02.03.1972
Sameinað þing: 44. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í D-deild Alþingistíðinda. (3420)

23. mál, félaga- og firmaskrár

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað og rætt þá till., sem er á þskj. 23 og hér er til umr. En till. er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að koma á stofn félaga– og firmaskrá fyrir landið í heild.“

Lög þau, sem nú gilda um verzlunarskrár, eru frá árinu 1903. Samkv. þeim lögum eru félaga- og firmaskrár haldnar í hverju lögsagnarumdæmi, en þessi löggjöf hefur enn fremur að geyma ákvæði um ýmis önnur efni, firmu og svo réttindi og skyldur, sem fylgja skráningarmálum af þessu tagi, og svo ákvæði um prókúru svo kallaða. Á tímum hraðfara og vaxandi umsvifa í viðskiptamálum og fjárhagsmálefnum yfirleitt verður að telja nauðsynlegt, að löggjöf í því efni, sem hér um ræðir, úreldist ekki, en fylgi þörfinni til einföldunar og skjótvirkrar fyrirgreiðslu og síðast en ekki sízt til aukins öryggis. Þessi löggjöf er komin svo til ára sinna, að ekki þarf að undrast, þó að hún kunni að vera um ýmislegt á eftir hinni almennu viðskiptaþróun í landinu og þurfi því nokkurrar endurskoðunar við og jafnvel úrbóta. T.d. mætti ætla, að ekki væri aðeins unnt að auðvelda framkvæmd félagaskráningar fram yfir það, sem verið hefur og nú er, heldur og einnig að kveða skýrar á um ýmiss konar réttarverkanir, sem fylgja skráningu og öðrum þeim málefnum. sem þessi löggjöf fjallar um. Og þá eru það síðast, en ekki sízt, ýmis tæknileg atriði varðandi þessi mál, sem ber að minnast á. En í þeirri till., sem hér liggur fyrir til umr., er aðeins drepið á eitt atriði af mörgum í þessari löggjöf, þ.e. skráningaryfirvaldið og þó skráningarstaðinn öllu fremur.

Í grg. fyrir till. segir m.a. á þá leið, að það hafi oft leitt til margvíslegra vandræða og til málaferla, að eigi hefur verið til heildarskrá um félög og fyrirtæki í landinu og í þessu efni þurfi því að búa svo um hnútana, að festa og samræmi sé í reglum um þessar skráningar.

Allshn. leitaði umsagnar hjá Dómarafélagi Íslands og Hagstofu Íslands um till. og málið í heild, og þessir aðilar báðir hafa mælt með aðgerðum til ýmiss konar úrbóta á þeim reglum, sem gilda um þessi skráningarmál, og m.a. í þá átt, sem þáltill. gengur. Hagstofan leggur auk þess sérstaka áherzlu á, að málið verði allt tekið til gagngerðrar endurskoðunar, og það er talið, að skráningarmálin séu ekki í því ásigkomulagi, sem þörf er á, og tekur Hagstofan alveg sérstaklega fram um það, að þessi mál séu raunar í miklu ófremdarástandi, eins og þar er orðað.

Vafalaust er því m.a. um að kenna, að svo er komið máli, að sjálfur réttargrundvöllurinn, sem skráningin hvílir á, er ærið veikur og nokkuð óskýr og einnig að þeim reglum hefur ekki verið nægilega fylgt, sem hér um gilda, og félög hafa flækzt á milli embætta víðs vegar um landið, og hefur það skapað mikið öryggisleysi og margt, sem að því lýtur. Og alveg sérstaklega er talinn mikill misbrestur á því, að ýmiss konar breytingar, sem orðið hafa á högum fyrirtækja, verzlana og annarra fyrirtækja, sem skráningarskyld eru, eftir að ný skráning hefur átt sér stað, hafi verið gefnar til skráningaryfirvalda. Svo er líka að því látið liggja, að sjálf skráningaryfirvöldin hér og þar úti um landið hafi gert sér minna far en skyldi um það að fylgja nauðsynlegum reglum um framkvæmdir, þannig að auðsætt er, að hér er lagfæringa þörf án nokkurs vafa, og um það vita þeir að sjálfsögðu gerst, sem hafa umsvif á hendi um þessi efni. Hins vegar er það ekki talið sjálfgefið, hvernig eigi að breyta í þessu efni, svo að til verulegra bóta verði.

Hagstofan hefur í ítarlegri álitsgerð drepið á ýmis atriði, sem ég vil leyfa mér rétt að geta um. Hún telur t.d. ekki fara á milli mála, að starfræksla heildarskrár í þessum efnum stuðli að mun hald betri framkvæmd en staðbundnar skrár, eins og nú eru haldnar. En þrátt fyrir það kunni svo að fara, að staðbundin skráning kunni að vera heppilegri, ef ekki reynist hagkvæmt að koma á nútíma skýrslutækni við heildarskráningu félaganna. Hvort þeirri tækni verður við komið, hljóti að koma í ljós við nánari athugun þessara mála. Enn fremur vekur Hagstofan athygli á því, að úr því þurfi að sjálfsögðu fyrst að fá skorið, hverjar séu þær þarfir raunverulega, sem fullnægja beri. Það liggur alls ekki ljóst fyrir, og það er mála sannast, að það er út af fyrir sig alveg rétt, ýmiss konar viðskiptaaðilar í landi okkar hljóta að sjálfsögðu að geta gefið upplýsingar um það, þegar til þeirra verður leitað.

Bent er á það enn fremur, að kannað verði, hvort ekki sé rétt að fækka þeim atriðum, sem tekin eru til skráningar nú, þannig að framkvæmdir verði mun léttari í vöfum. og að íhuga þurfi mjög nákvæmlega skilgreiningu á því, hverjar réttarverkanir eða réttaráhrif eigi að fylgja skráningunni og tilvikum þeim, þegar út af er brugðið. En það er hald þeirra manna, sem mest og gerst þekkja til í þessu efni, að hér skorti allmjög á.

Eins og kunnugt er, hefur Hagstofa Íslands á hendi skráningu allra atvinnufyrirtækja, stofnana og félagssamtaka, og það hlutverk var henni fengið með lögum frá 1969. Þessi fyrirtækjaskráning Hagstofunnar er unnin á mun breiðari grunni eða starfssviði en félaga— og firmaskráningin, en hins vegar er efniviðurinn að sjálfsögðu hinn sami, það eru félögin og firmur. Og Hagstofan bendir á það, að skráningarstarf hennar hljóti að hafa veruleg áhrif á allt skipulag og verkbrögð í félaga— og firmaskráningu og vel þurfi að gæta þess, að eigi komi til tvíverknaðar við öflun gagna á hvoru sviði fyrir sig og samræma verði starfsemina eins og mögulegur kostur er á. Að sjálfsögðu er það höfuðatriði í þessu máli og skiptir mestu, að fundið verði hagkvæmt og sem kostnaðarminnst form á þessari skráningu eða skráningarmálum. Ef hallazt yrði að því að koma á fót einni félaga— og firmaskráningu fyrir landið allt í heild, þá er ekki talið úr vegi að ætla það, að Hagstofu Íslands yrði fengið það meginverkefni, og eins og ég gat um áður, hefur Hagstofan um skráningarmál að fjalla, sem eru þessu efni mjög skyld.

Hér hef ég leyft mér að rekja í örstuttu máli það efni, sem þáltill., sem ég gat um í upphafi og hér er til umr., hefur hreyft við. En hún fjallar aðeins um eitt atriði af mörgum í þessu efni. Og allshn. hefur einróma fallizt á það, að heildarendurskoðun verði látin fara fram á þessum málum og þá sé m.a. haft í huga, að komið verði á heildarskrá um félög og firmur í landinu og hún verði á einni hendi framvegis. En auk þess verði önnur atriði, sem ég hef lítillega drepið á og málið varðar mjög, tekin til yfirvegunar og færð til þess horfs, að samræmis gæti við breytta þjóðfélagshætti og nútíma skráningartækni.

Með hliðsjón af því, sem ég hef sagt hér, þá hefur n. leyft sér að leggja til, að till. á þskj. 23 verði samþ. í nokkuð breyttu horfi, eins og fram kemur í nál. á þskj. 330 og ég ætla að lokum að leyfa mér að lesa upp. En breytingarnar, sem n. leggur til, að gerðar verði, eru á þessa leið:

„1. Tillgr. orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að taka til heildarendurskoðunar lagaákvæði um skráningarmál félaga og firma í því skyni, að skráning fari fram á einum stað fyrir landið allt og að öðru leyti gerðar þær breytingar, sem hæfa nútíma þjóðfélagsháttum.

Að endurskoðun lokinni skal ríkisstj. láta semja frv. til nýrrar löggjafar um þessi efni og leggja fyrir næsta þing.

2. Fyrirsögnin orðist svo:

Till. til þál. um skráningu félaga og firma.