02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (3474)
12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það var aðeins eitt atriði, sem ég vildi gera ljóst, áður en umr. lyki eða henni yrði frestað. Það var um þetta, að ég hef engin fyrirmæli gefið um það að breyta þeim áætlunum, sem hin síðari nefnd hafði samið, engin fyrirmæli um það, og það er ekki af mínum völdum, að þarna hefur orðið breyting á, ef svo hefur orðið. Ég sé, að í tillögu upphafinu er talað um, að ríkisstj. stuðli að því, að ferðum Herjólfs verði þannig hagað, að skipið fari á viku hverri aðeins tvær ferðir milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur á vetrarhelmingi ársins, en haldi alls ekki áfram þeim ferðafjölda, sem sumaráætlunin gerði ráð fyrir. Þeir hafa þannig gert sjálfir ráð fyrir því, að það yrði breyting á, þegar veturinn gengi í garð, og ætti það að vera framkvæmanlegt af forstjóra og nefndinni, stjórnarnefnd, sem enn starfar, að haga vetraráætlun með tilliti til óska Vestmanneyinga og náttúrlega út frá þeirra skoðunum um það, hvernig fjárhag skipsins gæti verið borgið. Ekki er það heldur rétt, að Herjólfur hafi fyrst verið rekinn með gróða núna í sumar. Fyrsta ár Herjólfs var hann eina skipið hjá Ríkisskip, sem var rekið með hagnaði. Ég var þá í fjvn. og veit vel um það, að rekstur þessa skips byrjaði með verulegum hagnaði, og var það eina skipið, sem Skipaútgerð ríkisins gerði þá út með þeirri útkomu. Annars er það rétt, sem hv. 2. þm. Sunnl. sagði hér áðan. Það þarf enginn að undrast það, þó að það þurfi að gefa með þeim þætti samgöngumálanna að halda uppi samgöngum í kringum Ísland. Þennan þátt samgöngumálanna verðum við að rækja, en það er ekki möguleiki til þess að láta þá starfsemi bera sig. Það mundi ekki verða fært, þó að önnur stjórnarnefnd yrði sett með forstjóra Skipaútgerðarinnar.