09.11.1971
Sameinað þing: 12. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (3376)
21. mál, landhelgismál
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Landhelgismálið hefur í núverandi mynd sinni verið til meðferðar hjá íslenzkum yfirvöldum síðustu 2–4 ár. Segja má, að almennar umr. um málið hafi hafizt að marki snemma á þessu ári og staðið fyrst og fremst fram til kosninga, en þó verið haldið áfram síðan.
Allt hefur sinn tíma, og í stórum málum er hægt að tala um tíma til að ræða þau, tíma til að taka ákvarðanir og tíma til framkvæmda.
Mér virðist, að höfuðtíminn til að ræða landhelgismálið og mismunandi skoðanir um hin ýmsu atriði þess hafi verið s.l. vetur og s.l. vor fram til kosninga. Tíminn til að ákveða stefnuna í málinu var í raun og veru í kosningunum sjálfum. Síðan hin nýja ríkisstj. var mynduð og hún boðaði stefnu sína í þessu máli, hefur mikið verið að landhelgismálinu unnið, en nú hina síðustu daga má segja, að málið sé komið á framkvæmdarstig. Ríkisstjórn Íslands hefur hafið viðræður um málið við tvö önnur ríki, Bretland og Vestur-Þýzkaland. Mikið hefur verið talað um brýna nauðsyn þess, að algjör þjóðarsamstaða verði um þetta mál, ef okkur á að takast að koma því heilu í höfn, stórslysa– og vandræðalaust. Ég er sammála þessu, og mér virðist, að nú, þegar kominn er tími framkvæmdanna í landhelgismálinu, sé einnig kominn sá tími, er við verðum að leggja til hliðar deilur um öll minni háttar atriði og alveg sérstaklega um öll þau atriði, sem segja má, að snerti framkvæmd málsins. Ég tel að öll slík mál eigi heima í landhelgisnefnd, þar eigi stjórnmálaflokkarnir að hafa tækifæri til að ræða þau og hafa áhrif á gerðir ríkisstj., ef efni standa til.
Landhelgisnefnd starfaði að mörgu leyti mjög vel s.l. sumar og fram eftir hausti, en síðan þing kom saman hafa störf hennar legið niðri. Ég mun ekki gera nefndina frekar að umtalsefni, en vil aðeins lýsa yfir, að ég treysti því, að hæstv. ríkisstj. láti störf þessarar nefndar ekki niður falla, heldur haldi uppteknum hætti, a.m.k. þangað til ný nefnd verður kosin af hálfu flokkanna til ráðuneytis í málinu, ef það verður niðurstaða Alþ., eins og allar líkur benda til.
Deilur þær, sem urðu fyrr á þessu ári um landhelgismálið, skiptust að verulegu leyti í tvennt. Annars vegar var deilt um fjöldamörg atriði, sem kalla má framkvæmdarmál, enda þótt ýmis þeirra séu þýðingarmikil. Þetta eru þau mál, sem þingflokkur Alþfl. telur, að nú verði að leggja til hliðar og ráða til lykta eftir beztu getu í landhelgisnefnd eða á einhverjum slíkum vettvangi. Það var einnig deilt um atriði, sem verður að kalla efnisatriði, og eitt slíkt er þess eðlis, að Alþfl. vill enn sannreyna, hvort meiri hl. Alþ., stjórnarflokkarnir, fást ekki til þess að breyta þeirri ákvörðun sinni, sem fram kemur í till. þeirra. Við höfum valið þann kost að flytja aðeins eina stutta brtt. við þáltill. ríkisstj., um þetta eina efnisatriði, sem er hin nýja landhelgislína, en láta að öðru leyti niður falla frekari umr. og deilur um önnur atriði málsins, sem fyrst og fremst snerta framkvæmd þess. Á þann hátt viljum við stuðla að því, að svo miklu leyti sem á okkar valdi er, að tekizt geti sú eining, sem allir eru sammála um, að þurfi að vera um málið út á við.
Till. sú, sem Alþfl. hefur lagt fram til breytingar á þáltill. ríkisstj„ er á þá lund, eins og fram kemur á þskj. 72, að í stað þess, að hin nýja landhelgi miðist við 50 sjómílur, þá miðist hún við landgrunnið allt, þ.e. við 400 metra jafndýptarlínu, en þó hvergi minna en 50 sjómílur. Hér er ekki um nýja hugmynd að ræða né heldur hugmynd, sem við einir höfum flutt eða mælt með. Þessi hugmynd er grundvallaratriði í þeirri ályktun, sem Alþ. gerði um málið á s.l. vori og er enn þá í gildi. Þess vegna þarf þessi stefna ekki að koma neinum á óvart innan lands eða utan.
Þá vil ég geta þess, að í starfi við að kynna málstað Íslands í landhelgismálinu undanfarna mánuði hafa fulltrúar landsins og ríkisstj. undantekningarlitið talað af mikilli varkárni um þetta atriði. Í ræðum utanrrh. og aðalfulltrúa Íslands á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, svo að ég nefni tvo aðila, og mætti einnig nefna texta þess útbreiðslubæklings, sem dreift hefur verið um margar heimsálfur, hefur landgrunnið verið nefnt hvað eftir annað og talað um 50–70 mílur. Ég tel, að þetta hafi verið hyggilegt af viðkomandi aðilum og að í þessu hafi komið fram sá möguleiki, að Íslendingar kynnu að velja landgrunnslínuna, en ekki 50 mílna línuna eina. Þegar talað er um. hvernig ákveða skuli fiskveiðimörk, getur komið til greina annaðhvort að miða við tiltekna fjarlægð frá grunnlínum eða miða við tiltekna dýpt. Þess eru einnig dæmi, að miðað sé við hvort tveggja og báðar þessar leiðir notaðar til að ákveða landhelgislínu.
Hér á landi hafa fiskifræðingar, haffræðingar og aðrir sérfræðingar fjallað um þetta mál alllengi og reynt að gera sér grein fyrir, hvaða leiðir mundu verða farsælastar fyrir okkur. Í sambandi við þetta vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkrar línur úr grein um þessi mál eftir Svend Aage Malmberg, og segir þar svo:
„Dr. Hermann Einarsson fiskifræðingur lagði á sínum tíma fram þá till., að landgrunn Íslands skyldi miða við dýpstu jafndýptarlínu, sem draga má hringinn í kringum landið, án þess að hún viki verulega frá útlínu þess. Við lauslega athugun komst dr. Hermann að þeirri niðurstöðu, að 400 m jafndýptarlínan lægi nærri þessum mörkum. Þannig gat hann ekki aðeins miðað till. sína við botnlögun, en einnig við hagnýtingarmöguleika frá fiskifræðilegu sjónarmiði.“
Ég tel, að margt mæli með því, að við fylgjum þessari línu, en höfum hina nýju landhelgi þó hvergi minni en 50 mílur. Það er tiltölulega auðvelt að rökstyðja kröfur okkar um rétt til landgrunnsins. Hver maður, sem þekkir aðstæður eða lítur á kort af Atlantshafinu, sér að landgrunnið er pallur, sem er óaðskiljanlegur hluti af Íslandi, og það er grundvallaratriði í þeirri baráttu á sviði þjóðaréttar, sem hæstv. forsrh. vék m.a. að, að fá viðurkennda þá meginkenningu, að auðæfi landgrunnsins séu hluti af auðæfum viðkomandi lands. Þegar stórveldi höfðu þörf fyrir landgrunnsbotninn og þann auð, sem í honum felst, tók ekki ýkja langan tíma að koma þessari kenningu til leiðar hvað hann snerti. Er óhætt að fullyrða, að það mun aldrei standast, að ein regla gildi um auðæfi í botninum, en einhver allt önnur regla um fiskinn, sem syndir yfir þeim sama botni. Röksemdir í þessu sambandi eru ákaflega sterkar, og ég hygg, að þetta sé ein ástæðan fyrir því, að þeir, sem hafa talað máli Íslands erlendis um landhelgismálið undanfarna mánuði, hafa gert sér svo tíðrætt um landgrunnið öllu frekar en að tala um 50 mílur eða aðra ákveðna línu, sem er miðuð við einhverja fjarlægð frá grunnlínu og hlýtur þar af leiðandi að vera tilbúin.
Það eru margar ástæður fyrir því, að við teljum mun hyggilegra fyrir Íslendinga að marka sér nú línu miðað við 400 m jafndýptarlínu, þó ekki minna en 50 mílur, heldur en 50 mílurnar einar. Ef útfærslan verður eingöngu miðuð við 50 mílur, verða veruleg svæði á landgrunnspallinum eftir utan þeirra marka. Mest eru þessi svæði út af Vesturlandi. Mér virðist fljótt á litið, að þau séu allmiklu stærri en allur Faxaflói og Breiðafjörður til samans. En nokkur svæði eru annars staðar, t.d. út af Húnaflóa. Ég óttast, að verði þessi svæði skilin eftir við núverandi útfærslu, muni þau kalla á erlendan flota veiðiskipa, sem muni safnast á þessi mið og þar muni mjög fljótlega myndast nýtt vandamál, sem geri annað óhugsandi fyrir Íslendinga en að boða nýja útfærslu yfir þessi svæði eftir aðeins 2–3 ár. Mér finnst því mjög óhyggilegt að ætla að skipta áföngum svo, að skilja nú eftir þessi svæði, sem eru litill hluti af öllu landgrunninu, en þó mjög mikilsverður hluti og nógu stór til þess að kalla á stórfelldar veiðar.
Um það er talað, að við höfum fylgt landgrunnsstefnunni í áföngum, og ég tel rétt, að við gerum það áfram, enda þótt næsti áfangi yrði miðaður við 400 m jafndýptarlínu, en þó ekki minni en 50 mílur. Flokkarnir, sem aðild áttu að síðustu ríkisstj. og stóðu að þeirri samþykkt, sem enn er í gildi, lögðu áherzlu á þörfina fyrir endurskoðun á landgrunnslögunum. Ég er enn þeirrar skoðunar, að það sé óhjákvæmilegt að endurskoða þessi lög, m.a. vegna þess, að hugtakið „landgrunn“ er á reiki víða um heim og það er mikilsvert, að við gerum okkur grein fyrir, hvernig við ætlum að líta á það í framkvæmd á næstu árum. Sérfróðir menn benda á, að það megi telja takmörk landgrunnsins, þar sem brún þess er, þar sem hlíðar landgrunnsins niður á dýpra haf hefjast. Þessi brún er yfirleitt nálægt 400 m mörkunum. Þeir benda líka á, að það sé alveg eins hugsanlegt að miða mörkin við landgrunnsfótinn, þar sem brekkunni lýkur, en hann mun víðast í kringum Ísland vera á rúmlega 1.000 m dýpi. Ég geri ráð fyrir, að með hinum öru breytingum á tækni, sem nú eiga sér stað, þ.á.m. veiðitækni, geti skapazt möguleikar til þess á allra næstu árum að hagnýta þetta svæði, landgrunnshlíðarnar, mun meira en enn hefur verið hægt. Ég tel því, að við ættum að gera breytingu á landgrunnslögunum á þann hátt, að við áskildum okkur rétt í sambandi við landgrunnshliðarnar, allt niður í hliðarfót, sem er, eins og ég sagði, víðast á rúmlega 1.000 m dýpi.
Hæstv. sjútvrh. lét þess getið í ræðu sinni, að það væri einmitt verkefni væntanlegrar ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna að skilgreina landgrunnið. Jafnþýðingarmikið og það er fyrir okkur að fá þessa skilgreiningu, virðist hæstv. ráðh. telja, að það sé vel við unandi fyrir okkur að bíða eftir hinni óvissu alþjóðaráðstefnu hvað það snertir. Þarna finnst honum allt í bezta lagi að bíða eftir ráðstefnunni. Ég held, að öll þau sterku rök, sem hníga að því að bíða ekki, — sérstaklega þar sem vaxandi óvissa er um, að ráðstefnan verði haldin á þeim tíma, sem talað hefur verið um, — þau lúta líka að því, að við ættum að ákveða sjálfir með endurskoðun á landgrunnslögunum hugmyndir okkar um áframhaldið, sem ég hef verið að lýsa.
Herra forseti. Ég vil ítreka, að þingflokkur Alþfl. telur brýna nauðsyn á þjóðareiningu um þetta mál. Af þeim sökum höfum við valið þá stefnu í sambandi við afgreiðslu málsins hér á þinginu að leggja til hliðar allt það, sem deilt hefur verið um s.l. vor og fram til þessa tíma. Við ætlumst til, að þau framkvæmdaratriði verði rædd í landhelgisnefnd, og við vonumst til þess, að þar verði, eftir því sem efni standa til, sem viðtækast samkomulag um hvert skref. En okkur finnst óhjákvæmilegt að leggja fram það sjónarmið um landgrunnslínuna, sem við lögðum hvað mesta áherzlu á í umr. um þetta mál fyrir kosningarnar í vor og ég veit, að á víðtækum stuðningi að fagna. Þetta eina atriði höfum við flutt í þáltill., sem við gerum okkur vonir um. að hæstv. utanrmn. taki til alvarlegrar og vinsamlegrar athugunar. Það er sannfæring okkar, að það yrði mun farsælla fyrir þjóðina og fyrir framvindu þessa máls, ef útfærslan yrði nú miðuð við landgrunnið og þá 400 m jafndýptarlínu, en hvergi minna en 50 mílur, og ef haldið yrði áfram því starfi, svo sem síðasta Alþ. ályktaði, að vinna skyldi við endurskoðun landgrunnslaganna. Á það að skapa okkur aðstöðu til þess að vinna að frekari útfærslu síðar, svo að við gætum í framtíðinni hagnýtt landgrunnshallann eins vel og tæknin á hverjum tíma leyfir.