18.04.1972
Sameinað þing: 57. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (3479)
12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir afgreiðslu á þeirri þáltill., sem við þm. Sunnl. fluttum hér í upphafi þings í haust og er á þskj. 12. Að sjálfsögðu hefði ég, og ég geri ráð fyrir við allir, kosið það, að till. hefði verið samþ. eins og hún var borin fram, en ég tel þó, að samþykkt fjvn., ef hún verður hér staðfest, sé það næst bezta, sem ég a.m.k. hefði getað kosið í málinu, því að þetta verður til þess, að, að þessu máli verður unnið af hálfu Alþ., og ég vona og þykist vita, að í þeirri nefnd, sem lagt er til, að kosin verði, verði kannaðar allar þær leiðir, sem til úrbóta mega verða í sambandi við samgöngumál Vestmanneyinga.
Ég ætla ekki að fara að rekja málið neitt efnislega. Þetta mál hefur verið rætt allítarlega, bæði þegar það var hér til 1. umr. og einnig áður. En í sambandi við það, sem hæstv. samgrh. sagði um fyrsta lið till., þó að það skipti ekki máli lengur, hvernig hann var orðaður, þá var að mínum dómi og okkar dómi mjög eðlilegt, að hann væri í till., eins og hann var. Það hafði skeð í ársbyrjun 1970, að þáv. samgrh. hafði gefið Skipaútgerð ríkisins fyrirmæli um það eftir beiðni Vestmanneyinga, hvernig sumarferðum Herjólfs skyldi hagað. Hann hafði skipað nefnd manna í héraði til þess að gera till. um þetta mál og staðfesti síðan við Skipaútgerðina með bréfi, að hann legði til, að þannig yrði áætlun skipsins hagað yfir sumarmánuðina 1971. Þessi nefnd var leyst upp síðari hluta árs 1971, og var því eðlilegt, að hér kæmi fram á hinu háa Alþingi ítrekuð ósk okkar um það, að ferðum skipsins yrði yfir sumarmánuðina hagað eins og áður hafði verið, sem að okkar dómi hafði gefizt mjög vel, hafði leyst þetta mál að dómi Vestmanneyinga sjálfra eins og hægt var að gera bezt með því skipi, sem fyrir hendi var, þ.e. að láta það sigla fimm daga vikunnar milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar með farþega og bifreiðar og annan þann flutning, sem til fellur, og eina ferð milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja með vöruflutninga fyrst og fremst. Það sýndi sig, að skipið annaði þessum vöruflutningum með því að Skipaútgerðin hafði tvö önnur skip, Esju og Heklu, til þess að lesta að nokkru leyti einnig til Eyja í hringferð þeirra í kringum landið, þannig að við töldum, að eins og skipakosti Skipaútgerðar ríkisins var háttað, þá hefði málið verið leyst á þann bezta veg, sem hægt var, miðað við aðstæður.
Um vetrarferðir Herjólfs vil ég segja það, að auðvitað gera Vestmanneyingar sér það ekki síður ljóst en aðrir og kannske enn frekar ljóst en flestir aðrir, að á þeim eru margir annmarkar. Það er hafnaraðstaðan í Þorlákshöfn, aðallega vegna veðra. Ég fellst ekki á það, sem hér kom fram, að bryggju plássið í Þorlákshöfn þurfi að standa í vegi fyrir því, að skipið komi þar einnig við á vetrarvertíð, ef veður annars leyfir. Það má mjög gjarnan haga ferðum skipsins þannig, að það þurfi ekki að stöðvast þar nema í 1—2 klukkutíma. Það getur verið þar, ef áætlun þess yrði hagað þannig, að það yrði þar um miðjan daginn, þegar flestir bátar eru á sjó, kannske allir bátar eru á sjó, ef annars er hægt að afgreiða Herjólf í höfninni vegna veðurs, þannig að þrengsli í höfninni þurfa ekki að hindra ferðir skipsins yfir vetrarmánuðina.
En það er óþarfi að vera að ræða þetta hér. Ef sú nefnd, sem fjvn. hefur gert till. um, verður skipuð, þá er þetta auðvitað eitt af þeim atriðum, sem hún hlýtur að taka til athugunar og þá að meta, hvort hægt er að koma ferðum Herjólfs þannig fyrir, einnig yfir vetrarmánuðina, að nokkru leyti til þess að mæta þeim óskum, sem heima eru um það, að skipið verði nýtt til fullnustu í sambandi við siglingar milli Vestmannaeyja og meginlandsins.
Ég skal að lokum geta þess, að það liggur að mínum dómi alveg ljóst fyrir, að fjárhagslega var sú breyting, sem gerð var á áætlun skipsins vorið 1971, mjög hagstæð fyrir Skipaútgerðina. Það sýnir sig, að það hafa verið fluttir mun fleiri farþegar en áður hafði verið. Það hafa verið fluttar mun fleiri bifreiðar með skipinu þessa mánuði, sem skipið gekk milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, og það hefur einnig verið flutt aðeins meira vörumagn með skipinu þennan tíma. Þannig að það liggur alveg ljóst fyrir, að fjárhagsafkoma skipsins hlaut að verða betri en áður hafði verið, auk þess sem það liggur einnig ljóst fyrir, að sigling skipsins er aðeins styttri. það siglir styttri vegalengd með því að fara fimm ferðir milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar og eina ferð milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur en ef það siglir þrjár ferðir, eins og áður var, milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Ég tel því, að það sé ekki nokkur vafi á því, að það hafi einnig orðið fjárhagslega hagstætt fyrir Skipaútgerðina að haga ferðum skipsins þannig. Auk þess sem er aðalatriðið fyrir okkur a.m.k. að samgöngumál Vestmanneyinga urðu í mun betra lagi en þau hafa nokkurn tíma verið áður þann tíma, sem skipið annaðist þessar ferðir á þann hátt og eftir þeirri áætlun, sem tekin var upp vorið 1971.