyrir fram ákveðnum ákvörðunarstað, eins og er í hinu svo nefnda áætlunarflugi, heldur í þess stað að geta virt fyrir sér í næði stórbrotna náttúrufegurð lands okkar, sem vissulega er tilkomumikil úr lofti að sjá. Ég endurtek það þess vegna, að ég tel mig skilja áhuga unga fólksins fyrir fluginu.

Þá er og rétt að benda á, að allir þeir, sem hyggjast stunda flug sem atvinnu, notast við litlu vélarnar, meðan þeir eru að öðlast tilskilinn flugstundafjölda, sem er áfangi að því að geta öðlazt réttindi til atvinnuflugs. Íslenzkar aðstæður, veðurfar og landslag, valda því, að þessar vanbúnu litlu vélar eru vissulega hættulegar hérlendis, máske hættulegri en víða annars staðar, þar sem aðstæður eru betri. Minnstu vélarnar eru svo vanbúnar að tækjum. að þær eru sambandslausar við flugumferðarstjórn og flugvelli nema aðeins í næsta nágrenni þeirra. Flugmenn þessara véla eiga þess því engan kost, þegar fjær dregur, að fá nauðsynlegar upplýsingar eða leiðbeiningar, þegar skyndilega breytist veður í lofti eða annan vanda ber að höndum. Það er því máske ástæða til þess, að hérlendis gildi þrengri og ákveðnari reglur en annars staðar um flug í þessum vélum.

Herra forseti. Það eru breytingar á sjálfum loftferðalögunum, sem við flm. förum hér fram á, en hér er um reglugerðarákvæði að ræða. Tilgangur þeirrar till., sem hér er til umr. er, eins og hún ber með sér, að lögin verði endurskoðuð til að taka af öll tvímæli um ábyrgðir og vátryggingar í sambandi við flug, og að gefnu tilefni er hér fyrst og fremst tekið fram um litlu vélarnar. Ég er sannfærður um, að allir hv. alþm., sem stóðu að samþykkt loftferðalaganna 1964, hafi verið þess fullvissir, að þar léki enginn vafi á varðandi þessi atriði. Á sama hátt hefur og verið varðandi flugmenn, flugnema þessara véla, þeir hafi talið það tvímælalaust, að þeir og þeirra farþegar væru örugglega tryggðir. Einnig munu eigendur og umráðendur vélanna hafa verið í þeirri trú, að svo væri.

Það hefur hins vegar skeð, að í ljós hefur komið, að þessi lagaákvæði eru ekki tvímælalaus. Höfum við flm. þessarar till. bitra reynslu af því. Sumarið 1968 fórst ein slík vél og með henni fjögur ungmenni. Sonur minn var flugmaður vélarinnar, og meðal farþega var sonur meðflm. míns. Sá ungi maður lét eftir sig konu og barn. Þessir ungu menn stefndu báðir að því að öðlast réttindi til atvinnuflugs. Þeir flugu mikið saman eða með öðrum félögum sínum, sem einnig voru í flugnámi. Það tók aðstandendur þessa unga manns næstum þrjú ár að fá dóm fyrir sínum tryggingabótum, og vafi var talinn leika á um bótaskyldu. Við flm. teljum því ríka nauðsyn á, að lögin verði endurskoðuð með það að markmiði, að allir, sem fljúga með þessum vélum, flugmenn og farþegar, verði örugglega tryggðir, þ.e. taka af öll tvímæli hér um, svo að eftirleiðis þurfi enginn að vera í vafa um, hvort hann er tryggður eða ekki.

Þó svo að við gerum allt, sem mögulegt er til að koma í veg fyrir slys, þá verður því miður ekki á mannlegu valdi að fyrirbyggja þau alveg. Notkun þessara litlu véla verður trúlega vaxandi eftirleiðis. Það er nauðsynlegt að tryggja með reglugerð sem mest öryggi, en höfuðnauðsynin er að ganga þannig frá, að allir, sem ferðast í þessum vélum, séu tryggðir.

Herra forseti. Ég vænti þess, að mér verði virt það til vorkunnar, er ég, eftir að hafa fylgzt með meðferð þessa máls, sem ég hef hér vitnað til, segi í hreinskilni: Það hefur hvílt þungt á mér, að ég þurfti að gera mitt til þess að eftirleiðis geti hér ekki leikið nokkur vafi á. Og ég fagna því að hafa fengið tækifæri til að bera þá till. fram, sem hér liggur fyrir.

Herra forseti. Ég legg til, að umr. verði frestað og till. vísað til hv. allshn.