02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (3471)

12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Sennilega eru langar umr. um þessa þáltill., sem nú fer til athugunar í n. ástæðulitlar, þar sem ekki er um stórt deilt.

Hv. flm. telja að sjálfsögðu, að það hafi verið ástæða til að hafa fyrsta liðinn í till. með, en þó var nú sá kafli ræðu hv. 1. þm. Sunnl. áðan, sem átti að vera svar til mín út af því, svona nokkuð utan við það, sem ég hafði sagt. Ég hafði sagt, að ég teldi þetta efni fyrsta liðar ekki þingmál, en hann sagði, að ég hefði talað um, að fyrsti liður væri ekki þinglegur. Þetta er allt annað. Ég hef aldrei haldið því fram, að fyrsti liðurinn væri ekki í þinglegu formi. En það að ákveða viðkomustaði einstakra skipa á einstakar hafnir tel ég ekki vera þingmál, og

mega flm. hafa sínar skoðanir á því, ef þeir vilja. Og á því, að það hafi verið ástæða til að setja þingnefnd við hlið forstjóra og sérstakrar stjórnarnefndar, sem hafði verið skipuð trúnaðarmönnum fráfarandi ríkisstj., til þess að fjalla um áætlunargerð milli þessara hafna, tel ég líka, að þeir verði að hafa sínar skoðanir, en ég tel, að þetta hafi frekar verið silkihúfa en nauðsynleg nefnd. Og þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Við erum ekki á sama máli um þetta. En ég spyr bara hv. þm. um það, hvaða ástæða var til þess að halda þessari nefnd áfram, eftir að hún hafði gert till. um breytta áætlun, sem hafði verið reynd yfir sumarmánuðina og reynslan orðið sú, að þetta kom fjárhagslega vel út og var viðurkennt sem hagkvæm þjónusta fyrir fólkið. Þar með taldi ég verkefni þessarar nefndar búið, og hefði þó bæði forstjórinn og fyrri nefndin átt að geta öðlazt þessa reynslu með þeirri aðstöðu, sem þeir höfðu. Nei, ég taldi ekki nokkra ástæðu til þess, að þessi nefnd héldi áfram störfum. Ég taldi verkefni hennar lokið. Ég setti hana ekkert af með neinum hranalegum hætti. Ég bara hagaði því þannig, að ég taldi verkefni hennar lokið og hún væri leyst frá störfum, en það er eins og þessi nefnd sé grátin enn af hv. þm,. sem var settur formaður nefndarinnar fyrir kosningar og hafði haldið fundi með þessari nefnd fyrir kosningar. Síðan ekki söguna meir.

1. flm. talaði um, að hann þyrfti ekki að biðjast neinnar afsökunar á því, að hann hefði flutt þennan lið till. Það var síður en svo, að ég bæði um neina afsökun fyrir það. Ég bara lýsti minni skoðun á því, að ég teldi, að þetta ætti ekki að vera þingmál.

Ég tók mjög jákvætt undir efni hinna þriggja liðanna í till., og er þar því um ekkert að deila. Mér sýnist það ljóst af því, sem hér hefur sagt verið, að það sé ekki komin nein reynsla á þessi loftskip. Það er verið að byggja slíkt skip, segir hv. þm., og reynsluförin hefur ekki verið farin, hún fer fram einhvern tíma á næsta vetri. Þetta er þannig enn á tilraunastigi, og enginn veit um það, hvort þarna er fundin lausn á málinu. Við verðum að bíða frekari vitneskju um það, og þá verður reynslan ólygnust. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það sé ákaflega ólíklegt, að loftpúðaskip henti á þessari leið fremur en á leiðinni Akranes—Reykjavík. En það var almannarómur eftir tilraunina, sem gerð var hér, að á þeirri leið hentaði það ekki vegna sjólags á leiðinni. En að það sé kyrrari sjór milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar en á milli Akraness og Reykjavíkur, á það er ég nú ekki trúaður. Svo mikið er víst, að fólk taldi, að í misjöfnu veðri færi mjög illa um farþega í þessu svifskipi. Ég hef sjálfur hitt fólk, sem var með þessu loftpúðaskipi, þegar það var í reynsluferðunum hér, og það taldi, að það væri mjög óþægilegt að vera í því, þegar sjór ókyrrðist að nokkru ráði, miðað við þann hraða, sem á því er. Að það henti til bílaflutninga, á það er ég líka vantrúaður, en ég vil sem sagt láta kanna þetta, þigg allar upplýsingar, sem hv. þm. getur gefið um málið, og að öðru leyti verður þessi möguleiki áreiðanlega án nokkurrar tregðu kannaður.

Mér virtist ljóst, þegar ég bar saman ræður hv. 3. þm. Sunnl. og hv. 5. þm. Sunnl., að sá fyrrnefndi teldi, að það ætti að snúa sér að framkvæmd þriðja liðar till., ef loftpúðaskipið gæfi ekki góða raun, en hv. 5. þm. Sunnl. taldi, að það ætti að snúa sér strax að því að leysa málið með tveggja þilfara skipi, sem gæti tryggt örugga flutninga á bifreiðum Eyjamanna auk vöruflutninga og farþegaflutninga. Hann vildi því í raun og veru gera ákaflega lítið úr möguleikum þeim, sem fælust í öðrum lið. En um það þarf ekki fleiri orð. Að þessu leyti voru þeir ekki sammála, að því er mér virtist.

Ég held, að ég hafi tekið það skýrt fram varðandi síðasta lið till., um flugsamgöngurnar, að þar hefðu þeir báðir lög að mæla og ekkert ofmælt. Ég held, að ég hafi sagt og tekið þannig fyllilega undir þeirra mál, að allt væri undir því komið, hvað mikið fjármagn hv. Alþ. léti af mörkum til flugmálanna í heild á næsta árs fjárlögum. Og á því vek ég sérstaklega athygli, vegna þess að þar er um svo risavaxin verkefni að ræða, en takmarkað fjármagn. Ég gaf þess vegna nokkra hugmynd um, hvað nauðsynlegar umbætur á flugvellinum í Vestmannaeyjum kostuðu, ef þeim ætti að sinna, þó að ekki væri sinnt nema þeim brýnustu. Þar er um að ræða tugi milljóna.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara um þetta fleiri orðum. Ég heyrði það, að hv. 2. þm. Sunnl. hafði skilið orð mín svo, að ég hefði tekið jákvætt undir efnisatriði till,. þrjú hin síðast töldu, og tel ég, að hann hafi skilið mál mitt rétt, og að það sé áreiðanlega engri tregðu að mæta hjá samgrn. við að snúast jákvætt við öllum framkvæmanlegum umbótum í samgöngumálum Vestmanneyinga, því að rn. viðurkennir vissulega, að þessi kaupstaður á við sérstaklega erfiða aðstöðu að búa og til samgöngumála hans verður að taka sérstakt tillit vegna staðhátta