02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í D-deild Alþingistíðinda. (3466)
12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga
Flm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Við höfum þrír þm. Sunnl. leyft okkur að flytja hér á þskj. 12 till. til þál. um samgöngumál Vestmannaeyja. Flm. auk mín eru þeir hv. 5. þm. Sunnl., Garðar Sigurðsson, og hv. 2. þm. Sunnl., Ágúst Þorvaldsson. Till. er í fjórum liðum, en ég vil mjög undirstrika, að þar er ekki um neinn óskalista að ræða, heldur er í till. bent á ákveðnar leiðir, sem allar eru raunhæfar og færar og mundu verða til verulegra úrbóta í samgöngumálum Vestmanneyinga, ef hv. Alþ. vill á þær fallast.
Samgöngumál Vestmanneyinga hafa áður verið hér til umr. á hv. Alþ., og er það eðlilegt, þar sem hér er um að ræða einn af stærri kaupstöðum landsins, sem hefur alveg sérstöðu að því leyti, að hann er vegna legu sinnar skorinn úr öllum tengslum við þjóðvegakerfi landsins og samgöngum við hann verður því ekki haldið uppi á annan veg en yfir opið haf eða loftleiðis. Þetta er sérstaða, sem ekki getur talizt ósanngjarnt, að hv. Alþ. taki verulegt tillit til. Segja má, að hér áður fyrr hafi verið um algera einangrun þessa fólks að ræða, sem í Vestmannaeyjum bjó. Ferðir voru oft og tíðum ekki til og frá Eyjum svo mánuðum skipti, og varð það til þess, að Vestmanneyingar urðu oft að taka málin í sínar eigin hendur og ráða fram úr margs konar vanda, sem að höndum bar, án þess að hafa aðstöðu til að leita fyrir sér til stjórnvalda á sama hátt og flestir landsmenn aðrir. En þess skal getið, og það skal viðurkennt, að á undanförnum áratugum hafa fyrir tilstuðlan hv. Alþ. verið gerðar verulegar úrbætur í samgöngumálum Vestmanneyinga, og sú einangrun, sem áður ríkti, hefur verið rofin að vissu marki. Má í því sambandi nefna byggingu flugbrautarinnar, sem tekin var í notkun árið 1946, byggingu Vestmannaeyjaskipsins Herjólfs, sem annazt hefur vöruflutninga og að nokkru leyti farþegaflutninga undanfarin 12 ár milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og nú síðustu árin milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja, og loks byggingu þverbrautarinnar við þá einu flugbraut, sem fyrir var, er tekin var í notkun almennt á árinu 1967, auk þess sem aðstaðan til lendingar og flugtaks á vellinum hefur verið stórbætt hin síðari ár, þó að margt sé þar ógert enn, eins og ég mun víkja að síðar. Allt eru þetta að sjálfsögðu spor í rétta átt, en engin endanleg lausn. Vestmanneyingar ætlast til þess að sitja við sama borð og aðrir landsmenn, að geta óhindrað ferðazt til og frá heimabyggð sinni, og getur það á engan hátt talizt ósanngjörn krafa eða óeðlileg tilætlunarsemi. Og vegna síaukins bifreiðafjölda í Vestmannaeyjum, en þær munu nú í dag vera um 700 talsins, ætlast Vestmanneyingar til þess, að þeim verði skapaður greiðari aðgangur að þjóðvegakerfi landsins en nú er, þó að þeir geri sér fulla grein fyrir, að þeir eru ekki síður en aðrir landsmenn og kannske enn frekar háðir veðurfari með allar samgöngur, hvort heldur er á sjó eða í lofti. Daglegar ferðir bæði fyrir farþega, vörur og bifreiðar sem mestan hluta ársins er það, sem að er stefnt, að svo miklu leyti sem veður ekki hamlar.
Mér þykir rétt að víkja nokkru nánar að einstökum liðum till. umfram það, sem fram kemur í grg. Varðandi fyrsta liðinn vil ég segja þetta: Eins og fyrr segir, var m. s. Herjólfur byggður árið 1959 til Vestmannaeyjaferða. Þó var sú kvöð sett á skipið, að það skyldi fara eina ferð í hverjum hálfum mánuði til Hornafjarðar, meðan þess væri talin þörf, aðallega vegna vöruflutninga. Ferðum skipsins var í fyrstu hagað þannig, að það fór aðra vikuna þrjár ferðir milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur með vörur og farþega, en hina vikuna tvær ferðir. Síðar var tekin upp sumaráætlun fyrir skipið, þannig að ferðum þess til Reykjavíkur var fækkað, en skipið var um helgar látið annast ferðir milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, aðallega til farþega- og bifreiðaflutninga. Sýndi það sig strax, að þessi breytta áætlun varð til þess að auka tölu fluttra farþega og bifreiða mjög frá því, sem áður var.
Á s.l. vetri fóru Vestmanneyingar fram á það, að gerð yrði ný sumaráætlun fyrir skipið, þar sem á tímabilinu frá 1. maí til 30. sept. yrðu teknar upp daglegar ferðir með skipinu milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar fimm daga vikunnar, en aðeins farin ein ferð í viku milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur til vöruflutninga og með farþega, ef svo bæri undir. Ráðamenn Skipaútgerðarinnar voru vantrúaðir á þessa hugmynd, töldu að gert væri ráð fyrir of mörgum ferðum á viku og að ekki yrði um nægan flutning að ræða, og mundi þetta því valda Skipaútgerðinni fjárhagslegu tjóni. Um þetta varð ágreiningur í grundvallaratriðum milli Vestmanneyinga og forstjóra Skipaútgerðarinnar. En þáv. samgrh. Ingólfur Jónsson, féllst á sjónarmið Vestmanneyinga og gaf Ríkisskip bein fyrirmæli um að verða við till. þeirra og haga ferðum m.s. Herjólfs eins og þeir höfðu lagt til umrætt tímabil eða frá því í maí og til 30. sept. s. l.
Eðlilegt er, að spurt sé, hver hafi orðið reynslan af þessari breyttu áætlun m.s. Herjólfs, sem alveg óneitanlega varð til stóraukinna þæginda fyrir það fólk, sem ferðast vill til og frá Eyjum. Því er fljótsvarað. Hún varð jákvæð, og ekki verður annað séð en að hún hafi einnig orðið jákvæð fjárhagslega fyrir Skipaútgerð ríkisins. Ef gerður er samanburður á flutningum með m. s. Herjólfi árið 1969 og aftur árið 1971, kemur í ljós, að flutningar jukust verulega með skipinu yfir sumarmánuðina eða á tímabilinu frá 15. maí til 15. sept. nú í ár miðað við sama tíma á árinu 1969. En ég vil skjóta því inn, að samanburður milli áranna 1970 og 1971 er ekki raunhæfur, þar sem verkfall stóð yfir fyrri hluta sumars 1970, eins og allir muna, og hafði það að sjálfsögðu truflandi áhrif á alla flutninga meðan það stóð. En samanburður þessi lítur þannig út, að á árinu 1969 var á umræddu tímabili samtals flutt með skipinu 2.681 smálest af vörum. 378 bifreiðar og 4.408 farþegar. Á sama tímabili 1971 eða frá 15. maí til 15. sept. flutti skipið hins vegar samtals 2.700 smálestir af vörum, 794 bifreiðar og 6.199 farþega, og er því um verulega aukningu að ræða. Þess skal getið, að þungi bifreiða er í báðum tilfellum talinn með í vöruflutningum. Með því breytta fyrirkomulagi, sem upp var tekið á s.l. vori, að láta Herjólf sigla fimm daga vikunnar milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja og aðeins eina ferð í viku milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, er siglingarleið skipsins stytt nokkuð á viku hverri frá því, sem áður var. Í þessu tilfelli sigldi skipið 612 sjómílur á viku á móti 664 sjómílum í hinu síðara tilfelli, eins og áður var. Rekstrarafkoma skipsins hlýtur því að hafa batnað verulega við þá breyttu skipan, sem upp var tekin á síðasta vori, er hinum daglegu ferðum var komið á, á milli Eyja og Þorlákshafnar, þar sem það hafði meiri flutninga, en sigldi styttri leið á viku hverri auk þess sem það veitti bæði Vestmanneyingum og öðrum mun betri þjónustu en áður var, og verður það að teljast mjög mikilsvert atriði.
Í fyrsta lið þeirrar till., sem hér liggur fyrir, er lagt til, að m.s. Herjólfur verði í haust og í vetur látinn sigla tvær ferðir milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur í viku hverri og tvær ferðir á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar á tímabilinu til 1. maí n.k., en þá verði aftur teknar upp daglegar ferðir milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar fimm daga vikunnar og ein ferð milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur á tímabilinu til 30. sept. ef ekki verður um aðra hagstæðari lausn að ræða með flutninga á farþegum og bifreiðum yfir sumarmánuðina. Vænti ég þess fastlega, að núv. hæstv. samgrh. geti á þetta fallizt.
Þá kem ég að öðrum lið till., þar sem lagt er til, að Alþ. skori á ríkisstj. að láta athuga möguleika á kaupum á svifskipi til farþega— og bifreiðaflutninga milli Vestmannaeyja og meginlandsins, en þar er aðeins um tæplega 12 km leið að ræða.
Ég held, að óhætt sé að segja, að Vestmanneyingar hafi um aldaraðir horft yfir sundið milli lands og Eyja og dreymt um, að til væri farartæki, sem flutt gæti þá þessa stuttu leið upp í Landeyjasand á annan veg en þann að þurfa að róa á smábátum upp að sandinum og þaðan í land, sem ekki er hugsanlegt, nema alveg sé um sléttan sjó að ræða. Eftir því sem bifreiðaeign Vestmanneyinga hefur vaxið með hverju árinu, sem liðið hefur, hefur þeim orðið ljósari sérstaða þeirra í sambandi við samgöngumál, því að auðvitað ætlast þeir til þess, að þeir, eins og aðrir landsmenn, geti haft afnot af þjóðvegakerfinu, sem þeir að sínum hluta eru þátttakendur í að byggja upp, ekki síður en aðrir landsmenn. En til þess að þetta geti orðið, hefur fram að þessu skort hentugt farartæki. Á árinu 1967 kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi ný gerð farartækja, hin svonefndu svifskip, sem höfðu þann eiginleika að geta ferðazt jafnt á sjó og landi, ef um sléttlendi var að ræða, og komust í gegnum brim við sendna strönd án nokkurrar hindrunar. Vestmanneyingar sendu þá þegar mann til Bretlands til að skoða þetta farartæki og kynna sér eiginleika þess. Töldu þeir eftir þá athugun þetta farartæki án efa hentugt til farþegaflutninga milli lands og Eyja, en ekki nægjanlega stórt eða traust til bifreiðaflutninga. Fyrir milligöngu Alþ. var þó eitt slíkt farartæki fengið leigt hingað til lands í einn mánuð á árinu 1968, og hóf það þegar reynsluferðir milli lands og Vestmannaeyja. Í fyrstu ferð sinni fór það eins og leið liggur beint af augum upp í Landeyjasand yfir svo nefnda tanga, sem eru við ósa Markarfljóts, yfir mýrar og móa og upp Markarfljót og hægði ekki á ferð sinni, fyrr en það kom upp að Markarfljótsbrú. Næstu ferð sína fór það einnig eins og leið liggur upp í Landeyjasand og stöðvaðist ekki fyrr en komið var að hlaðinu á Bergþórshvoli. Ég held, að allir, sem voru með í þessum fyrstu ferðum þessa svifskips, hafi gert sér grein fyrir, að þarna var komið farartæki, sem frekar en öll önnur mundi leysa vandkvæði Vestmanneyinga til farþega— og bifreiðaflutninga yfir sundið milli lands og Eyja, ef á markaðinn kæmi skip af þeirri stærð, að það gæti samtímis flutt farþega og bifreiðar, en því miður hefur það dregizt. Bretar hafa byggt mikinn fjölda svifskipa af þeirri gerð, sem hingað kom til landsins, og selt þau um heim allan. Einnig hafa þeir byggt miklu stærri skip til flutninga á farþegum og bifreiðum samtímis yfir Ermarsund, og hefur ekki annað heyrzt en að það hafi gengið vel. Hins vegar hafa þeir ekki byggt skip af þeirri stærð, sem henta mundi okkur, svo að vitað sé. Aftur á móti er vitað, að fyrirtæki í Bandaríkjunum. Bell Aerospace Company, er með í byggingu svifskip, sem mjög vel mundi henta til bifreiða– og farþegaflutninga á milli lands og Eyja. Er það talsvert veigameira en skip það, sem hér var minnzt á og kom til landsins 1968, eins og fyrir var sagt. Stærð þess skips, sem hér um ræðir, er 621/2 fet að lengd eða um 20 m og 33 fet eða um 11 m á breidd. Burðarþol þess er um 25 tonn. Það er knúið tveimur 1.300 ha. mótorum. og getur hraði þess fullhlaðins orðið 50 sjómílur á klst. Á þessu farartæki er aðeins gert ráð fyrir tveggja manna áhöfn.
Til samanburðar við það skip, sem hingað var fengið til lands 1968, skal ég geta þess, að það var 14,8 m á lengd og 7 m á dýpt með einum 900 ha. mótor. Og sjóhæfni þessa skips, sem ég hef hér minnzt á, að er í byggingu hjá umræddu fyrirtæki í Bandaríkjunum. er mun meiri en þess skips, sem hingað kom og ég hef getið hér um áður, og getur það einnig, eins og það fyrra, farið jafnt yfir sjó og land, ef ekki er um mjög miklar ójöfnur að ræða. Skip þetta er með 25 tonna burðardekki, og er hægt að fá það óyfirbyggt og þannig hægt að ráða yfirbyggingu þess og innréttingu, eftir því sem bezt er talið henta til þeirra nota, sem því eru ætluð, og er áætlað verð á því þannig frágengnu 115-120 millj. kr. Fer það nokkuð eftir því, hve mikið er keypt af varahlutum í upphafi. Er sjáanlega hægt að haga innréttingu þessa skips þannig, að það geti flutt í senn 4—6 bifreiðar ásamt tilteknum fjölda farþega eða þá farþega eingöngu, ef ekki væri um bifreiðaflutninga að ræða. Eftir því sem ég og við flm. sjáum bezt, er hér um að ræða svifskip, sem að stærð og gerð hentar mjög vel til flutninga milli Vestmannaeyja og Landeyjasands. Fyrsta skip þessarar tegundar verður fullbyggt og tekið til reynslu hjá umræddu fyrirtæki í desembermánuði, en hið næsta verður tekið til reynslu 3—4 mán. síðar.
Hæstv. samgrh. minntist fyrir nokkru hér í þessum ræðustól á möguleika á því að taka þyrilvængju í notkun til farþegaflutninga milli Akraness og Reykjavíkur. Mér þykir vænt um þessa framsýni hans og skilning á að taka tæknina í þjónustu samgöngumála hér á landi. Ég vona, að þetta lofi góðu um stuðning hans við þá hugmynd, sem fram hefur komið í öðrum lið þessarar till., sem hér er til umr., þar sem skorað er á ríkisstj. að láta athuga möguleika á kaupum á svifskipi til ferða á milli Vestmannaeyja og Landeyjasands. Ég vil geta þess hér, að eftir þeim upplýsingum. sem flm. þessarar till. hafa um kostnað við þyngri flutninga með svifskipi, mun kostnaður við þyngri flutninga með svifskipi ekki vera nema um 1/4 hluti kostnaðar af sambærilegum flutningi með þyrilvængju, og liggur því alveg í augum uppi, að svifskip mundi henta betur til þeirra flutninga, sem hér um ræðir, en þyrilvængja. Vestmanneyingar hafa vissulega einnig athugað alla möguleika í sambandi við þyrilvængju til flutninga á farþegum og bifreiðum yfir sundið milli lands og Eyja, en í ljós hefur komið, að þær þyrilvængjur, sem gætu annað þessum flutningum og væru til þess færar, eru bæði að stofni til og einnig í rekstri mun dýrari en svifskip.
Við, sem að þessari till. stöndum, höfum trú á því, að svifskip af þeirri gerð, sem ég hér hef lýst, mundi leysa vandann í sambandi við flutninga á farþegum og bifreiðum milli Vestmannaeyja og meginlandsins mikinn hluta ársins, og leyfi ég mér að vænta þess, að hv. Alþ. taki vel í hugmynd okkar um frekari athugun á kaupum á slíku farartæki, ef í ljós kemur, að það geti leyst þann vanda, sem fyrir hendi er í samgöngumálum þessa byggðarlags.
Þriðji liður till. er um, að hafinn verði undirbúningur að byggingu á nýju og hentugu skipi til farþega— og vöruflutninga og bifreiðaflutninga milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar og Vestmannaeyja og Reykjavíkur, ef ekki reynist unnt að koma samgöngumálum Vestmanneyinga hvað sjóleiðina snertir í viðunandi horf með m.s. Herjólfi og kaupum á svifskipi, eins og hér hefur verið rætt um.
Eins og ég hef áður bent á, var m.s. Herjólfur byggður og keyptur hingað til landsins árið 1959. Hann hefur í alla staði reynzt hið traustasta skip og vel fallið til vöruflutninga. Hins vegar liggur það alveg ljóst fyrir, að allar aðstæður í sambandi við farþega- og bifreiðaflutninga hafa ger breytzt á þeim 12 árum, sem liðin eru, síðan skipið kom til landsins. Á s.l. sumri mun skipið hafa flutt um 80 farþega í ferð að meðaltali í Þorlákshafnarferðum sínum. Í skipinu eru aðeins 10 klefar fyrir farþega með tveimur rúmum hver eða samtals 20 rúmum, og er því ljóst, að verulegur hluti farþeganna hefur þurft að hafast við í mjög þröngum salarkynnum skipsins eða úti á dekki. Hér er um fjögurra tíma siglingu að ræða fyrir opnu hafi og oft í rigningu og kannske nokkrum veltingi. Þó að þetta hafi þótt viðunandi fyrir nokkrum áratugum, þýðir ekkert að vera að blekkja sig á því, að fólk gerir allt aðrar og meiri kröfur í dag en þetta ágæta skip getur í té látið. Það er að okkar dómi þegar orðið úrelt í sambandi við farþega— og bifreiðaflutninga. Er því ekki um annað að ræða, ef málin verða ekki leyst á annan veg, en hefja nú þegar undirbúning að byggingu á nýju skipi til þeirra ferða, sem m.s. Herjólfur hefur fram að þessu annazt. Það skip yrði að hafa mun meiri ganghraða, veita farþegum betri aðstöðu og vera þannig byggt, að hægt væri að aka bifreiðum inn í það og út úr því aftur, auk þess sem það yrði að vera byggt einnig til vöruflutninga og með mikla sjóhæfni, þar sem það þyrfti undir vissum kringumstæðum einnig að sigla fyrir Reykjanes til Reykjavíkur. Ég held, að slíkt skip hlyti að verða alldýrt í byggingu miðað við stærð þess og þess vegna sé rétt að athuga áður aðra möguleika, sem til greina koma til úrbóta í samgöngumálum Vestmanneyinga, þó að ég telji, að ekkert hik megi verða á að hefja undirbúning að byggingu á nýju skipi, ef aðrir möguleikar reynast ekki fullnægjandi. .
Fjórði og síðasti liður till. er um flugvöll í Eyjum og aðstöðuna þar. Eins og fram kemur í grg. með till., hafa á undanförnum áratugum verið gerðar verulegar umbætur í sambandi við flugsamgöngur til Vestmannaeyja, sérstaklega ef haft er í huga, að aðstaða til flugvallargerðar er óvenjulega erfið í Eyjum. Fyrri flugbrautin. sem byggð var þar, var tekin í notkun á árinu 1946. Við austurenda hennar er fjall, svonefnt Sæfell, og hefur hluta af austurenda þess verið rutt í burtu og þannig bætt verulega aðstaða til aðflugs, ef lent er frá austri. En frekari aðgerða í þessu sambandi er vissulega þörf öryggis vegna. Landslag er á flugvallarsvæðinu þannig, að uppfylling vesturenda þessarar brautar mun vera, að ég hygg, um I5 m á hæð. Það mun einnig hátta þannig til um suðurenda hinnar nýju flug þverbrautar, sem nýlega hefur verið byggð. Sú braut, þverbrautin, eins og hún er kölluð, var tekin í almenna notkun á árinu 1967. Á síðasta ári var gert verulegt átak í sambandi við lengingu þver brautarinnar og nauðsynlegar lagfæringar meðfram báðum brautunum. og var varið til þessa verks um 10 millj. kr. á því ári. Vantar ekki nema herzlu muninn á, að einnig þessi flugbraut, þ.e. þverbrautin, sé fullgerð hvað lengd snertir fyrir þær vélar. sem nú eru almennt og mest notaðar í innanlandsflugi.
Það, sem eftir er að gera við flugvöllinn fyrir utan smærri lagfæringar, er aðallega þrennt:
1. Að byggð sé við flugvöllinn aðstaða fyrir farþega og áhafnir flugvéla ekki lakari en við aðra stærri flugvelli hér á landi.
2. Að haldið verði áfram malbikun brautanna, en aðeins endar austur— og vesturbrautarinnar hafa verið malbikaðir. Verður að telja báðar þessar framkvæmdir jafnaðkallandi.
3. Að fullkomin lýsing verði sett upp við báðar brautirnar, en nú er aðeins önnur þeirra, austurvesturbrautin. með ljósaútbúnaði.
Í sambandi við nauðsyn á malbikun brautanna og hvað það verk er aðkallandi vil ég benda á, að allt efni í slitlag brautanna, bæði í sambandi við byggingu þeirra og viðhald, er tekið úr hinu sérkennilega fjalli í Vestmannaeyjum, Helgafelli. Náttúruverndarráð hefur fyrir löngu bannað alla malartöku þar, og eru Vestmanneyingar innilega sammála Náttúruverndarráði, að það sé bæði til skaða og skammar að rifa þetta fallega og sérkennilega fjall niður og nota það í ofaníburð. En því miður hefur í ekkert annað hús verið að venda í sambandi við ofaníburð flugbrautanna, og er langt frá því að vera sársaukalaust fyrir okkur, sem þarna búum, að þurfa að horfa á þessar aðfarir, og því eðlilegt, að krafa okkar sé, að þessum ljóta leik linni, en það getur vart gerzt með öðru móti en slitlag úr varanlegu efni verði sett á báðar flugbrautirnar.
Ég hef nú lýst efni þeirrar till., sem hér liggur fyrir varðandi samgöngumál Vestmannaeyja. Ég vil þó sem lokaorð í samanþjöppuðu formi gera grein fyrir hugmyndum og kröfum Vestmanneyinga í þessu sambandi. En þær eru:
1. Að m.s. Herjólfur verði nú í haust og í vetur látinn annast ferðir milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og einnig milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, eins og fyrsti liður till. gerir ráð fyrir.
2. Að keypt verði svifskip til farþega- og bifreiðaflutninga milli lands og Eyja af þeirri gerð, sem hér hefur verið lýst, og að ríkissjóður greiði að öllu eða mestu leyti stofnkostnað skipsins, en stofnað verði til félags í Vestmannaeyjum um rekstur þess og þá eignaraðild að einhverju leyti með tilteknu framlagi í sambandi við kaupin eða útbúnað skipsins. Vil ég í þessu sambandi benda á, að Vestmanneyingar hafa alla tíð, eins og aðrir landsmenn, tekið að sínum hluta þátt í uppbyggingu þjóðvegakerfisins, en vegna legu Eyjanna ekki getað notað það nema að mjög takmörkuðu leyti. Væri brúargerð út í Eyjar talin hugsanleg, er ég sannfærður um, að allir yrðu sammála um. að hún yrði tekin inn á vegalög eins og aðrar brýr, sem byggðar hafa verið og ætlað er að byggja og þá að sjálfsögðu greidd af vegafé að öllu leyti. Er því ekki nema eðlilegt, að við ætlumst til, að ríkissjóður standi undir stofnkostnaði af farartæki, sem við teljum, að, að nokkru leyti komi í stað brúar. Við gerum okkur alveg grein fyrir, að þó að þannig yrði staðið að málum, þá yrði kostnaður við flutninga á bifreiðum milli lands og Eyja það mikill, að við mundum greiða hærri vegatoll en aðrir landsmenn um langa framtíð. Þó að svifskip yrði mikið notað til farþega— og bifreiðaflutninga á milli lands og Eyja, gerum við okkur ekki nokkra von um, að nokkur gróði yrði af rekstri þess, þó að um eðlileg flutningsgjöld yrði að ræða, eins og sjálfsagt væri.
3. Það er till. okkar, að ef í ljós kemur, að ekki verður fengin viðunandi lausn á samgöngumálum Vestmanneyinga sjóleiðina með m.s. Herjólfi og kaupum á svifskipi. þá verði þegar hafinn undirbúningur að byggingu á nýju og hentugu skipi, sem þá leysti m.s. Herjólf af hólmi.
4. Er það till. okkar, að haldið verði áfram framkvæmdum við flugvöllinn og hann fullgerður, bæði hvað gerð og aðstæður snertir.
Nú mætti halda. að ef ráðizt yrði í þær aðgerðir, sem ég hef hér rætt, þá mundi það skerða aðstöðu þeirra aðila, sem flugsamgöngur annast til Eyja. Ég vil mjög undirstrika, að sú hefur orðið reynslan á undanförnum árum, að svo er ekki. Þegar Herjólfur var tekinn í notkun í þessa flutninga haustið 1959, þá sýndi það sig á árinu 1960, þar sem um heilt ár var að ræða, að hann flutti 8—9 þús. farþega, en farþegatalan hjá Flugfélagi Íslands jókst samtímis það ár. Þetta skeði aftur í sumar, þegar hinar daglegu ferðir voru teknar upp milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja og skipið flutti á tilteknum tíma 6 þús. farþega, þá jókst samtímis farþegatala hjá Flugfélagi Íslands. Þetta kann kannske einhverjum að þykja undarleg niðurstaða, en þetta er bara sú reynsla, sem alls staðar og ávallt er, að ef fólk á einum stað fær öruggar ferðir, veit að það getur farið á tilteknum tíma og komið heim til sín á tilteknum tíma aftur, þá kemur miklu meiri hreyfing á fólkið, það ferðast meira, þegar vissan um ferðirnar bæði fram og til baka er fyrir hendi. Það er því að mínum dómi engin hætta á því, að við skerðum að nokkru leyti aðstöðu Flugfélags Íslands nema síður sé, þó að ráðizt yrði í þær endurbætur á samgöngum Vestmanneyinga sjóleiðis, sem ég hef hér minnzt á.
Herra forseti. Þetta er í stórum dráttum það, sem till. okkar gengur út á, og leyfi ég mér að leggja til, að umr. um málið verði frestað og till. vísað til hv. fjvn.